Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1950, Blaðsíða 26

Læknablaðið - 15.04.1950, Blaðsíða 26
16 L Æ KNABLAÐIH áttubönd milli lækna beggja þjóðanna. Islenzkir læknar, sem kynnu að leggja leið sina til Frakk- lands, ættu að nota sér þetta vinsamlega tilboð. Þeir geta skrifað beint til stofnunarinnar. Adr.: Organisation Francaise D’Accueil Du Corps, Médical Mondial, 60 Boulevard de La tour-M anbou rg Paris VII e d’ek: Invalides 07—55. Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 9—12 og 14—18. Laug- arlaga kl. 9—12. Ennfremur er undirritaður fús til þess að veita allai þær leiðbeiningar, sem í hans valdi standa, sé þess óskað. Páll Sigurðsson, p.t. ritari L. í. LEIÐRÉTTING í Læknablaðinu 2.—8. tbl. f. árg., bls. 55, minnist Þórarinn læknir Sveinsson á krufningar í sjúkrahúsum og réttlætir lít- ið tíðkaðar krufningar í St. Josephsspítala í Reykjavík með því, að þar sem það sjúkra- hús sé rekið án aðstoðar hins opinbera, hvíli engin skylda á pví að láta gera krufningar. Af þessu mætti ætla, að lög mæltu á annan veg fyrir um krufningar í einkasjúkrahús- um en í opinberum sjúkrahús- um. En svo er því ekki farið. Með lögum nr. 24/1927 var ráðherra heimilað að ákveða um rannsókn banameina m. a. með krufningu ,,í sjúkrahús- um, sem ríkið rekur“, og á- kvæði reglugerðar nr. 71/1932 voru í samræmi við þetta. Með lögum nr. 54/1938 voru orðin ,,sem ríkið rekur“ í hinum fyrri lögum felld niður, og á- kvæði núgildandi reglugerðar nr. 184/1940 um þetta efni hljóða svo: „Yfirlæknum á sjúkrahús- um skal vera heimilt, eftir því sem þeim þykir ástæða til, að rannsaka sjálfir eða láta sérfræðing í meina- fræði rannsaka með krufn- ingu og á annan hátt bana- mein sjúklinga þeirra, ev þar deyja.“ Eins og sjá má á þessu, gilda nákvæmlega sömu reglur um krufningu fyrir öll sjúkrahús, og um beina lagaskyldu í því efni er hvergi að ræða. Vera má, að einkasjúkrahúsin eigi sér meiri eða minni afsakanir, er þau spara við sig krufningar eins og margvíslegan annan tilkostnað um fram opinberu sjúkrahúsin og þá fyrst og fremst ríkissjúkrahúsin. En til lagafyrirmæla verður ekki vitn- að því til réttlætingar. 9/4, 1950. Vilm. Jónsson. FÉI.AGSPRENTSMIÐJAN H.F.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.