SÍB-blaðið - 01.12.2006, Síða 21

SÍB-blaðið - 01.12.2006, Síða 21
f! *%«on sparisjóðnum. í nefndinni sitja tveir starfsmenn valdir af starfsmönn- um, og tveir starfsmenn fyrir hönd fyrir SPRON. Skemmti- og íþróttanefnd Hefur það hlutverk að skipuleggja ýmsar uppákomur og afþrey- ingu fyrir starfsmenn, maka þeirra og börn utan vinnutíma. Það er yfirleitt mikið um að vera hjá okkur sem störfum hjá SPRON, bæði sem fyrirtækið stendur fyrir og einnig ýmislegt sem nefndin sér um að skipuleggja. Snemma á árinu, þá brydduðum við upp á þeirri nýjung að halda kaffihúsakvöld við ágætis undirtektir. Við héldum glæsilega árshátið á Hótel Nordica 18. mars s.l, og var auðvitað mjög góð mæting og mikið stuð, eins og er reyndar alltaf hjá okkur á árshátíðum. Það var enginn annar en hann Magni “okkar” og hljómsveit hans, Á móti sól, sem hélt uppi stanslausu stuði langt fram á nótt og var dansgólfið aldrei autt meðan þessir stuðboltar spiluðu. [ sumar héldum við veglega fjölskylduhátið í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum og var mæting mjög góð þrátt fyrir rigningu og frek- ar leiðinlegt veður en foreldrar og börn skemmtu sér hið besta í íslensku rigningunni. í sumar var haldin golfkennsla fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra í hinum nýju flottu básum á Golfvellinum í Grafarholti en hjá Spron eru ansi margir liðtækir við að sveifla golfkylfunni og í framhaldi af því var síðan haldið golfmót á golfvellinum á Flúðum í haust. Það voru rúm- lega 20 sprækir starfsmenn, makar og börn sem mættu til leiks að morgni dags í blíðskapar veðri, 20 stiga hita og sól. Það var spilað svokallað Texas Scramble form og var mikil ánægja með það því þá gátu óvanir eða þeir sem eru að byrja í golfinu tekið þátt líka. Mótið heppnaðist mjög vel og var því slitið með glæsilegum kvöldverði í golfskálanum. Síðustu ár hafa nokkrir gönguglaðir starfsmenn skipu- lagt gönguferðir upp um fjöll, aðallega stór fjöll og má þar nefna m.a. Fimmvörðuháls, Heklu, Núpsstaðaskóg að Grænalóni og Hvannadalshnúk. Gönguhópurinn fer stækkandi með hverju árinu enda hin besta skemmtun og afar endurnærandi að bregða sér í góða göngu. [ ár ákváðum við að hafa jólahlaðborðið með breyttu sniði og fóru starfsmenn ásamt mök- um á jólahlaðborð á Broadway og snæddu þar dýrindis jólamat og sáu hina flottu Tina Turner sýningu við góðar undirtektir. Hið árlega jólaball fyr- ir yngstu kynslóðina höldum við þann 17. desember á Grand Hotel. Þar kemur umrædd Tina Turner í gervi Siggu Beinteins og skemmtir ásamt jólasveinum og hafa jólaböllin hjá okkur alltaf verið mjög vinsæl af yngstu kyn- slóðinni sem eldri og vel sótt. Við eigum skemmtilegt ár framundan þar sem Spron verð- ur 75 ára og stendur til að halda til London og halda árshátíð- ina þar og er undirbúningur hjá okkur í fullum gangi. Það er heilmikil vinna að púsla þessu öllu saman þegar farið verð- ur erlendis með 400 manns en þetta verður örugglega glæsilegt og mikið fjör eins og alltaf þeg- ar Spronarar koma saman og skemmta sér. Anna Kristín Björnsdóttir Formaöur starfsmannafélags SPRON Guðmunda Ingimundardóttir. Formaður íþrótta-og skemmtinefndar SF- SPRON 21

x

SÍB-blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍB-blaðið
https://timarit.is/publication/979

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.