Læknablaðið - 15.06.1952, Page 5
LÆKNABLAÐID
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: ÓLAFUR GEIRSSON. Meðritstjórar: JÚLÍUS
SIGURJÓNSSON og ÞÓRARINN GUÐNASON.
36. árg. Reykjavík 1952 10. tbl. ‘
TRILENE-svæfingar
í fædingarhjálp
Erindi flutt í L. R. 26/3. ’52.
Eftir Pétur Jcikobson.
Hvort heldur er fæðing auð-
veld af því að konan er róleg,
eða er konan róleg af því að
fæðingin er auðveld? Þessari
spurningu hefir enski læknir-
inn Grantly Dick Read verið
árum saman að velta fyrir sér.
Enn fremur: Er konan kvalin
og Iirædd af því aðfæðinggeng-
ur erfiðlega hjá henni, eða er
fæðingin erfið og kvalafull af
því að konan er hrædd? Niður-
staðan af athugunum dr. Reads
er sú, að hræðslan er á ein-
hvern liátt það, sem fvrst og
fremst framkallar kvalir i fæð-
ingum, sem að öðru levti eru
eðlilegar. Af þessu ieiðir að
spennt kona þýðir spenntur
legháls. Þó óljóst se hvernig
jtessi „neuromuskuleri mekan-
ismi“ verkar á starfsemi legs-
ins, þá viðurkennir þó almenn
reynsla þessa fullyrðingu.
Allir eru sammála um ]tað,
að kona í fæðingu á rétt á því
að fá dregið úr þjáningum sín-
um, og enginn vafi er á því, að
aðferðir þær, sem dr. Read hef-
ir bundið í kerfi, lijálpa mikið
fæðandi konum, og sumum
fullkomlega. Hins vegar eru
verkir afarmismunandi og við-
brögð einstaklingsins líka mis-
munandi, og er það eitt nægi-
legt til þess, að þörf á deyfingu
er brýn við eðlilegar fæðingar,
auk þess sem óeðlilegar fæð-
ingar verða ekki til lykta leidd-
ar, fremur en handlæknisað-
gerðir, án þess að til komi ein-
hver aðferð til þess að draga
úr sársauka og kvölum.
Nú á dögum er til fjöldi devti-
lyfja til þess að ná þessu
marki við fæðingar, en vandinn
er og hefir verið sá, að finna
handhægt, áhættulaust og ó-
])ægindalítið meðal, sem ekki
skenunir fyrir framgangi fæð-