Læknablaðið - 01.08.1946, Side 15
LÆKNABLAÐIÐ
105-
geta þess, að góður vísindamað-
ur hefir með ágætri tækni fund-
ið heldur minna próthrombin 1
hlóði barna, sem fæðast vor-
mánuðina en hjá þeim sem
fæðast haust- og vetrarmánuð-
ina. Hinsvegar, eru blæðingarn-
ar hjá börnunum ekki tíðari á
vorin en vetur og haust. Heilsu-
far móðurinnar á meðgöngu-
tímanum virðist ekki hafa nein
áhrif á próthrombinið, hvorki
hjá henni sjálfri né barninu,
nema þegar um lifrarsjúkdóm
er að ræða. Það hefir ekki held-
ur ennþá tekist að finna orsök-
ina í líkama harnsins. Lifrar-
starfsemi nýfæddra barna er
lítt kunn ennþá, enda erfitt
rannsóknarefni. Samt er það
vitað, að gall þeirra er fremur
snautt að gallsúrum söltum, en
hið intermediera efnaskipti
lifrarinnar sjálfrar er litt þekkt,
að þvi undanskildu, að citricode-
hydrogenase, starfar jafn vel
sem oxydationsenzym fyrir
citronsýruefnáskiptin lijá ný-
fæddum sem fullorðnum. Um
önnur enzym barnslíkamans
vita menn dálitið, t. d. finnst lit-
ið af pepsinogen í magavökvan-
um, og það, að börnin þola illa
tormelta fæðu, bendir á, að
starfsemi próteólvtisku enzym-
anna í meltingarvökvanum, sé
lélegri hjá þeim en fullorðnum.
Það er sem sagt ekki ennþá
ljóst, hver orsökin er til pró-
thrombinskortsins. Sumir lialda
því frám, að liann sé að kenna
K-vitaminskorti, — og ætti
hann þá að vera barninu eðli-
legur, — en aðrir, að storknun-
arenzymið sé, eins og ýmis
önnur enzym i barnslikaman-
um, öðruvísi en lijá þeim sem
eldri eru, annað hvort að magni
eða eiginleikum.
En livernig sem þessu er var-
ið, þá er það víst, að K-vítaminið
verkar á próthrombinskort ný-
fæddra barna. Menn færðu sér
snemma í nyt afleiðingar þess-
arar staðreyndar og tóku að
gefa Iv-vítamin bæði til að girða
fyrir skortinn og lækna. Það
hefir komið i Ijós, að fái mæð-
urnar K-vitamin þó ekki sé
nema síðustu ldukkustundirnar
fyrir fæðingu, þá er próthromb-
inið í blóði barnanna að jafnaði
meira en annars. Skammtur-
inn handa mæðrunum er ekki
ákveðinn ennþá, en óhætt er að
gefa inn 5—10 ing. á dag, sið-
ustu viku nieðgöngulímans.
Það er engin hætta á að það sé
of stór inntaka.
Skammturinn lianda börn-
um hefir verið á reiki, þangaS
til prófessor Lehmann í Gauta-
borg sýndi nýlega fram á, að Vá
mg. af tiibúnu efnunum, þ. e.
35.500 Dam einingar, tekið inn
eða dælt inn, hefir sömu verk-
anir og 1 mg. eða meira. Hvort
sem móðurin liefir fengið Iv-
vítamin eða ekki, þá skal gefa
börnunum % mg. strax eftir