Fréttatíminn - 09.03.2012, Síða 69
Ambrosio hannar
plastskó
Brasilíska ofurfyrirsætan Aless-
andra Ambrosio tilkynnti á dög-
unum að hún hefur hafið samstarf
með skófyrirtækinu Melissa sem er
þekkt fyrir að framleiða eingöngu
skó úr plasti. Alessandra er fyrsta
fyrirsætan sem vinnur í samstarfi
við fyrirtækið en frægir hönnuðir
á borð við Vivienne Westwood og
Jean Paul Gaultier hafa starfað
með fyrirtækinu áður. Skólínan
sem Ambrosio mun vinna að heit-
ir Melissa Loves og er hún aðeins
fyrsta stjarnan af mörgum væntan-
legum sem koma að gerð línunnar.
Alessandra mun hanna tvenn skó-
pör fyrir línunna; Melissa Incense
Glitter sem sækir innblástur sinn
til fimmta áratugarins og Melissa
Divine sem eru vinsælu ballerínu-
skórnir.
Kynþokkafull
sem aldrei fyrr
Fyrirsætur á borð við Miröndu
Kerr og Claudia Schiffer komust
upp með að sitja fyrir naktar, með
óléttubumbuna út í loftið á forsíðum
tískutímarita á sínum tíma. Söng-
konuna Jessicu Simpson hefur
alltaf dreymt um þetta sama og varð
sá draumur hennar að veruleika í
nýjasta apríl tölublaði tímaritsins
Elle. Þar situr söngkonan fyrir á for-
síðunni en hún er komin á síðustu
daga meðgöngunnar. „Ég hef aldrei
trúað þessum konum sem fullyrða
að þeim finnist þær kynþokkafullar
með barn undir belti. Nú, í fyrsta
sinn á ævinni, skil ég hvað þær
eiga við,“ segir söngkonan í viðtali
við tímaritið. „Ég hef ekki enn lagt
hælaskóna til hliðar og finnst alveg
frábært að þramma á þeim um göt-
ur borgarinnar með bumbuna út í
loftið. Mér hefur aldrei fundist ég
kynþokkafyllri.“ Í viðtalinu missir
Jessica út úr sér hvert kyn barnsins
er en hún bíður spennt eftir stúlku-
barni.
Tónleikar Unga kynslóðin
Logi og Sveppi kynna sumarið inn í Hörpu
a llar helstu poppstjörnur ungu kynslóðarinnar munu koma fram á
stórtónleikum
á sumardag-
inn f y rst a ,
fimmtudag-
inn 19. apríl
í Hör p u .
Þ e t t a e r
í f y r s t a
skipti
sem þær koma saman í þessu stór-
kostlega tónlistarhúsi og ljóst að
það verður heldur betur heitt í kol-
unum. Tónleikarnir verða haldnir
klukkan 15 og mun miðasala hefj-
ast þann 23. mars á harpa.is.
Páll Óskar Hjálmtýsson, Steindi
Junior og Bent, Jónsi og Gréta Sal-
óme, Ingó Þórarins, Jón Jónsson,
Friðrik Dór og nýstirnin í Blár
Ópall munu flytja sín vinsælustu
lög. Það eru snill-
ingarnir Sverr ir
Þór Sver r isson,
betur þekktur sem
Sveppi, og L ogi
Geirsson sem munu
kynna tónleikana og
aldrei að vita nema
þeir bresti í söng
í miðjum klíðum.
Ásamt þeim öllum
kemur fram her
dansara undir stjórn
S ig r úna r Bi r nu
Blomsterberg.
Einar Bárðarson, skipu-
leggjandi tónleikanna, segir
í samtali við Fréttatímann að
það hafi vantað tónleika fyrir
ungu kynslóðina. „Með þessu
frábærum listamönnum telj-
um við okkur vera að svara
ákveðinni eftirspurn sem hef-
ur myndast að undanförnu,“
segir Einar. -óhþ
Steindi jr treður
upp ásamt félaga
sínum Bent.
Logi Geirsson mun kynna
tónleikana ásamt Sveppa.
Einar Bárðarson
stendur fyrir tónleik-
unum.
dægurmál 65Helgin 9.-11. mars 2012