Læknablaðið - 01.02.1955, Page 19
LÆKNABLAÐIÐ
11
Um ofnotkim antibiotica
Georg Gee Jackson og Harry
F. Dowling, háskólanum í Illi-
nois (G. P. 8 : 34—40, ágúst
1953, endursagt í Year Book of
medicin 1954—1955 s. 14—15)
skýra svo frá, að í Bandaríkj-
uiium hafi verið framleidd 324
tonn af penicillíni árið 1951, —
2 milljónir eininga á hvert
mannsbarn í landinu.
Er þetta nægilegt magn af
penicillíni til að lækna hvern
mann þar af einni lungna-
bólgusýkingu. A sama ári voru
búin þar til 167 tonn af strep-
tomysíni, nægilegt lil meðferð-
ar einnar milljón manna með
berklaveiki í heilt ár, eða allra
nýrra berklasjúldinga, þeirra
er fundist hafa þar s.l. 10 ár.
Þótt chloramphenicol, chlor-
tetracjælin og oxytetracyclin
hefðu ekki verið í umferð
nema 2—3 ár, voru framleidd
250 tonn af þessum lyfjum ár-
ið 1951, nægilegt magn til notk-
unar í tvö hundruð milljónir
sjúkradaga.
tion gastrique continue. ibid. bl.
559.
Thompson H. L.: Perforation of pep-
tic ulcer etc. J. A. M. A., Des. 1939
bl. 2015.
Bockus H.: Gastroenterology Vol.
L. bl. 516.
Haberling P.: Therapy of perforated
ulcer of duoden. ánd stomacli.
Ref. í International Surgical Dig-
est, Okt. 1953, bl. 208.
Höfundar telja tölur þessar
enn athyglisverðari fvrir þá
sök, að meir en helmingur allra
lyfseðla útgefinna í U.S.A. árið
1951 voru á antibiotica. Fjöldi
fólks fær antibiotica, án viður-
kenndrar eða verulegrar þarf-
ar (indication) og án sýnilegs
árangurs. Sumir þessara sjúkl-
inga sýna óhagstæðar svaran-
ir, aðrir kunna að hafa illt af
vegna óheppilegra brevtinga á
bakteríugróðri, eða vegna of-
næmis er myndast kann fyrir
lvfinu og koma fram við notk-
un síðar. Hættan af antibio-
tica er yfrið nóg til þess að
krefjast einskorðunar á notk-
un þeirra við þá sjúkdóma
eina, sem þau hafa eftirtakan-
leg áhrif á. Úr andverkun má
draga verulega, ef eftirtöldum
reglum um notkun er fvlgt:
1. Að greina sjúkdóminn rétt
og nákvæmlega, bæði klin-
iskt og etiologiskt, áður en
meðferð hefst, hvenær sem
þess er nokkur kostur.
2. Að meðhöndla sjúkdóm
sjúklinganna sérlega (spe-
cifioally), a) í vali lyfja og
sé notað eitt lyf aðeins, ef
það kemur að gagni, b) í
vali skammta og aðferðar
við gjöf og c) um lengd
meðferðar.
3. Að takmarka sem mest