Bændablaðið - 06.06.2013, Blaðsíða 39

Bændablaðið - 06.06.2013, Blaðsíða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júní 2013 er að skoða yfirlit yfir úthlutun styrkja úr Landbótasjóði á vefsíðu Landgræðslunnar, www.land.is Landgræðslunni brigslað um lögbrot Stjórn Félags afréttareigenda sakar Landgræðsluna um að þverbrjóta stjórnsýslulög, þar með taldar reglur um meðalhóf og jafnræði. Landgræðslan frábiður sér þau brigsl um leið og hún bendir á að í jafnræðisreglunni felst ekki að þó að einhver aðili komist (að sinni) upp með óásættanlega hegðun megi aðrir gera það. Greinarhöfundar velta fyrir sér hvort Landgræðslan vilji ná Almenningum af afréttar- eigendum og telja það kæta stofnunina að ná undir sig sem flestum jörðum og jarðahlutum. Fyrir það fyrsta eru Almenningar þjóðlenda í almenningseign, ekki í eigu bændanna og því engum grunneignarrétti þar fyrir að fara. Landgræðslan hefur í sinni umsjá nokkrar jarðir og jarðahluta sem eru eign ríkisins. Undirritaður á ekki í neinum vandræðum með að svara fyrir það að tryggja lögmæt réttindi ríkisins til þeirra jarða og jarðahluta sem stofnuninni er trúað fyrir. Hins vegar væri erfiðara að svara fyrir það að gefa eftir slík réttindi og leitast ekki við að tryggja þau, enda væri þá um að ræða lögbrot og ámælisverða embættisfærslu. Landgræðsla til hvers og fyrir hvern? Fullyrðing stjórnarinnar um að nytjaréttarhafar eigi að ráða hvaða gróður eigi að vaxa á þjóðlendunni er með ólíkindum. Enn verra er þegar þeir telja að þeirra óbeini nýtingarréttur gangi framar lögum um vernd gróðurs og jarðvegs og einnig að þeir hafi, sem beitarrétthafar, rétt til að koma í veg fyrir náttúrulega gróðurframvindu á landi sem er í almenningseign. Sú gróðurframvinda, eins og reynslan í Þórsmörk sýnir, mun leiða til þess að birki og víðir verði með tímanum ríkjandi á þeim svæðum sem eru ekki mjög hátt yfir sjávarmáli. Þá er kominn öflugur gróður er þolir öðrum betur öskufall í náttúruhamförum og hóflega nýtingu þegar fram líða stundir. Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri. Tilboð óskast í bæjarhúsin á ríkisjörðinni Syðri - Bakka í Hörgársveit 15438 – Syðri Bakki í Hörgársveit, íbúðarhús og útihús á 11090 m² leigulóð, sambyggt að hluta, eigandi Ríkissjóður Íslands. Um er að ræða íbúðarhús 146,2 m² byggt 1952 og sambyggt því alifuglahús 58,3 m² byggt 1967, og véla-/verkfærageymsla 65,7 m² byggt 1959. Sambyggt fjárhús með áburðarkjallara 214,2 m² byggt 1982 og hlaða 78,3 m² byggð 1982 og er brunabótamat eignarinnar kr. 44.990.000,- og fasteignamat er kr. 11.482.000,- skv. Þjóðskrá Íslands - fasteignaskrá. Húsin þarfnast mikils viðhalds eða jafnvel niðurrifs. Húseignin verður til sýnis í samráði við Þórð Þórðarson í síma 898 1636. Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá ofangreindum aðila og hjá Ríkiskaupum ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðu- blaði. Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikis- kaup.is Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7, Reykjavík fyrir kl. 10.00 þann 11. júní 2013 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska. Hross til sölu frá Hrafnsstöðum Is2012165058 Ari Brúnn F: Gígjar Auðholtshjáleigu M: Gerður Hrafnsstöðum Is2012165055 Kári Brúnn F: Nói Hrafnsstöðum M: Ásdís Hrafnsstöðum Is2012265058 Grafík Grá F: Gandálfur Selfossi M: Brynja Hrafnsstöðum Is2011165057 Nafni Brúnn F: Vilmundur Feti M: Gáta Hrfansstöðum Is2011265059 Álma Brún F: Vilmundur Feti M: Sella Hrafnsstöðum Is2011165058 Goði Brúnn F: Gígjar Auðholtshjáleigu M: Brynja Hrafnsstöðum Is2011265058 Aría Brún F: Gígjar Auðholtshjáleigu M: Gerður Hrafnsstöðum Is2010265058 Glóð Rauð F: Andvari Ey l M: Brynja Hrafnsstöðum Is2010265057 Helga Brún F: Klettur Hvammi M: Gáta Hrfansstöðum Is2009265059 Ágústa Brún F: Kappi Kommu M: Sella Hrafnsstöðum Ágústa er efni í 4 ganga keppnishest. Is2009165058 Gaumur Brúnn F: Tindur Varmalæk M: Brynja Hrafnsstöðum Is2007265059 Andri Brúnn F: Andvari Ey l M: Gerður Hrafnsstöðum Andri er efni í 4 ganga keppnishest. Is2007265059 Álfheiður Rauðskjótt F: Álfasteinn Selfossi M: Sella Hrafnsstöðum Is2007165058 Garri Raðstjörnóttur F: Hrymur Hofi M: Brynja Hrafnsstöðum Is2008165055 Gnýr Rauðblesóttur F: Andvari Ey l M: Leista Hrafnsstöðum Is2008265056 Gríma Rauðblesótt F: Andvari Ey l M: Gjósta Hrafnsstöðum Is2009265055 Stjarna Rauðblesótt F: Andvari Ey l M: Leista Hrafnsstöðum Is2010265056 Suðræna Brún 2700 F: Suðri Holtsmúla 1 M: Gjósta Hrafnsstöðum Is2011265056 Villimey Brún F: Vilmundur Feti M: Gjósta Hrafnsstöðum Upplýsingar í síma 8926905 eða á netfangið, zophonias@centrum.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.