Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.07.1939, Page 7

Læknablaðið - 01.07.1939, Page 7
LÆ K NA B LAÐ I Ð 69 oröið nijög lítill yfirleitt og alls eigi meiri en af venjulegri nonspe- ciíic protein-meðferð. Ýmsir mæla með nonspecific vaccine, einkum tyfusvaccine inn í æð, svo sem Miller og Kauff- mann. Dosis er mismunandi, eða frá 10—50 miljónir i fyrsta sinn og aukið um alt að 25 miljónir hvert sinn, alt eftir reaktion sjúk- lingsins. Sumir gefa vaccine á þennan hátt annan hvern dag uns sjúklingurinn fær skjálfta og há- an hita og hætta þá. Aðrir láta líða 4—7 daga á milli og láta sjúkl. fá reaktion 6 sinnum í alt. Brennisteins-inndælingar hafa mikið verið reyndar og með nokk- urum árangri. Mikið úrval er af brennisteinslyfjum, sem notuð eru í þessu skyni og skal eg eigi fara að telja þau upp. Margir hafa mi'klar mætur á gulltherapi við arthr. chr. infect. og hefir hún mikið verið reynd í Þýskalandi, Frakklandi og á Norðurlöndum. Forestier hefir birt statistik yfir 500 tilfelli þar sem eigi var notuð önnur lækning en gull-inndælingar. Telur hann að 70—80% hafi sýnt nokkurn bata, 50% af nýjum tilfellum hafi fengið fullan bata eftir 2—5 serí- ur inndælinga en 20—30% af þeim, sem höfðu verið lengur veikir en í tvö ár. Komið hafa fyrir alvarlegir aukakvillar. svo sem nephritis og polyneuritis eftir gull-therapi, auk annara meinlausari, svo fara verð- ur varlega. Gripwall í Svíþjóð mælir með aurodetoxin, þar sem sameinað er gull og dextoxin, keratin-derivat, sem inniheldur glutathion, cystin og glycocoll. Aurodetoxin er duft, sem inniheldur 12% gull og upp- leysist vel í vatni. Talið er að gullið frígerist mjög hægt úr þessu sambandi og er því talin lítil hætta á toxiskum verkunum. Robinson, læknir í her Banda- ríkjanna, mælir mjög með Chaul- moograolíu í vöðva við arthr. chr. infect., en telur engan árangur fást við arthr. chr. deg. Olían er gefin blönduð oleum olivae með 3% benzocain, sem lokal-anæst- heticum. Dosis 0,5 — 1 gramm af Chaulmoogra-olíu. Hann gefur alls ca. 20 inndælingar og lætur líða 4—5 daga á milli. Cholin-derivöt hafa verið notuð talsvert á siðustu árum. Mathae og Kovacs hafa hvor í sínu lagi skýrt frá reynslu sinni af Mecho- lyl eða Acetyl-beta-methylcholin chlorid. Annar kveðst hafa séð bata til muna hjá 77%, en hinn hjá 80% sjúklinga með arthr. chr. degen., en hjá 95% sjúklinga með arthr. chr. infect. Gáfu þeir lyfið í 0,5% upplausn lokalt í ionto- phoresis, 30 mín. í einu 2—3svar í viku, ca. 20 sinnum samtals. Lyf- ið framkallar aukinn blóðstraum um háræðar, veldur hitahækkun á staðnum er helst í nokkra tíma, lokalsvita er helst í alt að 10 tíma og hitatilfinningu er helst á staðn- um í 2—3 daga. Telja þeir að sárs- auki og bólga minki mjög bráð- lega við þessa meðferð og liðirnir liðkist. Fischer. Arbat og Piulachs hrósa Acetylcholin-inndælingum, einkum við traumatiska liðasjúk- dóma og arthr. chr. degen. Histamin hefir verið reynt, bæði í iontophoresis og einnig hefir því verið dælt suiicutant umhverfis liðina, einkum við periarthritis og arthrita i fingurliðum og láta menn vel af því, að þetta auki hreyfanleikann til muna. Shanson notar \%c upplausn af histamin hydrochlorid og gefur í fyrstu 0,1 ccm., en eykur skamt-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.