Bændablaðið - 06.06.2013, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 06.06.2013, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júní 2013 Í síðasta Bændablaði var greint frá forláta Unimog Erlings Ólafssonar sem komin er í dagvistun hjá Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri. Hann er af árgerð 1951, en Unimog-torfærutröllið á sér langa sögu. Albert Friedrich hóf hönnun þessa farartækis 1. janúar 1946. Gerði hann síðan framleiðslusamning við fyrirtækið Erhard und Söhne um smíði bílsins. Hugmyndin var að reyna að sameina í einu tæki fjölnota vinnubíl á fjórum jafnstórum hjólum sem nota mætti bæði á þjóðvegum og sem dráttarvél fyrir kartöflubændur og við rófurækt. Á vefsíðu Wikipedia er sagt að skýringin á hinu þýska heiti þessa vinnutækis sé „UNIversal-MOtor- Gerät“ eða fjölnota mótortæki. Unimog var því hafður með aflúrtaki að aftan, að framan og á hlið. Hliðaraflúrtakið mátti líka nota fyrir greiðusláttuvél og var slíkt m.a. reynt í landbúnaði hér á landi. Unimog þótti þó ekki eins lipurt tæki við slátt og heyvinnu og hefðbundnar dráttarvélar og náði því aldrei fótfestu á Íslandi sem landbúnaðartæki. Hugmyndin að tæki eins og Unimog var þó ekki alveg ný af nálinni árið 1946 því Minneapolis-Moline dráttarvélafyrirtækið í Bandaríkjunum hafi árið 1938 hannað UDXL- dráttarvélina með svipað notagildi í huga. Frumgerðin kom fram árið 1946 Frumgerð Albert Friedrich á Unimog var fullbúin undir lok árs 1946 og var þá búin bensínvél. Ætlun hafði verið að vera með dísilvél í tækinu, en hönnun á 25 hestafla (19kW) OM636 dísilvélinni frá Daimler-Benz, sem nota átti, var þá ekki lokið. Hjólabilið var 1.270 mm, sem samsvaraði tveim röðum í kartöflugarði. Undir lok ársins 1947 var dísilvél Benz tilbúin og var hún sett í fyrstu fjöldaframleiddu Unimog-bílana úr 70200-seríunni. Voru þeir með merki Unimog á húddlokinu, sem var haus á vel hyrndu nauti. Fyrstu 600 bílarnir af þessari gerð voru smíðaðir í verksmiðju Boehringer en ekki hjá Erhard og sonum þar sem þeir höfðu einfaldlega ekki næga afkastagetu á sínu verkstæði. Þá var heldur ekki hægt að smíða bílana í verksmiðju Mercedes-Benz, sem var af hernaðarástæðum bannað að smíða fjórhjóladrifstæki við lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Unimog hefur alla tíð haldið sérkennum sínum sem mjög háfættur með sínum sérstaka drifbúnaði út í hjól, búinn fjórhjóladrifi og hugsaður sem torfærutæki. Daimler- Benz yfirtók Unimog 1951 D a i m l e r - Benz tók yfir verksmiðju Unimog árið 1951, en hann er nú framleiddur í Wörth am Rhein-vörubílaverksmiðju Mercedes-Benz, sem er deild í Daimler AG-samsteypunni. Þá hefur einnig verið starfrækt samsetningarverksmiðja fyrir Unimog í Tyrklandi og allt fram á níunda áratuginn einnig í Argentínu. Þegar Daimler-Benz tók yfir framleiðsluna á Unimog árið 1951 hvarf upphaflega einkennismerkið með hyrnda bolanum af húddinu og þríarma auðnustjarna Benz var sett þar í staðinn. Nýja módelið fékk einkennisnúmerið 401. Ný gerð, 402, var þá einnig fáanleg en hún var með meira hjólahaf og meiri breidd milli hjóla, eða 2.120 mm í stað 1.720 mm. Bíllinn var þá framleiddur í Gaggenau í Baden-Württemberg. Þar var framleiðslu haldið áfram allt fram til ársins 2002. Árið 1953 kom fram ný gerð af Unimog með lokuðu húsi, sem gerði bílinn hæfari til aksturs í öllum veðrum. Ný gerð, 403, leit síðan dagsins ljós og var með meira hjólabili, 2.250 mm. Þótti henta vel í kalda stríðinu og framleiðslubanni létt af Benz Á árinu 1955 kom fram 404 S módelið af Unimog sem var upphaflega hannað fyrir vestur-þýska herinn, sem var að vígbúast enda Kalda stríðið svokallaða komið á fullt skrið. Með 4040-gerðinni var horfið frá þeirri hugmynd að Unimog væri landbúnaðartæki, heldur var hann gerður að vel hreyfanlegum trukk til ferða um erfitt land landshorna á milli. Frá 1955 til 1980 voru framleiddir 64.242 Unimog-torfærubílar af 404 S gerðinni. Vitað er að bíll af þessari gerð frá 1955 með framleiðslunúmerið 4 er enn til í Orange-sýslu í Kaliforníu. Árið 1957 var Unimog búinn alsamhæfðri gírskiptingu sem gerði það mun auðveldara að skipta um gír á fullri ferð án þess að þurfa að tvíkúpla. Árið 1963 kom fram 406-módelið, sem var búið fjögurra strokka OM312 dísilvél. Hún skilaði 65 hestöflum, eða 48 kílówatta afli. Milligerðin 406/416-módelið sem var svipað en með 2.900 mm hjólabili í stað 2.380 mm sem var í 406-módelinu. Haldið var áfram að endurbæta Unimog og seinni gerðir fengu öflugri 80 hestafla OM352-dísilvélar með beinni innspýtingu sem reyndar var fundin upp hjá Fiat á Ítalíu. Aflið jókst og fór fljótlega upp í 110 hestöfl. Hundraðþúsundasti Unimog- bíllinn Á milli upphaflega Unimog frá 1955 og milligerða hans var framleidd 421/403 „léttútgáfa“ sem varð síðar grunnur að 413-gerðinni. Var 421-módelið með 2.380 mm hjólabili á meðan 403-útgáfan var með 2.250 mm hjólabili. Þá var vélin 421/U, sem var 2,2, lítra og 40 hestöfl, sótt í fólksbílalínu Benz. Einnig var í boði 54 hestafla 403/U, sem var 4,8 lítra vél. Velgengni Unimog sem torfærutækis var mikil og á árinu 1966 kom 100 þúsundasti Unimog-bíllinn úr verksmiðjunni í Gaggenau. MB-Trac var afturhvarf til upprunans Þar sem Unimog var kominn svolítið frá uppruna sínum sem landbúnaðartæki þróaði Daimler Benz nýtt tæki árið 1972 sem ætlað var til landbúnaðarnota. Það var MB-Trac, sem byggði á fjórhjóladrifstækni frá Unimog. Þó að þetta tæki nyti ekki mikilla vinsælda var frá MB-Trac 65 til MB-Trac 70 (síðar 700) þróað enn öflugra tæki sem kallað var MB-Trac 1800. Í kjölfarið rann MB-Trac framleiðslan inn í Deutz AG-dráttarvélafyrirtækið en framleiðslu á MB-Trac var hætt árið 1991. Árið 1974 kom fram enn öflugri Unimog, U 120 af seríu 425 með nútímalegra útliti en áður. Hjólabilið var þá orðið 2.810 mm og heildarþyngd með 120 hestafla vél og farmi allt að 9 tonn. Síðan kom 125 hestafla vél í U-125 gerðina af Unimog. Árið 1975 hófst framleiðsla á 435-gerðinni, sem byggði á 4040 S-bílnum en með meira hjólabili. Þar var um að ræða þrjár gerðir með 3.250 mm hjólabili, 3.700 mm og 3.850 mm. Árið 1976 var hafin framleiðsla á 424-seríunni sem var milligerð. Síðan komu fram U 1000, U 1.300/L, U 1500 og flaggskipið U 1700/L, sem var með 169 hestafla vél. Þarna stendur L fyrir mikið hjólahaf eða „Long wheelbase“. Fleiri gerðir voru einnig hannaðar: U 600/L, U 900 og U 1100/L. Athygli vakti að allar gerðir Unimog frá 1976 voru með diskabremsum og var Unimog þar sagður vera mörgum árum á undan öðrum hvað slíkan bremsubúnað í trukkum varðar. Bíll númer 200 þúsund af færibandinu árið 1977 Á árinu 1977 rann 200 þúsundasti Unimog-bíllinn af færibandinu. Á árinu 1980 var framleiðslu svo hætt á U404-gerðinni. Á árinu 1985 komu fram tvær nýjar gerðir, önnur léttbyggð af gerðinni 407 og svo 427 sem var millistærðarbíll. Á árinu 1988 var framleiðslu hætt á 406-gerðinni og einnig á 427-bílnum. Nýtt „létt“ módel af Unimog kom fram á sjónarsviðið árið 1992. Það voru U90, sem byggði á 408-seríunni, U110 og U140. Þessir bílar voru með nýrri hönnun á húsi. Voru þeir með innbyggðri loftþjöppu þar sem hægt var að pumpa í dekkin á ferð, eins og íslenskir jeppamenn þekkja vel í dag. Þá voru þeir einnig með skriðvörn og vélin í U90 var fengin í fólksbílalínu Benz. Einnig var boðið upp á „Servolock“-glussatengibúnað. 6x6 Unimog og teppalagði lúxusvagninn Funmog Árið 1993 kom fram þriggja öxla Unimog U 2450 L 6x6 með drifi á öllum hjólum. Árið 1994 smíðaði Unimog tólf lúxuseintök sem nefnd voru „Funmog“. Voru þessir vagnar teppalagðir í hólf og gólf og með leðursætum og kostuðu þá frá 150.000 þýskum mörkum (DM). Árið 1966 var hafin framleiðsla á UX100-bílnum, sem hannaður var sérstaklega til að geta ekið á gangstéttum og á göngustígum. Þessi framleiðsla var síðan seld til HACO, sem sérhæfði sig í slíkum tækjum. Framleiðslan flutt frá Gaggenau Glæný gerð af Unimog, svokallað UGN-módel, kom fram árið 2000. Voru þá kynnt til sögunnar UGN/405: U300/U400/U500. Árið 2002 var framleiðslan á Unimog flutt frá Gaggenau til Mercedes-Benz-LKW- Montagewerks í Wörth am Rhein, en þar var stærsta vörubílaverksmiðja í Evrópu. Í framhaldinu voru kynnt U3000-U5000 módelin (437.4). Svarta útgáfan „Unimog U 500 Black Edition“ Í desember 2005 var kynnt á bílasýningunni Dubai Motor Show „Unimog U 500 Black Edition“ sem sérstaklega var hannaður fyrir ríka íbúa Persaflóaríkjanna. Var þar byggt á svipaðri hugmynd og komu fram með Funmog. Frá 2006 hefur Unimog verið framleiddur með „BlueTec“- eldsneytiskerfi til að standast æ strangari mengunarstaðal Evrópusambandsins. Á IAA- atvinnubílasýningunni 2006 var kynnt U20-gerðin sem fór í framleiðslu 2007. Það sem vakti einna mesta athygli við þennan bíl var að búið var að sníða húddið af að mestu frá því sem var á hefðbundnum Unimog. Heildarþyngd á þessum bíl var 7,5 til 8,5 tonn og sporvídd 2.700 mm. Sannkallað fjölnotatæki Í dag er UNIMOG vegna fjölhæfni sinnar einkum vinsæll hérlendis í þjónustu sveitarfélaga, verktaka og orkufyrirtækja. Hægt er að fá þessa bíla með mjög fjölbreyttan búnað, eins og slökkvibúnað, snjótennur, snjóblásara, mokstursskóflu, krana, gröfu, götusópa, sláttuvélar og fjölmörg önnur tæki, eins og vélbyssur. Mercedes-Benz Unimog er nú fáanlegur með fjögurra og sex strokka vélum frá 156 til 354 hestöflum. Þýtt og endursagt/HKr. Unimog var upphaflega hannaður sem sambland af dráttarvél og fjölnota bíl Unimog af árgerð 1947 á safni í Þýskalandi. Sérstæður drifbúnaður út í hjól hefur alla tíð einkennt Unimog. Einkennismerki Uni- mog áður en Benz yfirtók starfsemina árið 1951. Unimog af árgerð 2013 með tvöföldu húsi. Önnur sérhæfð útgáfa af Unimog árgerð 2013. Fjölhæfur Unimog hjá þýska hernum. Unimog 2014 með einföldu húsi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.