Læknablaðið - 01.02.1955, Side 24
16
LÆKNABLAÐIÐ
Gistivist í Landspítalanum og
öðrum sjúkrahúsum
Á síðasta aðalfundi L. I. koin
fram ósk um að gistivist fyrir
lækna væri tekin upp á ný í
Landspítalanum og e. t. v.
fleiri sjúkraliúsum.
Stjórn L. í. ritaði stjórnar-
nefnd ríkisspítalanna um mál-
ið og enn fremur yfirlæknum
St. Jósefsspítala í Revkjavík
og fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri.
Svar liefir horizt frá stjórn-
arnefnd ríkisspítalanna svo-
hljóðandi:
„ ... Undanfarin ár hafa
læknar ætíð átt þess kost að
starfa í Landspítalanum í
svokallaðri gistivist. Nokkrir
hafa notað þennan möguleika,
en færri en gert var ráð fyrir.
Erfiðleikar á að fá aflevsara
eða húsnæði í Reykjavík mun
að sjálfsögðu hafa ráðið þar
nokkru um. Nefndin vill taka
það fram, að gert er ráð fyrir
að gistivist verði áfram opin
fyrir þá lækna, sem hennar
vilja njóta. Varðandi sumar-
levfi lækna og ráðningu lækna
i vikarstöður í spítölunum, er
nefndin einnig reiðuhúin að
greiða götu þeirra lækna, sem
með nægum fyrirvara sækja
um slíkar stöður.“
*
Frá Læknafélagi Islands
Frá dómsmálaráðuneytinu hefir
L. í. borizt bréf svo hljóðandi:
„Eftir viðtöku bréfs Læknafé-
lags fslands, dags. 5. júni s.l.,
varðandi sírennflautur fyrir
læknabifreiðir, tekur ráðuneytið
fram, að það samþykkir, að hér-
aðslæknar fái slíkar flautur á bif-
reiðir sínar til að nota þegar mik-
ið liggur við að komast áfram,
með þeim skilyrðum, sem fram
koma í bréfi lögreglustjórans i
Reykjavík, dags. 2 f. m., er hér
með fylgir i afriti.
Verði brögð að misnotkun tækja
þessara má búast við að leyfi
þetta verði afturkallað."
Skilyrði þau, sem um getur eru:
1. Héraðslæknum verði eingöngu
heimilað að nota hljóðmerkin á
vegum utan kaupstaða og kaup-
túna.
2. Til aðgreiningar frá lögreglu-
og slökkvibifreiðum og loft-
varnaflautum verði liljóðmerk-
in gefin með blástursflautu með
hækkandi og lækkandi tón.
3. Haft verði samráð við bifreiða-
eftirlit ríkisins um val á flaut-
unum.
Uppprentun úr Læknablaðinu er bönnuð nema að fengnu leyfi höfunda.
Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er í Félagsprentsmiðjunni h.f.,
Reykjavík. Sími 1640. Pósthólf 757.