SÍB-blaðið - 01.12.2006, Síða 20
FÉLRGsmEnn
Starfsmannafélag SPRON
Starfsmannafélag SPRON (SF-SPRON) var stofnað árið 1980 og er
því orðið 26 ára. í félaginu eru 262 starfsmenn SPRON og dótturfélaga
en þeim hefur fjölgað hratt á þessu ári vegna mikils vaxtar SPRON.
Starfsmannafélagið starfrækir fjórar nefndir auk stjórnar, Mikið
af starfi félagsins er unnið á vegum nefndanna en stjórnin sér um að
samhæfa starfið
Orlofshúsanefnd
Sér um að starfsmenn SPRON komist í nauðsynlegt frí reglulega
eða það er að segja, sér um að leigja/úthluta starfsmönnum sumar-
húsum og íbúðum á hagstæðu verði. í dag hafa starfsmenn spron til
umráða tvo sumarbústaði og eru þeir vel búnir og með heitum pott-
um. Einnig hefur SPRON tekið á leigu tvær íbúðir við góðar undir-
tektir starfsmanna, önnur þeirra er staðsett innanlands og hin erlend-
is. Það má segja að íbúðin erlendis hafi vakið mikla lukku og er hún í
stanslausri notkun allt árið í kring.
Náms- og kynnisferðasjóður (NOK)
Sjóðurinn styrkir nokkra starfsmenn á ári til að fara á námskeið, í
kynnisferðir eða að fræðast á annan hátt, einkum á sviði viðskipta og
fjármála, innanlands eða erlendis. Þessir styrkir hafa verið mikið nýtt-
ir til námsferða í skóla erlendis og er þá dvalið í 2-3 vikur og starfs-
maðurinn á launum frá fyrirtækinu á meðan.
Jafnréttisnefnd
Nefndin skal hafa yfirsýn yfir lög og reglur stjórnvalda um jafnrétt-
ismál kynjanna og fylgjast með breytingum á þeim. Þá skal hún fylgj-
ast með framkvæmd jafnréttisáætlunar SPRON og kanna réttmæti
ábendinga um að ekki sé farið að lögum eða reglum um jafnrétti í
20