Læknablaðið - 01.06.1956, Page 8
36
LÆKNABLAÐIÐ
heimspekirita þegar á skólaár-
um, en hann átti einnig eðli vís-
indamannsins, sem spyr, í-
grundar og efast, en er víðsýnn
og sjálfstæður í skoðunum.
Hann var hrókur alls fagnað-
ar í vina og kunningjahópi, þeir
gleyma aldrei hugarfari hans
og viðhorfi hans til lífsins, sem
lét skína jafnt í létta kýmni og
tregablandna alvöru.
Sigtryggur læknir kunni vel
að meta gæði 'þessa lífs og að
njóta þeirra, en hann var engu
síður fær um að mæta erfiðleik-
um þess og þurfti oft á því að
halda.
Þegar á stúdentsárunum
kenndi hann magasjúkdóms, er
ágerðist svo að skera varð hann
upp í Ríkisspítalanum í Kaup-
mannahöfn, en árangurinn varð
ekki betri en svo, að hann var
lengst af æfinni illa haldinn af
þeim kvilla og á 2 síðustu árun-
um fékk hann tvisvar svæsna
magablæðingu svo honum var
vart hugað líf og eftir það náði
hann sér aldrei til fulls.
Sigtryggur átti 2 sonu með
fyrri konu sinni, er annar þeirra
Jarl, læknir á Sjálandi, en hinn,
Tryggvi, dó af slysförum aðeins
17 ára gamall.
Á meðan á þýzka hernáminu
stóð í Danmörku mættu Kaldan
lækni nýir erfiðleikar. Hann
hýsti oft flóttafólk er var að
flýja til Svíþjóðar og aðstoðaði
það á ýmsan hátt. Hann lá því
undir stöðugum gruni þýzka
hersins á .staðnum og oft skall
hurð nærri hælum.
1 des. 1928 kvæntist Sigtrygg-
ur í annað sinn, eftirlifandi
konu sinni Sigrid Agnete, dótt-
ur Niels Petersens úrsmiðs í
Helsingjaeyri. Hún var þá cand.
mag., hafði lesið norrænu við
Háskóla Islands og talaði ís-
lenzku eins og innfædd væri. En
frúin lét ekki þar við sitja, held-
ur tók hún að lesa læknisfræði
við Kaupmannahafnarháskóla
skömmu eftir giftinguna, lauk
læknisprófi á óvenjuskömmum
tíma með ágætri einkunn og gat
nú farið að stunda lækningar í
félagi við mann sinn og hefur
gert það síðan.
Hið fallega heimili þeirra
Kaldans-hjóna, „Villa Runa“,
stendur við sjóinn, þar sem vel
sést til umferða íslenzku kaup-
skipanna er þau sigla um Eyr-
arsund. Heimilið er skreytt mál-
verkum margra ísl. listamanna
og fleira er það, sem gerir heim-
ilið rammíslenzkt, enda stendur
það opið öllum Islendingum, er
til Helsinjaeyrar koma, þar er
og töluð íslenzka og íslenzkan
var þeirra læknamál.
Þau frú Agnete eignuðust 2
börn, Ulf, sem er vélstjóri,
og Rúnu, sem í vor varð læknir
á óvenjuskömmum tíma og með
mjög hárri .einkunn, aðeins 23
ára gömul. Hjónaband þeirra
Agnete og Sigtryggs var mjög
hamingjusamt, enda öll skilyrði
fyrir hendi að svo væri, hið sam-