Fréttatíminn - 09.03.2012, Síða 70
Rakel SólRóS Fékk tækiFæRi í london
Halldór Halldórsson, rappari og
uppistandsgrínari með meiru, betur
þekktur sem Dóri DNA, hefur hafið
störf sem hugmynda- og textasmiður
hjá auglýsingastofunni Fíton. Honum
er væntanlega ætlað að fylla að ein-
hverju leyti skarðið sem baggalútur-
inn Bragi Valdimar Skúlason skildi
eftir sig hjá stofunni þegar hann hætti
þar um áramótin. Dóri er tónelskur
brandarakall eins og Bragi þannig að
fjörið á Fíton er það sama og áður.
Dóri er barnabarn Halldórs Laxness
og listamannsnafnið er vísun í þau
merku gen.
Nóbelsgen til Fíton
Ari flytur til
mömmu Jóns
Ari Edwald, forstjóri 365,
hefur fundið nýtt húsnæði fyrir
sig, unnustu sína Gyðu Dan
Johansen og ófætt barn þeirra.
Hann mun flytja á Laufásveg
69, hús sem var áður í eigu
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar,
eiginmanns stærsta hluthafa
365, en er nú í eigu móður hans
Ásu Karenar. Iðnaðarmenn
vinna nú hörðum höndum að
því að gera húsið upp svo það
hæfi forstjóranum og hans
frú. Meðal nágranna Ara eru
Stefán Hilmar Hilmarsson,
framkvæmdastjóri hjá 365,
Skúli Skúlason í Subway og
Helga S. Guðmundsdóttir,
kvótadrottning frá Akureyri.
Asgeir Asgeirsson
fær ekki vinnu
Leikarinn Damon Younger hefur vakið mikla
athygli fyrir frammistöðu sína í myndinni Svartur
á leik sem frumsýnd var í síðustu viku. Þótt nafnið
gefi annað til kynna þá er Younger rammíslenskur
ungur maður að nafni Ásgeir og er Ásgeirsson.
Ástæða nafnabreytingarinnar ku vera sú að þegar
Ásgeir var við leiklistarnám í Bretlandi gaf skóla-
stjórinn sig á tal við hann og benti honum á að
fáir myndu vilja ráða leikara sem bæri það óþjála
nafn Asgeir Asgeirsson. Ásgeir tók skólastjórann á
orðinu, kastaði Ásgeirsnafninu og heitir nú Damon
Younger, hérlendis sem erlendis.
Bara það að vera komin með
fótinn inn fyrir dyrnar þarna er
frábært tækifæri.
Rakel Sólrós fór leynt með að hún væri í hópi
þeirra hundrað sem öttu kappi um starf hjá
Carmel Clothing og sagði foreldrum sínum
ekkert fyrr en hún hafði fengið starfið en þá
var fagnað ákaft á Skype.
Hannar föt
fyrir Topshop
Rakel Sólrós Jóhannsdóttir starfaði á Íslandi í eitt ár eftir að hún útskrifaðist sem fatahönnuður
frá Listaháskóla Íslands. Henni fannst tækifærin fá og ákvað því að halda á vit ævintýranna í
London þar sem hún vinnur nú hjá Carmel Clothing sem hannar fyrir Topshop, Primark, For-
ever 21, New Look og fleiri tískufyrirtæki.
é g var mjög heppin að fá þessa vinnu þar sem ég var valin úr hópi
hundrað umsækjenda eftir
tvö viðtöl og einn prufudag,“
segir Rakel Sólrós fatahönn-
uður. „Eftir útskriftina vann
ég í eitt ár hjá Farmers Mar-
ket í almennum verslunar-
störfum og við að aðstoða
yfirhönnuðinn. Á sama tíma
seldi ég mína eigin hönnun
sem ég saumaði á kvöldin
í Leynibúðinni á Lauga-
vegi. Ég sá ekki fram á að
nein raunveruleg tækifæri
væru í sjónmáli á Íslandi og
planið var því alltaf að fara til
London.“
Rakel lét verða af því í sept-
ember og byrjaði í starfsnámi
hjá „high street“ fyrirtækinu
Goldie London. „Þetta var
þriggja mánaða starfsnám sem
ég fékk Leonardo-styrk til að
stunda. Sem kom sér mjög
vel vegna þess að þetta var
ólaunað. Ég ákvað svo að hætta
þar vegna þess að alveg eins
og heima sá ég ekki fram á að
það væri neitt að fara að gerast.
Í janúar fór ég svo á fulla ferð
í atvinnuleit og var í því alla
daga í tæpa tvo mánuði.“
Í kjölfarið fékk hún svo þetta
kærkomna tækifæri. „Bara það
að vera komin með fótinn inn
fyrir dyrnar þarna er frábært
tækifæri og ekkert á allra
færi þannig að ég er rosalega
hamingjusöm. Þetta fyrirtæki
hannar fyrir þessi stóru tísku-
fyrirtæki Topshop, Primark,
Forever 21 og New Look. Það
er bara horft á hvað er vinsæl-
ast og efst á baugi á tískusýn-
ingunum. Við vinnum út frá því
sem er að gerast í bransanum,
samkvæmt pöntunum fyrir-
tækjanna. Allt keyrir þetta á
peningum og snýst um að átta
sig á því hvað selst og hvað er
í tísku. Þetta er mjög hraður
bransi og á hverjum einasta
degi setjum við tíu til tuttugu
tilraunaflíkur í vinnslu og það
eru fundir oft í viku með stóru
viðskiptavinunum þannig að
það er alltaf mikið fjör.“
Carmel Clothing sérhæfir
sig í jökkum og kápum en
Rakel segir þau einnig fást við
buxur og kjóla. „Þetta hentar
mér mjög vel þar sem ég var
mikið til með jakka í útskriftar-
línunni minni þannig að ég er
alveg á réttum stað eða í það
minnsta að stefna í rétta átt.
Rakel ákvað að segja engum
nema kærastanum sínum frá
því að hún væri í umsóknar-
ferli hjá Carmel Clothing þar
sem hún hafði sterkt á tilfinn-
ingunni að hún myndi kalla
ógæfu yfir ferlið ef hún talaði
mikið um það. „Ég þurfti bara
að ljúga því að fólki að ég væri
enn að leita að vinnu. Þetta tók
þrjár vikur frá því ég sótti um.
Fyrst fór ég í viðtal, síðan vann
ég einn prufudag og fór svo í
annað viðtal. Og það var mikil
bið á milli,“ segir Rakel sem
sér ekki eftir því að hafa tekið
skrefið og farið á vit ævintýr-
anna í London.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
TILBOÐ
á 1 lítra
Kókómjólk
R ithöfundurinn Stefán Máni er kominn langleiðina með nýja bók sem stefnt er að
komi út fyrir næstu jól. Ekki er
um að ræða glæpasögu líkt og
í undanförnum þremur bókum
hans heldur situr hann sveittur
og skrifar sálfræðitrylli. „Ég er að
mörgu leyti á svipuðum slóðum og
í Skipinu,“ segir Stefán Máni í sam-
tali við Fréttatímann þegar hann
er beðinn um að lýsa bókinni. „Það
eru mörg sjónarhorn, illir andar
og draugar. Þetta er sálfræðitryllir
sem fjallar um algjöran geðsjúkl-
ing sem mjög skemmtilegt er að
skrifa,“ segir Stefán Máni og bætir
við að Hörður Grímsson, risinn
rauðbirkni sem verið hefur í aðal-
hlutverki í tveimur síðustu bókum
hans, Hyldýpi og Feigð, verði
einnig í bókinni og berjist við eigin
forynjur og aðrar.
Og þetta er ekki stutt bók. „Ég er
nú ekki alveg búinn en það stefnir í
að þetta verði doðrantur. En hún er
hröð og auðlæsileg. Ég er reyndar
að fara á taugum sjálfur við skrift-
irnar og ligg oft andvaka. Ég hef
verið í sambandi við mann hefur
reynslu af andsetningu, hann er
með handbærar sannanir fyrir því
að dóttir hans hafi verið andsetin og
það er óhugnanlegt,“ segir Stefán
Máni.
Kvikmyndin Svartur á leik sem
er gerð eftir samnefndri bók hans
hefur heldur betur slegið í gegn í
kvikmyndahúsum og Stefán Máni
segir að hann sé kjaftstopp yfir mót-
tökunum. „Þetta er yfirþyrmandi
ánægja og fullkomlega umfram
væntingar. Viðtökurnar frá áhorf-
endum og gagnrýnendum hafa verið
frábærar og það skiptir miklu máli
fyrir íslenska kvikmyndagerð að fá
svona mynd sem fellur vel í kramið.“
Og gott gengi Stefáns Mána ein-
skorðast ekki bara við Ísland því í
næsta mánuði kemur Svartur á leik
út í Frakklandi. „Þar er mitt sterk-
asta vígi. Útgáfurétturinn á Feigð
var seldur þangað á dögunum. Ég
fer til Frakklands einu sinni á ári og
er til að mynda á leiðinni þangað út í
maí,“ segir Stefán. Aðspurður hvort
hann tali frönsku segir Stefán Máni
að hann sé lítill tungumálamaður.
„Ég nota bara túlk. Það hefur gengið
hingað til.“
BækuR RithöFunduRinn SteFán Máni
Skrifar sálfræðitrylli og er sjálfur að fara á taugum
Stefán Máni liggur skjálfandi uppi í
rúmi um nætur vegna eigin skrifa. Ljós-
mynd/Hari
66 dægurmál Helgin 9.-11. mars 2012