Læknablaðið - 15.04.1950, Blaðsíða 21
L Æ K N A B L A Ð I Ð
11
hafa vakandi auga á því, að
félagsmenn noti eingöngu við-
urkennd eyðublöð, og kæra, ef
út af er brugðið, til stjórnar-
innar, sem skal áminna við-
komandi lækni, eða beita hann
sektum, er nemi 100—1000 kr.,
ef um alvarlegt eða ítrekað brot
er að ræða. Sektir renni í fé-
lagssjóð.
14. gr.
Á aðalfundi ár hvert skal
kjósa þriggja manna útvarps-
og blaðanefnd. Nefnd þessi skal
fylgjast með útvarpserindum
og blaðagreinum félagsmanna,
ætluðum almenningi, um
læknisfræðileg efni.
Félagsmenn eiga kost á að
bera undir nefndina slíkt efni,
áður en það er flutt eða birt.
Telji nefndin að um sé að
ræða grófar missagnir eða of-
sagnir, skal hún benda við-
komandi á það, með ósk um
leiðrétting af hans hálfu. Fall-
ist höfundur ekki á það eða ná-
ist ekki samkomulag, getur
nefndin í nafni félagsins birt
athugasemdir sínar opinber-
lega. Félagsmönnum er óheim-
ilt að láta birta eftir sig grein-
ar um læknisfræðileg efni, ætl-
aðar almenningi, nema undir
fullu nafni. Hið sama gildir um
þýðingar. Nefndinni er heimilt
í nafni L. R. að leita samstarfs
við blöð og útvarp, ef þurfa
þykir.
15 gr.
Félagið getur kosiö heiðurs-
félaga: lækna, vísindamenn eða
velunnara félagsins, með skrif-
legri kosningu á aðalfundi,
enda greiði % fundarmanna
því atkvæði.
16. gr.
Heiðursfélagar og læknar, er
hættir eru læknisstörfum fyrir
aldurssakir eða sjúkdóms,
skulu undanþegnir félagsgjöld-
um. Stjórnin getur undanþeg-
ið lækna félagsgjöldum til eins
árs í senn.
17. gr.
Félagsgjöld skulu greidd fyr-
ir apríllok ár hvert. Nú greiðir
félagi ekki gjöld sín í 6 mánuði,
og telst hann þá ekki félagi,
unz hann hefir greitt þau að
fullu. Stjórnin getur veitt und-
anþágu frá þessu ákvæði, ef
sérstaklega stendur á. Náms-
kandidatar greiða hálft félags-
gjald, hið sama gildir um fé-
laga fyrstu 2 árin sem þeir
starfa.
18. gr.
Verði stjórnin þess áskynja,
að félagi geri sig líklegan til
að brjóta 1 bág við lög félags-
ins eða samþykktir eða hegði
sér ósæmilega, hvort heldur í
læknisstarfi sínu eða í sam-
bandi við umsókn um stöðu,
skal hún aðvara hann.
Nú bregzt félagsmaður þeim