Læknablaðið - 01.12.1955, Side 15
LÆKNABLAÐIÐ
155
gangi eftir því, e.t.v. með máls-
sókn, að sjúkrasamlögin greiði
fullt orlofsfé á alla læknisþjón-
nstu fyrir samlögin, svo sem nú
þegar er gert í sumum kaup-
stöðum.
5) Heilbrigðismál. — Tekið
verði á næsta aðalfundi L. I. til
umræðu, hvort æskilegt sé að
gerðar verði breytingar á ýms-
um atriðum í heilbrigðismálum
landsins, með hliðsjón af þörf-
um sjúklinga, lækna og þjóðar-
innar, í heild. Stjórninni er fal-
ið að sjá um að málið verði lýst
frá sem flestum hliðum á fund-
inum.
6) Hjúkrunarmál. Aðalfund-
ur L. I. (1955) skorar á heil-
hrigðisyfirvöld landsins að
flýta svo sem verða má bygg-
ingu hjúkrunarkvennaskólans,
svo að hægt sé að fjölga nem-
endum hans, þar sem skortur á
hjúkrunarkonum er svo mikill,
að með naumindum er hægt að
lialda gangandi þeim sjúkra-
húsum og heilsuverndarstöðv-
um, sem nú eru starfandi.
Þegar lokið verður sjúkra-
húshyggingum þeim, sem nú
eru í smíðum, er með öllu ó-
hugsandi, að hægt verði að
hefja rekstur þeirra, vegna
hjúkrunarkvennaskorts, nema
þá að um leið dragist saman,
eða stöðvast muni með öllu,
fleiri eða færri sjúkradeildir eða
sjúkrahús, sem nú eru starf-
andi.
Nefndir.
Þessuin nefndum, er kosnar
voru á aðalfundi 1954, (sbr.
greinargerð frá Læknaþingi
1955, enn fremur Læknabl. 39.
árg. 2. tbl.), var falið að starfa
áfram:
1) Húsnefnd.
2) Deyfilyfjanefnd.
3) Samninganefnd héraðs-
lækna.
4) Samninganefnd prakt. lækna
utan Reykjavíkur.
I hina síðasttöldu nefnd var
Guðjón Klemenzson kosinn í
stað Hauks Kristjánssonar, að
öðru lejdi var nefndaskipan
óbreytt.
Fundarstaður næsta
aðalfundar.
Tillaga kom fram um að
halda næsta aðalfund í Borgar-
firði. Var þó engin samþykkt
gerð um það, en stjórninni falið
að taka ákvörðun um fundar-
staðinn.
Aðalfundur
Læknafél. Suðurlands
1955
Ár 1955, hinn 3. sept. var lialdinn
að Selfossi aðalfundur Læknafélags
Suðurlands. Á fundinum voru mætt-
ir Iiéraðslæknarnir Bragi Ólafsson,
Eyrarbakka, Bjarni Guðmundsson,
Selfossi, Knútur Kristinsson, Laug-
arási, Úlfur Ragnarsson, Kirkju-
bæjarklaustri og Baldur Johnsen,
Vestmannaeyjum, svo og Jón Gunn-
laugsson, starfandi læknir á Selfossi
og Jónas Kristjánsson yfirlæknir,
Hveragerði. — Á fundinum var auk
venjulegra aðalfundarstarfa rætt