SÍB-blaðið - 01.12.2006, Page 12
UIÐTfiL
Nýlega var tilkynnt um ráöningu mannauðsstjóra hjá Glitni en hiö hefðbundna starfsheiti
starfsmannastjóri dettur út úr skipuritinu. Hvaða áherslubreyting fylgir þessum titli og
hvernig mun hún birtast starfsmönnum? SÍB-blaðið leitaði svara við þessum spurningum.
Mannauðsstjórar Glitnis bregðast við metnaðarfullum vexti bankans:
Byggja upp sterkt leiðtogateymi
litnir banki hefur
breyst og staekk-
að afar ört síðast-
liðin misseri, frá því
að vera tiltölulega hefðbundinn
banki með aðaláherslu á Island,
í alþjóðlega fjármálasamstæðu
með starfsemi víða um heim. í
dag er heimamarkaður bank-
ans skilgreindur sem ísland og
Noregur en bankinn er með starf-
semi, í gegnum dótturfélög eða
útibú, í Englandi, Lúxemborg,
Danmörku, Svíþjóð, Kanada og
Kína. Hjá bankanum starfa alls
um 1.500 manns.
Til þess að mæta metnað-
arfullum vexti og markmiðum
Glitnis var orðið brýnt að end-
urskipuleggja mannauðsmálin.
Markmiðið er að gera málaflokk-
inn sýnilegri og markvissari, auka
skilvirkni og samþættingu auk
þess að búa enn frekar í haginn
fyrir frekari vöxt bankans. Með
nýja skipulaginu er verið að færa
mannauðsmálin nær viðskipta-
einingunum.
Nú starfa þrír mannauðs-
stjórar hjá bankanum sem
skipta með sér ábyrgð eftir við-
skiptaeiningum og verkefn-
um. Hafsteinn Bragason sinn-
ir íslandi ásamt teymi sem í eru
Sigrún Ólafsdóttir og Marteinn
Tausen. Elfar Rúnarsson stýr-
ir mannauðsmálum utan heima-
markaðar bankans, íslands og
Noregs. Frank Ove Reite hef-
ur mannauðsmál í Noregi á sinni
könnu og er með ráðgjafa sér
til aðstoðar við leiðtogaþróun.
Við bætist þróunarsvið bankans,
sem stofnað vár fyrr á þessu ári,
sem kemur að samþættingu og
samræmingu mannauðsmála
allrar samstæðunnar, t.d. innleið-
ingu gilda og vinnustaðagrein-
ingu. Helgi Rúnar Óskarsson
veitir þróunarsviði forstöðu og er
að byggja upp 3-4 manna teymi
sem hefur yfirsýn yfir sviðið og
tekur inn nýjungar. Launadeildin,
hinn praktíski hluti mannauðs-
mála, var klofin frá mannauðs-
sviði og tilheyrir rekstrarsviði.
Þeir þremenningar, Hafsteinn,
Elfar og Helgi, sitja hver í sínu
lagi framkvæmdastjórnarfundi
viðskiptaeininga bankans sem
„fullgildir11 meðlimir. Saman hit-
tast þeir reglulega og ræða inn-
leiðingu nýrra hugmynda og
annað sem viðkemur mannauðs-
málum samstæðunnar. Hér á eft-
ir fer viðtal við þá þremenninga
þar sem einn svarar fyrir alla og
allir fyrir einn.
Brugðist við miklum vexti
- Hver er helsti munurinn á
hefðbundinni starfsmannastjórn-
un og mannauðsstjórnun?
„í fyrsta lagi erum við að inn-
leiða nýtt fyrirkomulag sem
ekki hefur verið stuðst við
hér á landi áður en er þekkt í
Bandaríkjunum. Almennt liggur
munurinn fyrst og fremst í því að
við erum að byggja upp og þróa
leiðtoga í fyrirtækinu sem eiga
jöfnum höndum að geta hald-
ið áfram að byggja upp þann
mannauð sem er í fyrirtækinu. Ef
við erum með sterkan hóp leið-
toga getur sá hópur byggt upp
lykilfólk sem á að skila bank-
anum og viðskiptavinum hans
verðmætum. Glitnir hefur vax-
ið gríðariega undanfarin ár og
samkeppni um gott fólk er allt-
af að aukast. Það eru tvær leið-
ir til að nálgast og þróa góða
starfsmenn, að finna þá ann-
ars staðar og bjóða þeim vinnu
hér eða þróa þá innan fyrirtækis-
ins. Fyrirtæki sem vaxa eins hratt
og Glitnir þurfa eðlilega að fara
báðar leiðir. Við þurfum að ráða
nýtt fólk sem getur skapað verð-
mæti fyrir bankann en að sama
skapi þurfum við að leggja alúð
og vinnu í að byggja upp þann
hóp fólks sem við höfum og
hefur sinnt vexti bankans fram
að þessu. Það er mikil gerjun í
mannauðsmálum í bankanum og
spennandi tímar framundan."
Ásókn í gott fólk á sér stað á
öllum starfssvæðum enda hefur
bankinn verið í örum vexti.
„Breytingar á mannauðs-
stjórnuninni kalla á samhæfð-
ar og samræmdar áherslur milli
landa svo allt starfsfólk okk-
ar gangi í takt og vinni eftir þeim
gildum sem bankinn stendur fyrir.
Við eigum að stuðla að skilningi
á þessum gildum og að unnið
Skipulag Mannauðsmála
GLITNIR
Mannauðsstjórnun I Mannauðsstjórnun
Utan heimamarkaða I Noregur og Svíþjóð
TALENT
COUNCIL
Samþætting
og framþróun
árangursrikrar
mannauðs-
stjórnunar
12