Læknablaðið - 01.06.1923, Blaðsíða 20
LÆKNABLAÐIÐ
Opið bréf til héraðslækna
um erlendar farsóttir.
öllum héraöslæknum er aÖ sjálfsögöu kunnugt um lög nr. 34, 6 nóv.
1902, um varnir gegn því, að næmir sjúkdómar berist til íslands. Þessi
!ög voru sett áöur en ísland komst í símasamband viö umheiminn. Öllum
læknum er ljóst hvílík jiörf er á ])ví, aö viö fáum sem fyrst vitneskju
um erlendar farsóttir. En ])aö er ekki svo auðvelt sem ætla mætti. Eng-
lendingar eru allra jijóöa best aÖ sér, í ])eim sökum, hér í álfu, gefa út
vikulega skrá yfir allar „smitaðar hafnir“ víösvegar um heim. Islenska
heilbrigöisstjórnin hefir tvívegis fariö jæss á leit, aö fá jæssar ensku
farsóttaskrár jafnóöum og Jjær koma út, en í'bæöi skiftin fengiö j)aö
svar, aö jnær séu einkamál, sem engir fái aö sjá aðrir en sóttvarnarmenn
breska rikisins, og er ])að vitanlega gert til þess, aö vekja ekki óþáffa
ótta meöal almennings.
í Danmörku er nú mánaðarlega gefin út skrá yfir erlendar smitaöar
hafnir, og höfum við ekki aö svo stöddu annað betra viö aö styðjast.
Þess vegna hefir nú veriji ákveöiö aö haga sér framvegis hér á landi í
jjeim éfnum á þann hátt er segir í bréfi dómsmálaráöuneytisins, sem hér
fer á eftir, og eru allir sóttvarnalæknar landsins beönir aö veita þessu
málefni nána athygli.
Landlæknirinn. Revkjavík, 10. nóv. 1923. G. Björnson.
Bréf dómsmálaráðuneytisins hljóöar svo (dags. 31. okt. 1923) :
Dóms- og kirkjumálaráðúneytið hefir 16. þ. m. skrifað íslensku sendi-
herrasveitinni í Kaupmannahöfn sem hér segir:
„Meö því að í ráöi er, á líkan hátt og gert er í Danmörku, aö gefa út
hér á landi, mánaöarlega eöa svo, skrá um sýktar hafnir af farsóttum, þá
er þess beiðst að sendiherrasveitin sendi þessu ráðuneyti í umslagi sér
og einnig landlækni sérstaklega. dönsku auglýsinguna um sýktar hafnir
strax eftir aö hún kemur út í hvert sinn. Auk þess er sendiherrasveitin
beðin aö láta, eins og áöur, vita með símskeyti ef farsótt gengur í höfn-
um, sem skip koma frá til íslands, eða ef sérstök hætta er á ferðum.
Þaö er lögð áhersla á, að aldrei farist fyrir aö gæta fyrirmæla bréfs
þessa meö fylstu nákvænmi, til þess að sóttvarnamálin geti jafnan veriö
í sem bestu lagi.
Sendiherrasveitin er beöin aö láta ráöuneytið sem fyrst vita hve oft
auglýsingin kemur út i Danmörku.“
Jafnframt ])ví að tilkynna yður þetta, herra landlæknir, beiöist ráðu-
neVtið þess, samkvæmt umtali, að þér eftir því sem skýrslurnar um sóttir
í erlendum höfnum berast vöur, sendið bingað mánaöarlega ujrpkast aö
auglýsingu um svktar hafnir af farsóttum. Auglýsing þar um gefur ráöu-
neytiö þá strax út og lætur prenta í Lögbirtingablaðinu, og eruö þér beð-
inn að vekja athygli lækna á hinu nýja fyrirkomulagi og brýna fyrir þeim
að athuga vel auglýsingarnar í Lögbirtingablaðinu.