SÍB-blaðið - 01.12.2006, Síða 24
Þess vegna er betra ,
AÐ VERA FÉLAGSMAÐUR í SIB!!
• GÓÐ LÍFEYRISRÉTTINDI - Hefðbundinn hlutfallssjóður eða stigasjóður + 7%
viðbótarframlag atvinnurekanda í séreignarsjóð án mótframlags starfsmanns eftir þriggja ára
starf innan kjarasamnings SÍB. Einnig 2+2% í séreignarsjóð fyrir alla.
•LAUNATOFLUR - sem verða til í kjarasamningum og gefa raunhæfa mynd af launakjörum
meirihluta félagsmanna.
• ORLOFSFRAMLAG - 118.291 kr. fyrir alla fastráðna starfsmenn. Ýmist greitt út í júní eða
jafnað á 12 almanaksmánuði (sjá launatöflu B).
• 13. MÁNUÐUR - auka mánaðarlaun fyrir alla fastráðna starfsmenn. Ýmist greiddur út í
desember eða jafnað á 12 almanaksmánuði (sjá launatöflu B).
• LÍF- OG SLYSATRYGGING - skv. kjarasamningi fyrir fastráðna starfsmenn - allan
sólarhringinn, og gildir alls staðar í heiminum.
• STYRKTARSJÓÐUR - sem greiðir sjúkradagpeninga að loknum veikindarétti auk styrkja
vegna forvarnaaðgerða.
• VEIKINDARÉTTUR -fjórir og hálfur til tólf mánuðir, eftir starfsaldri, fyrir fastráðna
starfsmenn.
• FÆÐINGARORLOF - sem tryggir fastráðnum starfsmönnum full laun í fæðingarorlofi.
• MENNTUNARSJÓÐUR - sem endurgreiðir um helming námsgjalda við starfstengt nám.
• FJÖLSKYLDUVÆNN VINNUTÍMI - hjá meirihluta félagsmanna
Og síðast en ekki síst:
RAUNVERULEG AÐSTOÐ STÉTTARFÉLAGSINS
við félagsmenn sem þurfa að leita réttar síns s.s. aðstoð og leiðsögn vegna óvæntra mála,
vegna uppsagna eða lögfræðimálefna.
SÖFNUN UPPLÝSINGA UM KJARAMÁL
og úrvinnsla til undirbúnings kjarasamninga og vegna upplýsinga til félagsmanna.
LÆGSTU STÉTTARFÉLAGSGJÖLD
- einungis 0,7% af grunnlaunum og þar af fer 0,2% beint í Vinnudeilusjóð.
Kynntu þér réttindi þín og skyldur sem fram koma
í kjarasamningum SÍB á www.sib.is