Læknablaðið - 15.04.1950, Side 13
LÆKNABLAÐIÐ
3
100%. Síðan hefir hún verið
endurskoðuð þrisvar sinnum.
Bar margt á góma á næstu
fundum; sjúkrabíll, Landspít-
alinn, húsabyggingar í bænum,
lyf j aeinkasala, gervilimasmiður,
ístak á tjörninni, næturvarzla
og helgidaga o. fl. o. fl. 13. des.
1920 er fyrst minnzt á stofnun
domus medica, aftur í febr. og
maí 1921 og apríl 1927 og svo
ekki fyrr en 1938. Og enn hefir
ekkert úr orðið.
12. nóv. 1921 var rætt um
stofnun berklavarnafélags og
fyrst minnzt á nauðsyn berkla-
yfirlœknis. Hefir berklaveiki í
ýmsum myndum, og berkla-
rannsóknir, verið langoftast
meðal fræðilegra erinda í fé-
laginu.
10. jan. 1921 er í fyrsta sinni
bókað um sameiginlegan
kvöldverð í Nýja Bíó, og 13.
febr. 1922 er í fyrsta sinn samþ.
að halda samsæti og bjóða kon-
unum. 9. nóv. 1929 var 20 ára
afmælisfagnaður, og 6. okt.
1934 var 25 ára afmælisfagn-
aður.
Ekknasjóðurinn er stofnaður
14. des. 1925 og hefir L. R. lagt
mikið á sig til þess að efla hann.
Á árunum 1921—’28 hefir ann-
ars verið tiltölulega lítið um
fræðileg erindi, en því meira
um alls konar bæjarmál. Á
næstu árum (’29—’35) var aft-
ur meira um fræðileg erindi —
Krabbamein, heilabólgu, bein-
brot, blóðþrýsting, hverarann-
sókriir, febris undulans, spon-
dylitis, app. chron., geðsjúk-
dóma, birth-control, tumor
cerebri, ab. provocatus, sexual
hormon, háfrekvens, sundhall-
arveiki, beri-beri, salvarsan, o.
fl. o. fl. Á þessum árum er mik-
ið rætt um skipun heilbrigðis-
mála, og 1. marz 1932 er í
fyrsta sinn talið æskilegt að fá
læknaráð. Alloft ber og sjúkra-
samlagsmál á góma, en þó ekk-
ert svipað því, sem síðar verður.
Á 25 ára afmæli sínu gekkst
félagið fyrir heilbrigðissýningu
fyrir almenning, sem 17000
manns sóttu, og var slíkt eins-
dæmi í þá daga.
Nœturvarzla og helgidaga
hefir verið á vegum félagsins.
Var fyrst rædd 11. apr. ’21, og
samþykkt 9. maí, fyrir alla
yngri en 55 ára. Hefir oft geng-
ið misjafnlega vel, að fá menn
til þessa. Þ. 30. okt. 1935 taldi
þó einn aðal-næturlæknirinn
„tekjur allgóðar af vaktinni,
alloft 15—20 kr.“ Bíllinn kost-
aði þá um 15 kr. á nóttu.
Á fundi 28. febr. 1936 er rætt
um afstöðu til samvinnu við
Tryggingarstofnun ríkisins.
Hefst þar með nýr þáttur í
starfsemi félagsins, sem nú
varð samningsaðili um, að
hei.ta mátti, alla læknishjálp
félaga sinna til handa bæjar-
búum. Árið 1935 fór Katrín
Thoroddsen 2126 vitjanir eða
6 á dag, til 190 S.R-númera
með 443 sálum. Fékk hún 1 kr.