Læknablaðið - 15.04.1950, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ
9
unarfær, en geta skal þess í
fundarboði, að ákvörðun verði
tekin um dagskráratriði fund-
arins.
9. gr.
Aðalfundur skal haldinn í
marz ár hvert. Stjórnin getur
kvatt saman auka-aðalfund, ef
sérstaklega stendur á.
Dagskrá aðalfundar er:
a. Formaður skýrir frá störf-
um félagsins.
b. Gjaldkeri leggur fram end-
urskoðaða reikninga fé-
lagssjóðs og annarra sjóða
1 vörzlu félagsins. Reikn-
ingsárið er almanaksárið.
c. Lagabreytingar.
d. Skrifleg kosning stjórnar
og meðstjórnenda samkv.
6. gr. Fyrst skal kjósa for-
mann, en þá ritara og loks
gjaldkera. Fái enginn meir
en helming greiddra atkv.,
skal kosið aftur um þá tvo,
er flest atkvæði hlutu. —
Hlutkesti ræður, ef atkv.
eru þá jöfn. Meðstjórn-
endur eru kosnir í einu
lagi og ræður afl atkvæða,
en hlutkesti, ef atkvæði
eru jöfn.
e. Kosnar sjóðstjórnir.
f. Kosnir 2 endurskoðendur
allra reikninga félagsins
og 2 til vara.
g. Árgjald ákveðið fyrir eitt
ár í senn.
h. Kosnir 3 menn í ritstjórn
Læknablaðsins og á-
kveðið áskriftargjald fyrir
utanfélagsmenn.
i. Kosin útvarps- og blaöa-
nefnd og gerðardómur.
j. Önnur mál.
10. gr.
Félagið gefur út Lækna-
blaðið, og er andvirði þess
innifalið í árgjaldi. Stjórnin
ræður aðlritstjóra blaðsins og
ákveður honum þóknun. Skal
stefnt að því að blaðið komi út
eigi sjaldnar en einu sinni 1
mánuði.
Aðalritstjóri blaðsins er á-
byrgðarmaður þess.
11. gr.
Stjórn félagsins skal gæta
þess, að tekið sé fram í samn-
ingum við sjúkrasamlög á fé-
lagssvæðinu, að einungis fé-
lagsmenn L. R. megi stunda
læknisstörf fyrir þau á sam-
lagssvæðinu.
Félagið skal stefna að því, í
samvinnu við L. í., að fá viður-
kenning hlutaðeigandi yfir-
valda og stofnana á því:
a. að ekki séu stofnuð emb-
ætti eða stöður á félags-
svæði L. R., sem ætlaðar
eru læknislærðum mönn-
um, án þess að L. R. hafi
áður verið tilkynnt um
starfssvið og launakjör.
b. að öll embætti og stöður,
sem ætluð eru læknum,
séu auglýst með minnst 4
vikna fyrirvara.