Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.1921, Síða 8

Læknablaðið - 01.03.1921, Síða 8
38 LÆKNABLAÐIÐ Og hvar eiga svo börnin a'S vera? Fyrst um sinn getur ekki veriö um annað að ræða, en að koma þeim fyrir á heilbrigöum heim'ilum. Ekki er það ólíklegt, aö margir veröi ófúsir á aö taka slík börn á sín heimili, sérstaklega ef ung börn eru þar fyrir, því erfitt er fyrir lækni aö ábyrgj- ast, aö ]>aö sé hættulaust og flestir hafa nóg með sift. Eftir lögunum er enginn skyldur til þess. Eg er alvarlega hræddur um, að framkvæmd þessa reynist erfið, og er þó um gott mál aö ræða. Ef ókleift reyndist að koma börnunum fyrir á góðum heimilum, verður ekki um annað aö gera, en að koma á fót sérstökum1 barnaheimilum í hverju læknishéraöi og mætti þá auövitað hafa ])ar fleiri börn en frá Veikindaheimilum. Nefndin gerir að vísu ekki ráð fyrir, að fyrst um sinn komist slík heimili upp nema í Rvik, en nokkur ástæða er til þess að óttast, að hvervetna verði erfitt að ráðstafa börnunum, meðan ekki eru til barnaheimili, sem njóta góðs álits hjá almenriingi. Aðgætandi er, að börnin verða miklu flei.ri en nefndin hefir gert ráö fyrir. — Aftur get eg ekki lagt mikið upp úr sumarhælum barna, síst fyrir aðra en Reyk- víkinga. Á sumrin eru börain' úti og miklu betur sett en á vetrum. Hvað á svo að gera við þau yfir veturinn, hættulegasta tímann? Þá er þriöji erfiðleikinn og hann hvað mestur. Hæjtt er viö, að flestir foreldrar leggist á móti því með hnúum og hnefum, að börn séu tekin frá þeim. Kæmi því þaö ákvæði jafnaðarlega til greina, að skera úr hve nær „mikil hætta“ sé á smitun og mikil er húri ætíö, ef börn eru samvist- um við smitandi sjúkl. í sama herbergi, ekki síst svo litlu sem baðstofur vorar eru. Eg skal ekki miklu spá um ])að, hveru tækiist aö framkvæma þetta, en mikil hætta er á því, að hlífst yröi viö ])ví aö taka börnin og ekki ólíklegt, ef því væri harðlega framfylgt, aö slíkt leiddi til þess, að forðast yrði í lengstu lög aö leita sér læknishjálpar. — Að eg lit svo svart á þetta, sprettur af reynslu tninrii viö holdsveika o. fl. Vera má að öðrum gangi betur nú. Þá er annað atriðiö: Sjúklingarnir. Lögin segja, að þeir eigi að fá „ókeypis vist í heilsuhælum, sjúkraskýlum eða sumarhælum barna“. Að miklu leyti getur ])etta ekki komið til framkvæmda að svo stöddu, vegria þess, að húsnæði og annan undirbúning vantar. Hvað heilsuhæli snertir, erum vér betur á vegi staddir en flestar aði-ar þjóðir* og þó hrekk- ur það skamt. Utan Vífilsstaða ætlast neíndin til að séu 30—40 rúm fyrir berklaveika í sjúkrahúsum héraðanna, en þó ekki nema á 5 stöðum. Vissulega verður það óhjákvæmilegt, að sjúkrahús héraðarina geti skotið skjóli yfir berklaveika sjúklinga, en liklegt þykir mér, að flestir vilji bjargast við sjúkrahús sins héraðs, ef nokkuð er, meðan ekki er leitað til heilsuhælis. Það er oft erfitt urti hávetur aö koma sjúklingum, þó ekki sé nema til næsta héraðs, jafrivel erfitt að flytja þá innan héraðs, oft og einatt með hitaveiki. * 1915 voru í Þýskalandi 16000 sjúkrarúm á heilsuhælum. Það svarar til þess að hér væru rúml. 20.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.