Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.07.1939, Page 8

Læknablaðið - 01.07.1939, Page 8
LÆ KNABLAÐ1Ð /o inn síðan um i strik uns hæfileg' reaktion fæst, en sá skamtur, sem til þess þarf, getur verið alt að 0,5 ccm. Histamín má gefa dag- lega subcutant á þennan hátt, það er bæði handhæg og ódýr aöferð og líkleg til að gefa góða hyper- æmi, þvi sennilega má reikna með svonefndum axon-reflex. Margir eru þeirrar skoðunar, að blóðrásartruflanir séu talsverður þáttur í liðasjúkdómum, ýmist sem konstitutionelt atriði, er geti greitt sjúkdómnum götu, eða þá reflektoriskt fyrirbrigði. Kovacs, Wright og I )uryee fundu könstrik- tion á háræðum og færri háræðar en normalt við capiller-mikroskopi á húð sjúkl. með arthr. chr. infec- tiosa og giska á að það sé kon- stitutionelt. ÍBenda má á hinar al- gengu vegætativ truflanir hjá kon- um i klimakterium og er eigi ó- hugsandi, að þær skapi aukna disposition fyrir arthrita á þeim aldri. Virðist því ekki úr vegi að reyna t. d. Mecholyl eða histamin í slíkum tilfellum, með annari therapi. í þessu samliandi er rétt að geta um inndælingar á lofti i liðhol stórra liða, þar sem um er að ræða trauma eða degenerativ lireyting- ar og einkum exsudat. Bohlmann hefir reynt þetta í 300 tilfellum og gefist vel. Má vera, að þetta geti dregið úr intraarticulær trauma (sbr. Archer) og þá úr sársauka, með því að loftið myndar einskon- ar púða inni í liðholinu, sem þó getur þrýstst saman og ef til vill getur þetta dregið úr staurliðs- hættu, samvöxtum i synoviafell- ingum o. s. frv. Bohlman hælir þessari meðferð einnig við gon- orrhoiska arthrita. Rönt.gentherapi hefir rutt sér talsvert til rúms hin síðari ár. Hugmyndin. sem röntgentherapi er bygð á, er sú samkvæmt grein- argerð Langers: 1) Röntgengeisl- arnir hafa sefandi áhrif á vegeta- tiva taugakerfið. 2) Þeir draga úr allergiskum reaktionum. 3) Þeir eru bólgueyðandi. 4) Þeir draga úr sársauka. 5) Þeir bæta lilóð- rásina lokalt vegna verkana sinna á vegetativa taugakerfið. Langer skýrir írá reynslu sinni i 363 tilfellum. B6 af sjúklingun- um höfðu einkenni um vegetativ- truflanir. 23 af þessum 86 íengu röntgen, bæði paravertebralt á viðeigandi ganglia, og á hinn sjúka stað, en hinir 63 fengu rönt- gen aðeins paravertebralt á við- eigandi ganglia, og gafst það svo vel. að eigi var talin þörf á lokal- thera])i. Þessi notkun á röntgen paravertebralt, sem aðeins á rétt á sér hjá mjög vegetativt stigmati- seruðu fólki, virðist þvi gera sama gagn og ganglionectomia, sem nokkuð hefir verið iðkuð á Mayo Clinic í svipuðum tilfellum undan- farið. Hormontherajii tíðkast nokkuð í viðeigandi tilfellum, samhliöa annari therapi, svo sem við art- hrita í climacterium, eða hypo- funktion á gland. thvr. með adi- ]iositas og lækkuðum metabolis- mus. Gefa menn þá ýmist follicu- lin eða thyreoidea hormon jafn- hliða annari therapi. Loks má geta þess, að Xegro hefir reynt hormon úr aftursepa hypofysis, að hann telur með góð- um árangri, í nokkrum tilfellum af ankvlotiserandi arthr. Vitamintherapi má rétt drepa á sem lið í nærmgu sjúklinganna og er óhætt að fullvrða, að D-vitamin- og' C-vitamin-rík næring sé æski- leg þegar um þessa sjúkdóma er að ræða, eins og yfirleitt við chron. infectionir. Að lokum skal rétt drepið á

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.