SÍB-blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 14

SÍB-blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 14
UIÐTRL Öflugur trúnaðarmaður á vinnustað - undirstaða góðs starfsanda á breytingatímum Hulda Styrmisdóttir hefur undanfariö eitt og hálft ár lagt stund á fjarnám í ráögjöf og breytingastjórnun við Insead viöskiptaháskólann í Frakklandi og mun útskrifast með diploma í klínískri fyrirtækjasálfræði nú í desember. Samhliða náminu hefur Hulda unnið sem stjórnendaráðgjafi, m.a. í tengslum við breytingar hjá Reykjavíkurborg. Á árunum 1998-2004 starfaði Hulda sem forstöðumaður hjá FBA og framkvæmdastjóri hjá íslandsbanka. Þar áður starfaði hún m.a. sem ráðgjafi hjá VIB, frétta- maður á Stöð 2, starfsmannastjóri á Hótel Sögu og markaðsráð- gjafi. Hún útskrifaðist með BA próf í hagfræði frá Brandeis háskóla í Bandaríkjunum 1988 og með MBA próf frá Insead árið 1992. Að sögn Huldu er mikil áhersla lögð á sálfræði einstaklinga í nám- inu sem hún stundar nú á Insead enda byggir kennslan á þvi grund- vallarviðhorfi að öll fyrirtæki samanstandi af einstaklingum og sálarlíf þeirra hafi þar af leiðandi áhrif á starfsanda og árangur fyrirtækjanna. í byrjun nóvember hélt Hulda erindi á vinnudegi trúnaðarmanna Glitnis. í kjölfarið á því tók SÍB blaðið viðtal við hana, m.a. um áhrif breytinga á vinnustöðum og hvaða hlutverki trúnaðarmenn geta gegnt við slíkar breytingar. Af hverju skiptir það máli fyr- ir trúnaðarmenn að kynna sér breytingastjórnun og áhrif breyt- inga á vinnustaðinn og líðan starfsmanna? Ég tel að trúnaðarmenn geti gegnt lykilhlutverki í því hvernig til tekst með breytingar á vinnu- stað. Verkefni trúnaðarmanna eru þess eðlis að starfsmenn líta til þeirra um ráð og leiðbeining- ar og á óvissutímum sem allt- af skapast í kjölfar breytinga er þetta leiðtogahlutverk sem trún- aðarmenn gegna ennþá mikil- vægara en ella. Hvað áttu við með leiðtogahlut- verk - ég er ekki viss um að allir trúnaðarmenn líti á sig sem leið- toga. Þeir eru jú ekki stjórnendur. Það er ekki það sama að vera leiðtogi og vera stjórnandi. Hlutverk stjórnanda er að sjá til þess að skipulag og verkefni séu í réttum farvegi og að starfs- menn nýti hæfni sína vel. Hann hefur oftast formlegan titil og formlegt áhrifavald og fær þann- ig fólk til að hlýða sér. Leiðtogi hins vegar getur verið hvar sem er í fyrirtæki. Hann þarf ekki að hafa formlegan titil eða form- legt áhrifavald, heldur er ósköp einfaldlega kona eða maður sem gengur fram fyrir skjöldu í ákveðnu máli, lýsir því hvert skal stefna og er tilbúin til að taka ábyrgð. Ef aðrir eru tilbúnir til að 14

x

SÍB-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍB-blaðið
https://timarit.is/publication/979

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.