Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.1943, Síða 25

Læknablaðið - 01.07.1943, Síða 25
LÆKNABLAÐIÐ 15 klafa botnlausra námsskulda, og skulda vegiia stofnkostnaöar hér- aðslæknis, og eiga svo ofan á allt saman á hættu að týna niöur dýr- keyptum fræðum í aðgerðarleys- inu, því að ekki eru mikil líkindi til að þau kjör, sem boðin eru, gefi manni tækifæri á að dvelja lengri tíma hérlendis eða erlendis til framhaldsmenntunar. Þá var rætt um kandidatspláss- in við íslenzka spitala, og mögu- leika héraðslækna á að komast aö sem 2. aðsfcoðarlæknir við hand- læknisdeild Landspitalans. Um þessi mál fjallaði nefnd á fundin- um og skilaði seinna á honum eft- irfarandi tillögum með greinar- gerð, sem eftir ennþá nánari um- ræður voru samþykktar þannig: A. Aðalfundur Læknafélags Vestfjarða skorar á Læknafélag íslands að það vinni að þvi af alefli við heilbrigðisyfirvöldin að fjölgað verði kandidatsplássum í landinu um 2—3 að minnsta kosti, t. d. við spítalana á Akureyri, ísa- firði og í Vestmannaeyjum. Greinargerð. Undanfarið hefir verið mjög bagaleg vöntun á kandidatspláss- um í landinu, svo nrjög að nýút- skrifaðir kandidatar, venjulega 5—7, hafa aðeins um að velja hér á landi 3 kandidatspláss, fyrir hin- um, sem eftir eru, liggur þá ekki annað en að bíða >og alltaf verður halinn lengri og lengri, eða þá að fara til útlanda. Að vonum hafa menn tekið þann kostinn, að reyna að brjótast út fyrir landsteinana, fyrir stríð til Danmerkur, og nú til Ameríku. Það er viðurkennt af heilbrigðisyfirvöldunum, aö margir þessara manna muni aldrei koma til íslands aftur, sízt meðan launakjörin eru margfalt verri hjá okkur en í öðrum menningarlönd- um. Á hinn bóginn er það jafnaug- ljóst mál, að þeir spítalar, sem áður voru nefndir, eru fyllilega færir um að gefa kandidötu'm þá þjálfun, sem heimtuð er af öðrum spítölum hér á landi og erlendis. Það verður því að teljast harla einkennilegt að heilbrigðisyfir- völdin skuli vera síkvartandi um læknafæð í dreifbýlinu, en — ef svo mætti að orði komast — ræki íslenzku læknana, eftir að hafa kostað dýrt háskólanám fyrir þá, af landi burt, >og það alveg að óþörfu. B. Aðalfundur Læknafélags Vestfjarða skorar á Læknafélag íslands að vinna af alefli að því við heilbrigðisyfirvöldin að hér- aðslæknar verði hlutgengir eða gangi fyrir öðrum við umsóknir um 2. aðstoðarlæknisembættið við handlæknisdeild Landspitalans, þótt þeir hafi ekki áður notið sér- menntunar í handlækningum. Greinargerð. 1. Margir héraðslæknar úti á landi eru í þeirri aðstöðu, að þeir verða að geta gert jafnvel stórar handlæknisaðgerðir við léleg skil- yrði, þótt þeir hafi enga sér- menntun fengið sem handlæknar, og oft litla æfingu, jafnvel þótt þeir hafi verið kandidatar á stór- um handlæknisdeildum, og er þeim af þeim sökum brýn þörf á ein- hverri framhaldsmenntun, sem ekki tekur alltof langan tíma, né verður þeim of kostnaðarsöm, og verða umrædd handlæknispláss á Landspítalanum að teljast tilvalin til þess. 2. Á það hefir á hinn bóginn margoft verið bent að nægilegt sé komið af sérfræðingum í ýmsum greinum og ekki sízt í handlækn-

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.