Læknablaðið - 15.04.1950, Qupperneq 11
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: ÓLAFUR GEIRSSON. Meðritstjórar: BJARNI
KONRÁÐSSON og JÚLÍUS SIGURJÓNSSON.
35. árg. Reykjavík 1950 1. tbl. '
LÆKNAFÉLAG REYKJAVÍKLR
40 ARA
ÆœJa Jr. ^JJefga LJámaóionar l ajtnœ liifaqna. cíi. péfagiini.
Félagið okkar er 40 ára á
þessu hausti. Stofnfundur þess
var 18. okt. 1909. Allir 9 stofn-
endur þess, svo og margir aörir
góðir félagar, eru látnir.
Allir þessir látnu félagar hafa
starfað meira og minna að
vexti félagsins og viðgangi. Við
eigum þeim að þakka, að félag-
ið er nú það, sem það er — ein
meginstoð íslenzku læknastétt-
arinnar.
Við hlið læknanna hafa jafn-
an staðið konur þeirra. Hafa
þœr verið sómi þeirra og sam-
vizka. Margar þeirra eru látn-
ar, en félagið stendur. einnig í
óbætanlegri þakkarskuld við
þær.
Ég bið alla viðstadda að rísa
úr sætum til minningar um
látna félagsmenn og konur.
Undanfari þess að Læknafé-
lag Reykjavíkur var stofnað er,
„að 2. okt. 1909 komu 9 læknar,
sem þá voru í Reykjavík, á fund
eftir boði kennara læknaskól-
ans, á Hótel ísland. Landlækn-
ir (G. B.) setti fundinn og gat
þess, að fundarefnið væri að
ræða um sjúkrasamlag í Rvík,
sem nú væri að myndast, einn-
ig hvort stofna mætti félag eða
fundi milli lækna í Reykjavík.
Ræddu menn málið, og taldi
Júl. Halldórsson nauðsynlegt
að skipta bænum í læknahverfi,
vegna þess hve víðlendur hann
væri . . . var G. B. meðmæltur
hverfaskiptingu.“ Úr henni
varð þó ekki.
Var nefnd kosin í málið
(Guðm. Magnússon, Guðm.
Björnsson, Matth. Einarsson).
Þann 18. okt. 1909 var fund-
ur haldinn að Hótel ísland og
þar stofnað L. R., en síðan sam-
þykktir samningar við S. R.
Félagslögin voru aðeins tvær
greinar, 17. okt. 1921 verða þau
þrjár — en venjur réðu mestu