Læknablaðið - 01.06.1942, Side 11
LÆKNABLAÐIÐ
21
Gísli Fr. Petersen:
Röntgenologische Untersuchungen
iiber Arteriosklerose, Rvík 1941.
Doktorsrit, varið við Læknadeild Háskóla íslands
10. jan. 1942
—Útdráttur eftir höf.—
í fyrstu var þaö aöaltilgangur-
inn nieð röntgenrannsóknum mín-
um, að fá samanburð á tíðleika
æðakölkunar hér, við það, sem
fundizt hefir í öðrum löndum. Eft-
ir því sem þessum athugunum mið-
aði áfram og við frekari lestur um
þetta efni, komu þó ýmsir ann-
markar á þessu í ljós. Lítið hefir
verið g'ert aö svipuðum skoðunum
í öðrum löndum, að því er eg bezt
veit, og því erfitt um samanburð.
Aðalíéga hafa það verið sjúkling-
ar með sykursýki, sem aðrir höt'.
hafa rannsakað, en viö þann sjúk-
dóm er kölkun í útlimaæðum rnjög
tið. Um röntgenskoðun á aorta
alxlominalis hefir mjög lítið verið
birt og engar hópskoðanir gerðar.
Landfræðilegur samanburður hlaut
þvi að verða aukatriði i bili, en
þessar rannsóknir geta þó orðið
hvatning öðrum til þess að gera
sams konar hópskoðanir.
Eg mun nú gefa stutt yfirlit um
aðalinnihald ritverksins og helztu
niðurstöður. Alls hafa verið rönt-
genskoðaðir 307 sjúklingar. Ýmist
hafa þeir legið á Landspítalanum
eða komið utan s])ítala til röntgen-
skoðunar. Nokkrir voru á Elli-
lieimilinu. Röntgenrannsóknirnar
voru gerðar á Röntgendeild Land-
spitalans og fóru aðallega fram á
árunum 1937—39. Útlimir og
grindarholið er röntgenmyndað
lijá öllum, en aorta abdominalis
að auki hjá 220. Kölkun í útlima-
og smærri slagæðum grindarhols-
ins er nefnd perifer æðakölkun, en
kölkun í aorta abdominalis central
æðakölkun. Æskilegast væri, að
aorta he.fði verið röntgenmynduð
hjá öllum, en af því varð þó ekki.
af þeirri einföldu ástæðu, að í
byrjun var hugmyndin að athuga
eingöngu útlimaslagæðar. Þegar
frá leið og við nánari kynni af
því, sem ritað hefir verið um æða-
kölkun, vaknaði sú spurning, hvort
nokkuð mætti legg'ja til málanna
með röntgenskoöun um samband
hinna mismunandi tegunda æða-
kölkunar. Það gætir sem sé nokk-
urrar óvissu um |)að, hvort kölk-
un í elastiskum slagæðum eins og
aorta, þar sem breytingar eru aðal-
lega bundnar við intima, þ. e.
atherosklerose, sé sami sjúkdóm-
ur og mediakölkun i útlimaæÖum,
oft nefnd „Mönckebergs Sklerose".
—- Sé rétt að farið, eru tiltölulega
góð skilyrði fyrir hendi, til þess
að greina á röntgenmyndum kalk-
skugga i aorta abdominalis in
vivo, og var hún því valin til þess
að sýna central æðakölkun. Að
öllum jafnaði mun kölkun þar
jafngilda atherosklerotiskum
breytingum, sem venjulega halda
sig í intima, en kölkun í útlima-
slagæðum, eins og hún kemur fram
við röntgenskoðun jafngildir med-
iakölkun. Maður verður að hafa