Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1950, Page 16

Læknablaðið - 15.04.1950, Page 16
6 LÆKNABLAÐIÐ að hafa frumkvœði að því, sem gera þarf á næstu árum í þess- um þœtti heilbrigðismálanna. Heilbrigði er nú á dögum skilgreind sem andleg, líkam- leg og félagsleg vellíðan. Lang- samlega meginhluti læknis— menntunarinnar og læknis- starfseminnar hefir miðazt við að styðja og efla svonefnda „líkamlega“ vellíðan mann- anna. Ég hefi bent á verkefni frá félagslegu hliðinni. Ég skal að lokum benda á þriðju hliðina. Til hvers væri að veita mönnum líkamlega og félagslega heilbrigði, ef þeir ekki gætu notið hennar eða notfært sér hana, vegna and- legra ágalla? Geðheilbrigði er því þaö sem skiptir meginmáli fyrir alla menn. Sætir það furðu, hversu langt er fi’á, að mörgum lækn- um og leikmönnum sé jafn- sjálfsagður hlutur augljós. Menn hlaupa með smáskeinur, lítilfjörlegt kvef, eða gigtar- sting hér eða þar til læknis. En sömu menn flengja máske eða skamma barnið, sem hrekk- ur upp í angist að nóttu til, af því að faðir þess hefir komið drukkinn heim og misþyrmt móður þess. Menn draga dreng- inn, sem hnuplar nokkrum krónum til þess að geta verið jafningi jafnaldra sinna, fyrir löggæzlumenn og barnavernd- arnefnd, en foreldrar hans hafa aldrei hugsað útí, að láta hann hafa vasapeninga. Menn beita hörku stúlkuna, sem hefir ,,óviljandi“ orðið ófrísk með manni, sem svo vill máske ekk- ert skipta sér af henni. Sumir eiginmenn skilja ekki ,,kulda“ konunnar, sem búin er að bíða þeirra í kvíða og angist á með- an þeir hafa verið í hættulegri sjóferð. Þannig mætti telja í það óendanlega — að ekki séu nefndir allir þeir hleypidómar, sem ríkja um „stærri“ geösjúk- dóma. Það er ekki fyrr en á síðustu áratugum, að allmörgum lækn- um er að farið verða ljóst, hvernig hvaða svokallaður „lik- amlegur“ sjúkdómur sem er, hefir áhrif á sálarlíf manns — og öfugt, hvernig sálarlífið verkar á líkamann, hvort sem hann er heill eða veill. Leik- mönnum er langt frá því að vera ljóst hvernig þetta má verða. Ég held, að eitt af þeim þörf- ustu verkefnum, sem L. R. á þessum merkis-tímamótum sín- um gæti tekið upp, væri, að beita sér nú þegar fyrir stofn- un almenns félagsskapar til geðverndar og hugrœktar, sem ætti að hafa það meginmark- mið, að leiðbeina fólki um hvernig það mætti helzt verða aðnjótandi sem fullkomnastr- ar andlegrar heilbrigði — auk líkamlegrar og félagslegrar. Með því að ég skoða þetta

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.