Læknablaðið - 01.02.1955, Side 9
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI ÍSLANDS OG
LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: GUÐMUNDUR THORODDSEN. Meðritstjórar: JÚLÍUS
SIGURJÓNSSON (L. í.) og BJARNI JÓNSSON (L. R.)
39. árg. Reykjavík 1955 1. tbl. ~
Lyflæknis (conservativ) meðferö
á sprungnum maga- og skeifu-
garnarsárum
Eftir dr. med Halldór Hansen yfirlækni
Erindi flutt i L. R.
Ég minntist lauslega á þessa
meðferð í grein minni um
sprungin maga- og skeifugarn-
arsár í 34. árg. Lbl. 1949. Ég
hafði þá reynt hana á einum
sjúklingi semnma ársl948enda
þótt ekki væri frá því skýrt í
téðri grein, er aðeins fjallaði
um uppskurðartilfelli. Síðan
hefi ég reynt hana á tveimur
öðrum sjúklingum og þar eð
hér er um fremur óvenjuleg
tilfelli að ræða og væntanlega
þau fyrstu, er lyflæknismeð-
ferð hefir verið reynd við hér
á landi, þ. e. a. s. af ráðnum
hug er valið á milli conservativ
meðferðar og uppskurðar, taldi
ég réttmætt að skýra frá þeim
hér í L. R.
Sprungin maga- og skeifu-
garnarsár hafa lengst af verið
talin indicatio absoluta fyrir
uppskurði, ef diagnosis er ótví-
ræð og sjúklingurinn er i upp-
skurðarhæfu ástandi. Sé sjúkl-
ingurinn hins vegar svo að-
framkominn, að uppskurður
kemur ekki til greina af þeim
ástæðum, er ekki í önnur hús
að venda en að reyna lyflækn-
ismeðferð, enda hefir hún ver-
ið viðhöfð frá fvrstu tíð, en
i færri og færri tilfellum eftir
að læknar réðu betur við losl
(sliock) ástand þessara sjúkl-
inga, hlóðgjafir og antiliiotica
komu til sögunnar o. þ. u. 1.
Nú á síðustu árum hefir lyf-
læknismeðferð einnig verið
reynd í mörgum tilfellum þar
sem skurðaðgerð annars hefði
ált við og almennt verið við-
Itöfð. Lyflæknismeðferðin er i