SÍB-blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 19

SÍB-blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 19
 ‘•v Elin Sigfúsdóttir: "Fjármáiafyrirtækin eru eftirsóttur vinnustaður sem margir vilja byrja starfsferit sinn í. Störfin eru orðin mun fjölbreyttari og skemmtilegri og starfsmaðurinn kynnist mörgum hliðum atvinnulífsins." um koma þá eru þeir úr þessum karllægu menntagreinum. Þegar ég hóf nám í viðskiptafraeði þá var langstærsti hluti nemenda karlar. Ekki einskorðast málið samt við menntunina. Ástæðuna má kannski einnig finna í að karl- maður ræður karlmann frekar en konu, alveg eins og kona ræður frekar konu og þegar nánast all- ir stjórnendur eru kariar þá er lík- legt að þeir ráði fleiri karlmenn. Þetta er nú samt ástæða sem ég held og vona að sé á miklu und- anhaldi. Annað sem vert er að minn- ast á er vinnuálag og áhugi á fjármálum. Það virðist sem svo að karlmenn hafi meiri áhuga á fjármálum heldur en konur, hvað sem veldur. Sjálfsagt verður að fara vel aftur í tímann og rann- saka fjölskyldumynstrið til að fá skýringar á þessu atriði. Varðandi vinnuálag stjórn- enda hvort sem það er í banka- kerfinu eða í öðrum stórum fyr- irtækjum þá er það er gifurlega mikið. Þjóðfélagið er því mið- ur dálítið enn þannig að það er konan af tveimur aðilum sem reka heimili og ber meiri ábyrgð á heimilisrekstrinum sem ger- ir það að verkum að auðveldara er að vera karl í stöðu sem kall- ar á mikla vinnu og fjarvistir frá heimilinu. Ég hef enga trú á að vöntun á kvenstjórnendum í bönkum sem og annars staðar né að karlmenn hafi eitthvað á móti konum. [ Landsbankanum er aldrei ver- ið að velta upp hvort umsækj- andinn sé karl eða kona. Við leit- um að hæfasta einstaklingnum hverju sinni og ef við tökum úti- bússtjóra, sem eru á næsta þrepi fyrir neðan framkvæmdastjóra ásamt forstöðumönnum, þá eru margir útibústjórar konur og ég held mér sé óhætt að segja að flestar nýjustu ráðningar í stöðu útibústjóra hjá okkur séu kon- ur. Og í sambandi við forstöðu- mannsstöður þá eru konur ráðn- ar í auknum mæli. Ég efast ekki um að samræming náist í þess- um málum, en það tekur tíma.“ Elín er eina konan í fram- kvæmdastjórastöðu í Landsbankanum, hvernig skyldi það nú vera er að starfa að mestu með karlmönnum: „Ég er búinn að starfa svo lengi með karlmönnum að ég hugsa aldr- ei um að þeir séu eitthvað öðru- vísi en ég. Þetta eru vinnufélag- ar mínir og hvort sem það eru karlar eða konur skiptir mig engu máli. Ég þekki ekkert annað en að vinna á jafnréttisgrundvelli og ég get ekki betur séð en að ég passi allstaðar inn í kerfið." SÍB og bankinn Þorri starfsmanna Lands- bankans eru félagsmenn í SÍB, er hagræði í slíku fyrirkomu- lagi? „Ég hef ekkert nema gott um SÍB að segja. Stéttarfélagið er gott í báðar áttir, gott fyrir félagsmennina og einnig gott fyr- ir stjórnendur bankanna. Það er sjaldan sem málin eru ekki leyst á vettvangi SÍB. Ég hef alltaf ver- ið þeirrar skoðunar að betra sé að leysa málin áður en farið er í hart og það sjónarmið virðist vera einnig hjá SÍB, sem er mjög jákvætt og hefur komið félags- mönnum til góða.“ Elín er spurð í Ijósi umræðu um mismunandi laun kynjanna á vinnumarkaði hvernig hún sjái fyrir sér að SÍB geti unnið með jákvæðum hætti að því að jafna hlut kynjanna í launum og í stjórnunarstöðum: „Ég veit ekki betur en að bankakerfið borgi sömu laun fyrir sömu störf og að ekki sé neinn mismunur gerður milli kynjana og kæmi það mér á óvart ef svo er. Svo er það stað- reynd að konur í gegnum tíð- ina í bankakerfinu raðast í lægri launaflokka. Ef við tökum gjald- kera sem dæmi þá er mjög lít- ið um að karlmenn ráði sig í slíkt starf og svo er einnig um fleiri störf sem eru í lægri launaflokk- um. Menntun bankastarfs- manna eykst Menntun hefur aukist í þjóð- félaginu í heild og svo er um menntun bankastarfsmanna: „Bankarnir þurfa á mennta- fólki að halda. Störfin eru allt- af að verða flóknari. Ef við tök- um þjónustufulltrúastarfið sem dæmi, þá er það ekki leng- ur afgreiðslustarf heldur orðið meira ráðgjafastarf og þá skipt- ir þekking miklu máli. Þá má ekki gleyma því að starf í banka er orðið mjög eftirsótt og hægt er að velja úr hæfu fólki í stöðurn- ar. Þegar ég byrjaði að vinna í banka þá þótti gott að vera þar vegna starfsöryggis. Bankarnir voru ríkisfyrirtæki og starfið gott upp á eftirlaunaréttindi, en launin sjálf voru lág og þar sem ég var þaulsætin innan bankans fannst mörgum það skrýtið að ég skyldi ekki vera löngu búin að koma mér fyrir annarsstaðar þar sem mörgum stórum einkafyrirtækj- um þótti gott að fá til sín fólk með reynslu úr banka. í dag er staðan öðruvísi. Fyrir háskólamenntað fólk, sérstak- lega innan ákveðinna greina, þá eru fjármálafyrirtækin eftirsótt- ur vinnustaður sem margir vilja byrja starfsferil sinn í. Störfin eru orðin mun fjölbreyttari og skemmtilegri og starfsmaðurinn kynnist mörgum hliðum atvinnu- lífsins. Fyrir háskólamenntaðan einstakling að koma inn í banka þá eru möguleikarnir miklir. Eftir veru á íslandi getur leið starfs- manns í Landsbankanum legið til London, Parísar, Luxembourg eða annarra borga þar sem Landsbankinn rekur útstöðvar, og það finnst mörgum mjög eft- irsóknarvert." Vinnan og fjölskyldan Elín vinnur mikið og er mik- ið á ferðinni, hvernig gengur að samræma fjölskyldulífið og vinn- una? „Það gengur vel í dag, enda börnin mín þrjú orðin stálp- uð. í upphafi vann ég ekki fulla vinnu. í mörg ár vann ég 70- 80% vinnu og var mjög hepp- in að því leytinu til að ég gat haft meiri sveigjanleika held- ur en margir aðrir, þar sem eg vann í stoðdeild. Þetta hentaði mjög vel þegar börnin voru ung. Ég átti börnin mín á fimm árum og það er í raun ekki fyrr en yngsta barnið er orðið 12 ára að ég fer að bæta verulega við mig í vinnu. í dag ferðast ég mikið, sem ég gerði ekki áður og hefði ekki getað gert þegar börn- in voru yngri. Það er vissulega aukið álag að vera mikið á ferð- inni en um leið skemmtilegt og ef maður er svo heppinn að vera hraustur." Elín á sér samt líf eftir vinnu og hafa hún og eiginmað- ur hennar Oddur Einarsson gaman af að ferðast innan- lands og utan. „Við förum á fjöll á sumrin og einnig á veturna ef viðrar og svo á fjölskyldan sum- arbústað þar sem er gróðursett og þá er um að gera að njóta útiverunnar til fulls.“ /hk 19

x

SÍB-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍB-blaðið
https://timarit.is/publication/979

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.