Bændablaðið - 06.06.2013, Blaðsíða 10

Bændablaðið - 06.06.2013, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júní 201310 Fréttir Um leið og fyrrverandi landbúnaðar- ráðherra Steingrími J. Sigfússyni eru þökkuð ágæt störf á mörgum sviðum í þágu landbúnaðarins og bænda eru nýjum ráðherra málaflokksins Sigurði Inga Jóhannssyni færðar árnaðaróskir. Við hann eru bundnar miklar vonir um staðfestu og framtíðar sýn í þágu lands og þjóðar. Í kosningabaráttunni og eftir kosningar hafa leiðtogar SVÞ o.fl. reynt að ráðast að þeim vegg sem er hluti af alþjóðasamningi í WTO því tollar eru ekki séríslenskt fyrirbæri heldur alþjóðlegt. Samt eru tollarnir sú sátt, sú vörn sem gefur landbúnaði Íslands skjól til að styrkja sig og undirbúa sig fyrir frekari alþjóðlega lækkun, það er að segja ef WTO-þjóðirnar kjósa svo, en málið hefur staðið fast í heil 12 ár. Annars eru menn að átta sig á að bruðlið í veröldinni er komið á hættustig, þ.e. eyðsla og sóun, jörðin er því miður sökkvandi og sveltandi nema allir geri sitt til að framleiða mat. Sagt er að við Íslendingar séum svo neyslufrekir og eyðslusamir að ef allir höguðu sér eins og við þyrfti mannkynið tíu jarðkringlur. Hinni svokölluðu DOHA-lotu henni er enn ólokið, ekki af völdum íslenskra stjórn- valda heldur þeirra stóru sem ráða ferðinni meðal þessara 120 þjóða. Tollarnir hafa með markvissum hætti lækkað á þeim tíma sem liðinn er frá svokölluðum GATT-samningi 1994. Dýralæknirinn mikilvægur Dýralæknirinn í atvinnuvega- ráðuneytinu, ráðherrann sjálfur, verður hins vegar ekki í vand ræðum með að rökræða hættuna, dýraverndina og lýðheilsu fólksins þegar kemur að kröfu ESB um innflutning á hráu kjöti og lifandi dýrum. Þar sé ég loksins landbúnaðarráðherra sem getur skákað öllum kerfiskörlunum í Brussel, sem ekki vilja skilja sérstöðu Íslands í þessu efni. Góð var greinargerðin frá atvinnuvega- ráðuneytinu sem var í fréttunum á dögunum gegn kröfu ESA að hrátt kjöt skuli frjálst flæða til Íslands, þar var öllum faglegum rökum haldið vel á lofti. Nei-flokkar slíta ESB-viðræðum Svo er það náttúrlega alveg ljóst að tveir Nei-flokkar sem unnu kosningarnar afgerandi gagnvart aðild eða ekki aðild að ESB slíta samninga- eða aðlögunarviðræðum strax, eigi síðar en á haustþingi. Það verður að gera með þingsályktun og að viðræður verði ekki upp teknar á ný nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Ríkisstjórn, alþingi og þjóðin sjálf verður þá að vilja aftur í slíkt ferli. Vinstri-grænir munu að eilífu naga sig í handarbökin að hafa ekki klárað aðildarferlið og því hefði síðan verið hafnað í kosningum, þeir bera svikamerkið um hálsinn að hafa farið í þessa för með Samfylkingunni. Samfylkingin lék samstarfsflokkinn Vinstri-græna grátt og dró hann á asnaeyrunum og tafði viðræðurnar þótt vonlausar væru, lon og don. Nú er engin Samfylking í ríkisstjórn og þessi eini ESB-flokkur fékk aðeins 12% atkvæða. Samfylkingin þvælist ekki fyrir þessu, hún húkir fyrir utan vegg og er um sinn smáflokkur eins og Alþýðuflokkurinn gamli var. Ekki verður því trúað að Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra láti þvæla sér í Vinstri-græna heilkennið, hann hlýtur að höggva á þennan Gordonshnút og Stefán Fúli verður hvorki hissa eða fúll. Stefán býst nú við nýjum utanríkisráðherra og undirbýr sjálfur viðræðuslitin og mun senda sínum besta vini Össuri Skarphéðinssyni rauðar rósir. Þeir vita og skilja í Brussel hvað er pólitískur vilji og bíða eftir tilkynningunni. Guðni Ágústsson framkvæmdastjóri SAM skrifar: Landbúnaðarráðherra sem skákar kerfiskörlum í Brussel Sjö tonn af íslenskum hindberjum á markað í sumar – mikil eftirspurn eftir berjunum á veitingastöðum landsins Hólmfríður Geirsdótt ir garðyrkju fræðingur og Steinar Á. Jensen rafvélavirki eiga garðyrkjustöðina Kvista í Reykholti í Biskupstungum í Bláskóga byggð. Þau byrjuðu að rækta hindber fyrir tveimur árum á 500 fermetrum inni í upphituðum gróðurhúsum og voru að ná mjög góðri uppskeru. Nú hafa þau keypt ný gróðurhús og ætla að hefja hindberjaræktun í þeim á 1.200 fermetrum. Þessa dagana eru því að flytja fjögur þúsund plöntur inn í húsin, en berin af þeim verða klár í ágúst í sumar. Fyrsta uppskera sumarsins í plasthúsunum eru klár og líta berin mjög vel út. „Við gerum ráð fyrir að ná sjö tonnum af hindberjum í sumar. Berin eru mjög vinsæl, ekki síst á veitingahúsum landsins, og síðan eigum við alltaf ber hér heima í öskjum, sem fólk getur keypt beint af okkur,“ sagði Hólmfríður. /MHH Laugardaginn 1. júní var opnuð sérstök heimsóknarmiðstöð íslenska hestsins á Skeiðvöllum í Holta- og Landsveit, sem ætluð er fyrir bæði innlenda og erlenda gesti sem hafa áhuga á að fræðast um Íslenska hestinn. Sýningin ber nafnið Icelandic HorseWorld - visitor center og er þar boðið upp á á fjölbreyttar upplýsingar um íslenska hestinn og allt sem honum viðkemur. Einnig verður hægt að skoða merar með nýfædd folöld og fá að klappa og kemba, auk þess sem teymt verður undir börnum. Þá er opið kaffihús á staðnum þar sem hægt er að fá úrvalskaffi og gómsætt meðlæti. Sýningin er opin frá 9-17 á daginn. Það eru þau Katrín Sigurðar dóttir og Davíð Jónsson á Skeiðvöllum sem reka heimsóknarmiðstöðina og eiga hestabúgarðinn, sem er án nokkurs vafa einn glæsilegasti á landinu. /MHH Heimsóknarmiðstöð íslenska hestsins er á Skeiðvöllum í Holta- og Landsveit Katrín við einn hestinn á sýningunni, sem vekur mikla athygli gesta því hann er úr járni. Myndir / MHH Oddviti Ásahrepps, Eydís Indriðadóttir, og oddviti Rangárþings ytra, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, mættu að sjálfsögðu í opnunina 1. júní. Hólmfríður að tína hindber af plöntunum sínum. Myndir / MHH Finnskur starfsmaður og garðyrkju- nemi að koma plöntunum fyrir í nýja hindberja- gróðurhúsinu á Kvistum. Það verður líf og fjör hjá stórum hluta ferðaþjónustubænda um allt land á opnu húsi þann 9. júní næstkomandi kl. 13.00- 17.00. Þann dag gefst almenningi tækifæri á að kynna sér starfsemina á ferðaþjónustubæjum, fá nýja bæklinginn „Upp í sveit“ og njóta veitinga og afþreyingar í boði bænda. Í tilefni útgáfu bæklingsins „Upp í sveit“ ætla fjöl- margir bæir innan Ferðaþjónustu bænda að hafa opið hús þann 9. júní kl. 13.00-17.00. Gestir munu geta skoðað aðstöðuna á bæjunum, sótt nýja bæklinginn, fengið kaffisopa, spjallað við bændur og upplifað einstaka sveitastemningu. Það verður glatt á hjalla og margt í boði fyrir alla aldurshópa í öllum landshlutum. Til dæmis verður hægt að gæða sér á ljúffengum heimabakstri og öðrum forvitnilegum afurðum úr sveitinni, heilsa upp á dýrin á bænum, skoða fjós, taka þátt í leikjum eins og skeifukastskeppni og tröllaparís, njóta lifandi tónlistar, kynna sér tóvinnu og fræðast um ylrækt, svo eitthvað sé nefnt. Bæir sem bjóða heim verða merktir með grænum og hvítum blöðrum við veginn. Nánari upplýsingar og lista yfir þá bæi sem bjóða heim þann 9. júní í hverjum landshluta má finna á vefsíðu Ferðaþjónustu bænda www.sveit.is þar sem nýi bæklingurinn er jafnframt aðgengilegur á veflægu formi. Í honum eru ítarlegar upplýsingar um alla bæi í Ferðaþjónustu bænda ásamt bæjum í Opnum landbúnaði sem taka á móti gestum og kynna fjölbreyttan landbúnað. Opið hús hjá ferðaþjónustubændum Upp í sveit Gisting, matur og afþreying um allt land 2013 www.sveit.is Icelandic Farm Holidays Farm Visits
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.