Bændablaðið - 06.06.2013, Blaðsíða 1
11. tölublað 2013 Fimmtudagur 6. júní Blað nr. 396 19. árg. Upplag 30.000
„Þetta hefur verið allt of mikið,“
segir Benedikt Hjaltason verktaki,
en hann hefur nú á liðnum vetri
annast flutning á heyrúllum norður
í landi. Lauslega áætlað telur hann
að búið sé að flytja um 2.000 til
2.500 rúllur af heyi af Suður- og
Vesturlandi inn á Norðurland og
norðlenskir bænur hafi greitt allt
að 25 milljónir króna fyrir það hey
sem þeir hafa neyðst til að kaupa
í vetur.
Hafa ekki nýtt sér ástandið
og hækkað verðið
Benedikt er enn að, flutti um 200
rúllur í liðinni viku og álíka magn
verður flutt norður í þessari viku.
Auk hans hafa fjórir til fimm aðilar
aðrir annast heyflutninga. Verðið er
um 11 þúsund krónur á rúllu, þær
kosta yfirleitt um 6.000 krónur hver
og ofan á leggjast um 5.000 krónur í
flutningsgjald. „Ég vil hrósa bændum
í öðrum héröðum, t.d. á Suður- og
Vesturlandi, fyrir að bjóða hey á
skikkanlegu verði, þeir hafa alls ekki
notfært sér það ástand sem skapast
hefur hér norðan heiða og tekið upp
á því að hækka verð á heyi, þó að
aðstæður hafi vissulega skapast til
þess með aukinni eftirspurn. Það
finnst mér til fyrirmyndar,“ segir
Benedikt.
Heyflutningum ekki lokið
Hann segir að þótt komið sé fram
í júní sé heyflutningum milli
landshluta fráleitt lokið. Nú í vikunni
var hann t.d. beðinn um að sækja
um 50 rúllur suður yfir heiðar, „og
ég fer mjög sennilega þrjár ferðir
í vikunni, þegar upp verður staðið
í vikulok verða þetta tæplega 200
rúllur,“ segir Benedikt.
Bændur á norðanverðu landinu
eru margir hverjir orðnir tæpir með
hey, enda var uppskera með minna
móti á liðnu sumri vegna þurrka og
þá settist vetur óvenjusnemma að
liðið haust, hófst með látum strax í
byrjun september. Búpeningur hefur
meira og minna verið á húsi í allan
vetur og langt fram á vor, þannig að
hratt og örugglega hefur gengið á
heybirgðir sem víða eru á þrotum.
/MÞÞ
Norðlenskir bændur hafa keypt
hey fyrir um 25 milljónir í vetur
Þjóðaratkvæðagreiðsla um
ESB-viðræður ekki á dagskrá
Þjóðaratkvæðagreiðsla um
áfram hald aðildarviðræðna
við Evrópusambandið er ekki
á dagskrá að óbreyttu. Til þess
að íslensk þjóð æski inngöngu
í Evrópu sambandið þurfa ein-
hverjar stórkostlegar breytingar
að koma til í Evrópu og heim-
inum. Þetta er mat Sigurðar Inga
Jóhanns sonar, varaformanns
Framsóknarflokksins, sjávar-
útvegs- og landbúnaðar ráðherra
og umhverfisráðherra.
Sigurður Ingi segir í viðtali hér í
Bændablaðinu að Ísland sé á sömu
leið og Maltverjar og Svisslendingar
hafi valið að feta í sínum aðildar-
viðræðum. „Maltverjar lögðu niður
samninga viðræður við ESB í fjögur
ár og tóku þær svo upp aftur vegna
breyttra aðstæðna í samfélaginu.
Sviss hefur geymt samningana sem
farnir voru af stað ofan í læstri kistu.
Það er mat begggja stjórnarflokka og
meirihluta landsmanna að okkar hag
sé betur borgið utan sambandsins. Ef
það breytist þá er það okkar stefna að
þjóðaratkvæðagreiðslu þurfi til. Ef
þú spyrð mig persónulega sé ég ekki
á næstu árum að ástand í Evrópu og
í heiminum verði með þeim hætti
að íslensk þjóð muni óska eftir inn-
göngu í Evrópusambandið, ég sé
það ekki.“
- Sjá viðtal við Sigurð Inga
á bls. 28-29
Lauslega áætlað hafa norðlenskir bændur keypt hey frá öðrum landshlu-
tum, einkum Suður- og Vesturlandi fyrir allt að 25 milljónir króna. Víða eru
heybirgðir um það bil að klárast.
Aðalsteinn Hallgrímsson í Garði, einn eigenda verktakafyrirtækisins GK-verktaka, var í óða önn að sá grænfóðri á tún Sigurðar bónda í Gröf í Eyjafjarðarsveit í liðinni viku. Hann er með tún
neðan vegar á atanum við Eyjafjarðará og var nokkuð stór hluti þess skemmdur af völdum kals. - Sjá meira um ástandið í sveitum norðanlands á bls. 2 og 4. Mynd / MÞÞ
Lömbin hoppa frjáls um
tún og grundir
7
Framkvæmd
sauðfjárdóma
4933
Slippurinn
opnaður á ný