Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1950, Blaðsíða 20

Læknablaðið - 15.04.1950, Blaðsíða 20
10 LÆKNABLAÐIÐ 12. gr. Stjórn félagsins og meö'- stjórnendur fara með mál L. R. milli aðalfunda. Ákvarðanir um meiri háttar fjármál fé- lagsins verða einungis teknar á aðalfundi. Stjórnin skal hafa vakandi auga á öllu því, er varðar lækna og störf þeirra, og gæta hagsmuna þeirra í hvívetna. Hún kveður meðstjórnendur til fundar um öll meiri háttar mál, eða ef 3 meðstjórnendur æskja þess. Fundir stjórnar og með- stjórnenda eru lögmætir, ef 8 eru mættir á fundi. Afl at- kvæða ræður úrslitum, en séu atkvæði jöfn, sker atkvæði formanns úr. Stjórn og meðstjórnendur skulu halda gerðabók. Stjórn og meðstjórnendur skipta með sér verkum, setja sér starfsreglur og taka sæti í þessum fastanefndum, er hver um sig sé skipuð þremur mönn- um: a. Samninganefnd, er fari með samninga við sjúkra- samlög, tryggingarstofn- anir og aðra aðila. b. Launanefnd, er fjalli um launamál lækna við sjúkrahús og stofnanir. c. Vottorðanefnd. Nefndir þessar skulu færa gerðabók. Þegar samninganefnd eða launanefnd fjalla um mál, er varða sérstakl. ákveðinn flokk lækna, svo sem handlækna, lyflækna, augnlækna, háls-, nef- og eyrnalækna, gigtlækna, sjúkrahúslækna og lækna fast- ráðna við ýmsar stofnanir, skal þess jafnan gætt, að fulltrúi slíkra lækna starfi með nefnd- inni. Stjórnin getur skipað nefnd- ir og kvatt félaga til nefndar- starfa eftir því sem þurfa þykir. Nefndarmenn velja formann úr sínum hópi. 13. gr. Vottorðanefnd er fulltrúi L. R. í öllum málum varöandi vottorð, gjörir hún samninga um eða ákveður gerð þeirra og greiðslur fyrir þau. Við allar meiri háttar ákvarðanir skal nefndin leita álits stjórnar og meðstjórnenda. Á öllum prentuðum vottorðs- eyðublöðum, sem L. R. gefur út, skal tekið fram: a. Að vottorðseyðublaðið sé viðurkennt af L. R. b. Gjald fyrir vottorðið. c. Hver annist greiðslu vott- orðsins. Nefndin semur um að hið sama sé tekið fram á eyðublöð- um, sem út eru gefin af öðrum aðilum Stjórnin getur, samkvæmt tillögum vottorðanefndar, bannað félagsmönnum að nota önnur vottorðaeyðublöð en hin viðurkenndu. Nefndin skal

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.