Bændablaðið - 06.06.2013, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 06.06.2013, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júní 2013 7 Bændurnir Ari Árnason og Anna María Kristjánsdóttir á Helluvaði í Rangárþingi ytra buðu öllum sem vildu heim til sín sunnudaginn 26. maí á „Halló Helluvað 2013“, sem var nú haldið í 11. skipti. Þá var kúnum hleypt út, fjárhúsin voru opin gestum og boðið var upp á glæsilegar veitingar. Ari og Anna María eiga heiður skilinn fyrir að opna bú sitt með þessum hætti og leyfi fólki að koma í heimsókn og fylgjast með lífinu í sveitinni. Meðal gesta var Ragnheiður Elín Árnadóttir, nýr iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og nýi þingmaðurinn Vilhjálmur Árnason úr Grindavík. Magnús Hlynur Hreiðarsson var á staðnum og tók meðfylgjandi myndir. Þáttinn hefjum við á kosningavísum, þó ekki frá síðustu Alþingiskosningum. Í næsta þætti munu e.t.v. birtast nokkrar óvilhallar vísur frá þeim kosningum. En víkjum heldur að nýlega afstöðnu páfakjöri. Ekki síður en við síðustu ríkisstjórnarmyndun hér heima hvílir mikil leynd yfir kjöri páfa. Reykmerki gefa til kynna hvernig kjöri fram vindur. Nokkuð þurfti heimsbyggðin að bíða eftir „hvíta“ reykmerkinu. Af því tilefni orti Hörður Jónasson á Húsavík: Tefla um páfa og tárast um leið, hún tekur á setan sú arna. Fnykurinn orðinn að svörtum seið svona er harðlífið þarna. Frændi Harðar, Bjarni Sigtryggs- son sendiráðsritari í Moskvu, fylgdist einnig þyrstur með kjörinu: Að tefla við páfann er töluverð list, í tómi menn hugsa með gát. Á náðhúsi lýkur svo Vatíkans vist er verða menn heimaskítsmát. Eftir erfiðan og langan vetur vitjar loks langþráð vor. Í tilefni þess er hæfilegt að helga þáttinn vorvísum, eða þannig. Kristján Ólason, fæddur 1894 í Kílakoti, síðar skrifari á Húsavík, orti: Máist aldrei minni úr morgunglaði kórinn, eða hvernig eftir skúr angaði viðarmórinn. Kannast lesendur við höfund að þessari „vorvísu“? Eftir fressleg frekjuhljóð fékkst úr þessu skorið. Síðan hress þau æddu óð út í blessað vorið. Það er einnig ilmur vors af þessari vísu Jóhanns Kristjánssonar frá Bugðustöðum á Snæfellsnesi: Gleðieim ég af því finn, að mér streymir vorið. Ég kom heim með hestinn minn, hauðrið geymir sporið. Um langt árabil bjó á Háafelli í Hvítársíðu Þiðrik Þorsteinsson. Einhverju sinni fann Þiðrik, sem þótti vínhneigður nokkuð, brenni- vínsflösku úti í heygarði, hverri hann hafði týnt þar haustinu fyrr. Þá orti Eyjólfur Jóhannesson í Hvammi: Þiðrik gleðja vorið vann, vindar þó að hvíni, úti í garði flösku fann fulla af brennivíni. Vonandi fara vel í Svarfdæli þessar fallegu vorvísur Ármanns K. Sigurðssonar frá Urðum í Svarfaðardal: Geislar falla um gervallt land, glúpnar allur snærinn. Efst á hjalla og út við sand yljar fjallablærinn. Vaxa lindir, vorsins glóð vetrarmyndum týnir. Syngja á tindum sólarljóð sumarvindar mínir. Næsta vorvísa er eftir Andrés H. Valberg: Vetri hallar, vindar gjalla, vorsins falleg lyftist brá. Sólin kallar okkur alla efstu fjallatinda að sjá. Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggd1@gmail.com Líf og starf MÆLT AF MUNNI FRAM Þ Um 400 gestir mættu á „Halló Helluvað 2013" – boðið upp á ábrystir, kleinur, lagtertur, kaffi og kókómjólk Kýrnar voru greinilega fegnar að komast út undir bert loft. Myndir / MHH Ragnheiður Elín Árnadóttir, nýr iðn- aðar- og viðskipta- ráðherra var meðal gesta og fór greini- lega vel á með henni og þessu fallega lambi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.