Fréttatíminn - 09.03.2012, Síða 68
Það er allt í lagi. Pappelina vill láta ganga yfir
sig á skítugum skónum. Hún er nefnilega úr plasti.
Pappelina virkar því best þar sem mikið álag er
á gólfinu. Tilvalinn félagi í forstofuna eða eldhúsið.
Svo vill hún líka fara í þvottavél.
Plastmotturnar frá Pappelinu hafa farið sigurför
um heiminn og eru nú loksins fáanlegar á Íslandi.
Kíktu á úrvalið í verslun Kokku eða á kokka.is.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Á skítugum
skónum?
lau. 11-17
Hörkukonur mætast
í dúndurleik
FC Ógn SaFnar Fyrir rakel Söru
O kkur finnst komið nóg af leiðinlegri fréttamennsku og fréttum af hruni sem
varð fyrir nokkrum árum. Þetta
gerir engum gott,“ segir Rakel
Garðarsdóttir og bætir því við að
fagnaðarerindi FC-Ógnar sé að
fólk eigi að lifa lífinu lifandi og hafa
gaman af.
„Það er því um að gera að koma
og fá blöðrur og kakó. Svo verður
þetta dúndurleikur og dómararnir
frá Þrótti lofa miklum stælum við
dómarastörf sín.“
Með Rakel í liði Ógnar eru meist-
arakokkurinn Hrefna Sætran,
Vala Garðarsdóttir fornleifa-
fræðingur, Þorbjörg Helga
Þorgilsdóttir leikkona, Saga
Garðarsdóttir, uppistandari
og leikkona, og Dóra Jó leik-
kona. Á móti þeim keppa
svo meðal annarra Friðrika
Geirsdóttir, Tobba Marínós,
Margrét Marteins, Björk
Eiðsdóttir, blaðakona á
Vikunni, Dóra Takefusa,
Dóra Wonder, Íris Björk,
Alexía Björg leikkona,
Þóra Sigurðardóttir, út-
varpskonan Linda Blöndal,
Eva María og fréttakonan Rakel
Þorgergs.
„Þetta verður einstakt tækifæri
að sjá okkur spila,“ segir Rakel
og þar sem fræga liðið er frekar
vel mannað erum við orðnar pínu
stressaðar yfir úrslitum leiksins.
Þær eru líka með einhver leynileg
trix í gangi sem okkur líst ekkert
á.“
Björk Eiðsdóttir er til í tuskið og
ætlar með stöllum sínum ekki að
gefa Rakel og hennar konum neitt
eftir. „Ég hef aldrei spilað fót-
bolta en horft meira en flest-
ir á fótbolta og veit því alveg
hvað rangstaða er og svona,“
segir Björk sem er á fullu við
að reyna að verða sér úti um
takkaskó sem passa. „Vala
Garðarsdóttir sem er ein að-
alsprautan í liði mótherjanna
og eiginkona Auðuns Helgason-
ar fyrrum landsliðskappa og
þjálfara Ógnar hefur verið
á fullu við að reyna að
redda mér skóm. Hún
er með of lítinn
fót til að geta
lánað mér sjálf svo ætli ég endi ekki
í skóm af Auðuni og vona bara að
einhverjir taktar fylgi þá með. Ekki
bara táfýla. Það eru alla vega menn
á fullu í þessu verkefni.“
Leikurinn er styrktarleikur fyrir
Rakel Söru sem berst við krabba-
mein. „Hún er fædd 1983, tveggja
barna móðir sem hefur fimm sinn-
um greinst með krabbamein,“ segir
Rakel. „Það minnsta sem við í FC-
Ógn getum gert til þess að leggja
henni lið er að spila einn leik og
minna á mikilvægi þess að njóta
þess að lifa. Leikurinn er einnig
spilaður í minningu þeirra sem fall-
ið hafa frá allt of snemma og minnt
okkur á hversu dýrmætt lífið er.“
Liðin mætast á KR-vellinum á
laugardaginn klukkan 15. RokkInn-
hamborgarabíllinn verður á staðn-
um og selur hamborgarar til
styrktar málefninu og
hægt að leggja fram fé
með greiðslukortum
þar sem hinir og
þessir vinir Ógn-
ar verða á rölti
með posa.
toti@frettatiminn.is
Kvennaknattspyrnuliðið FC-Ógn efnir til fjölskylduhátíðar og dúndurleiks á laugardaginn gegn
hörkuliði kvenna sem hafa getið sér gott orð í fjölmiðlum og á leiksviði frekar en fyrir afrek á
sparkvellinum. Rakel Garðarsdóttir fer fyrir FC-Ógn sem mætir meðal annarra Dóru Takefusa,
Evu Maríu og Tobbu Marínós. Með leiknum ætla stelpurnar að safna fé til styrktar Rakel Söru sem
berst við krabbamein.
Rakel Garðarsdóttir á æfingu með FC-Ógn.
Tobba Marínós þykir
til alls líkleg á vellinum.
Björk Eiðsdóttir hefur
aldrei spilað fótbolta en
lætur það ekki stoppa
sig.
Sjónvarpskokkurinn
Rikka mætir meistara-
kokknum Hrefnu
Sætran.
64 dægurmál Helgin 9.-11. mars 2012