Læknablaðið - 01.11.1941, Side 14
LÆKNAB LAtí IÐ
136
Aðalmaturinn er kaffi, brauð og'
fiskur.
Fæði þetta sýnist því að ýmsu
leyti ófullkomið og gefur sérstak-
lega tilefni til að ætla, að mörg
heimili í þessum byggðarlögum
búi við skort á þýðingarmiklum
steinefnum, svo sem Calcium og
Phosphor.
8.
Til þess að skilgreina nánar þýð-
ingu hlutfallstalna fæðutegund-
anna vil eg birta hér útreikning á
calcium, ])hosphor og eggjahvítu-
innihaldi hinna ýmsu fæðutegunda
og fæði Isfirðinga i heild og
tveggja heimila þar, sér i lagi.
Heimilin eru valin, annað af verri
endanum, liklega eitt hið allra lak-
asta, en hitt af betri endanum, með
tilliti til steinefnamagns fæðunnar.
Eins og tafla II. sýnir, er Ca.
og P.-magnið í fæðunni fyrir neðan
það, sem talið er hæfilegt til væn-
legs þroska unglinga. Má geta
nærri um, að á mörgum heimilum
muni mikið vanta á, að fæðið sé
fullnægjandi, því að mjög er það
misjafnt í fjölmenninu, og sýná töl-
urnar frá 2 heimilum þennan mis-
mun mjög glögglega. Það er at-
hugandi, að á Isafirði er fiskurinn
aðal P.-gjafinn og gæti verið það
enn betur, ef fiskuriml væri steikt-
ur eða bakaður eða soðið af honum
soðnum drukkið í súpu. Aðrir þýð-
ingarmiklir P-gjafar, fyrir utan
mjólkina, eru kjöt og rúgbrauð.
Mestu Ca-gjafar eru, fyrir utan
mjólkina, fiskur. hafragrautur
og hveitibrauð, en þó smáir. Ivalk-
skortinn getur raunverulega ekkert
bætt upp nema mjólk eða mjólkur-
afurðir. Súrinn er hér mjög þýð-
ingarmikill; hann er auðugur af
kalki og fosfór og vel geymsluhæf
vara. Mjólkurosturinn, engu síður
magur, getur niikið bætt upp
mjólkurskortinn. Ein eða tvær ost-
sneiðar á brauðið á dag myndu
gera mikið gagn. Einnig ætti
eggjanotkunin að vera meiri.
Þesar Ca og P-tölur koma ekki
á óvart, þegar tekið er tillit til
slæmrar aðstöðu kaupstáðarbúa til
ræktunar og óskipulegra og ó-
reglulegra mjólkurflutninga úr
Djúpinu. Sumstaðar ræður og fá-
fræði og rótgrónar venjur eða
skeytingarleysi.
Þetta vandamál sjávarþorpa og
kaupstaða, með mörgum öðrum
vandamálum, mætti leysa með al-
menningseldhúsi fyrir þurfalinga
og aðra, er þess óskuðu, og heima-
vistarbarnaskólum fyrirkaupstaða-
börn, sem byggðir væru, eftir á-
stæðum, í hæfilegri fjarlægð frá
heimilunum í blómlegum og af-
urðaríkum sveitum; en um það
meira síðar.
9-
Til samanburöar liggja engar
isjenzkar rannsóknir fyrir, að því
er eg bezt veit, og birti eg því
hér, til hliðsjónar, steinefnamagu
í fæði 150 Bandaríkjaheimila.
Mioi- mum Meðal ! Maxi- tal mnm
Ca P Ca P Ca P
150 lieimili i U.S.A. cg á dag ....... -14 C.O 73 Ui GO 00 279
116 börn á Isafirði, cg á dag 12 91 50 135 132 193
Hlutfallið milli P og Ca sýnir
gott samræmi á báðum stöðunum
í meðaltalstölunum. Bandarikjatöl-
urnar sýna, i meðaltalinu, hæfilegt
steinefnamagn. Isafjörð vantar
nokku'Ö á að ná ])ví. Betra heimil-
inu er vel borgið, en því lakara
hvergi nærri. Hin óeðlilegu hlut-
föll rnilli P og Ca i lakara fæðinu
stafa af óvanalega mikla kjöt og