Bændablaðið - 06.06.2013, Side 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júní 2013
6 7 1
4 8
1 2
7 2 6 3
8 1
7 8
2 7
4 6 5 7
1 3 4
6 8 9
6 7 3
5 1 6 8
9 5 7
9 8
1 6 8
5
3 6
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-
þrautirnar er að setja réttar
tölur frá 1-9 í eyðurn ar. Sama
talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóð rétt
og heldur ekki innan hvers
reits sem afmarkaður er af
sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar,
sú sem er lengst til vinstri er
léttust og sú til hægri þyngst
en sú í miðjunni þar á milli.
7
Bergþóra er í 9. bekk Grunnskólans
í Borgarnesi. Hún á enga
uppáhaldshljómsveit en hefur
mikinn áhuga á fótbolta. Í sumar
ætlar hún að vinna og spila
fótbolta.
Nafn: Bergþóra Lára Hilmarsdóttir..
Aldur: 14 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Borgarnes.
Skóli: Grunnskólinn í Borgarnesi.
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Nautakjöt.
Uppáhaldshljómsveit: Engin sér-
stök.
Uppáhaldskvikmynd: Engin sérstök.
Fyrsta minningin þín? Portúgal.
hljóðfæri? Fótbolta.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Hellingur af hlutum.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Ekki hugmynd.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Farið í sling shot.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þú hefur gert? Að svara þessum
spurningum.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í
sumar? Vinna og spila fótbolta.
Hlýr samfest -
ingur á krílið
PRJÓNAHORNIÐ
Stærð: 1-3, 6-9,12-18 mánaða 2-3 ára.
Efni: Gipsy garn frá Kartopu.
350-350-400-450-500 gr blágrænt
líka til í hvítu-rauðu-grænu-svörtu-rjómahvítu-
vínrauðu-bláu- ljósgráu og dökkgráu.
fjólubláu og brúnu. Eplagrænn og appelsínu-
gulur koma í júní.
Fæst í A4 Smára, Skeifu, Akureyri.
Efnalaug Dóru, Höfn í Hornafirði
Efnalaug Vopnafjarðar.
Fjarðarkaup Hafnarfirði
Hannyrðabúðin Selfossi
Klexi Akranesi
Litir og föndur
Snældan Húsavík
Volare Vestmannaeyjum.
Prjónar: Sokkaprjónar og hringprjónar nr 7,
60 cm.
Prjónafesta: 12 lykkjur x 18 umferðir gera
10x10 cm.
Tölur 5-5-5-6-6 stk nr Uk 31795 sjá www.garn.is
Aðferð:
Prjónað neðan frá og upp. Skálmarnar prjón-
aðar þannig að fyrstu 5 cm eru prjónaðir slétt
önnur umferðin og brugðin næsta þannig að
myndist garðaprjón síðan sléttprjón í hring á
sokkaprjóna nr 7.
Bolur prjónaður fram og til baka sléttprjón nema
6 í byrjun og enda umferðar og gerð hnappagöt
annaðhvort á vinstri eða hægri lista eftir því
hvort samfestingurinn er á strák eða stelpu.
Vinstri skálm:
Prjónað á sokkaprjóna.
Fitja upp 26-28-30-34-36 skipt á 4 prjóna nr 7.
Prjóna slétta umferð og brugðna til skiptis til að
myndist garðaprjón 5 cm.
Prjóna síðan slétt prjón í hring en setjið merki
við byrjun umferðar innanfótar.
Þegar skálmin mælist 10 cm.er aukið út sitt
hvoru megin við merkið og það endurtekið
2-2-2,5-3-4 hvern cm alls 4-5-6-6-7 sinnum,
samtals eiga þá að vera 34-38-42-46-50 lykkjur
á prjónunum.
Þegar skálmin mælist 20-23-27-30-38 cm.eru
felldar af 2 l.vinstra megin við merkið (aftan á
skálminni) þá eiga að vera 32-36-40-44-48 l.á
prjónunum.
Geyma skálmina og prjóna hægri skálmina eins,
nema fella af 2 l. í lokin hægra megin við merkið
þ.e. aftan á þeirri skálm.
Bolur:
Fitjið upp 4 l.sem er miðjan á bolnum að framan
á hringprjón nr 7, prjónið hægri fótinn inn á
hringprjóninn slétt, prjónið síðan vinstri fótinn
inn og að lokum eru fitjaðar upp 4 l.sem er listinn
hinum megin á samfestingnum. Þessi listi er
síðan alltaf prjónaður í garðaprjóni 6 l.alla leið
upp.
Nú eiga að vera 72-80-88-96-104 l.á prjóninum.
Setjið nú merki í bolinn eftir 19-21-23-25-27
l. frá hvorri hlið, þetta eru hliðarnar á bolnum.
Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 6
l.garðaprjón í byrjun og enda hverrar umferðar
fyrir lista en munið að gera ráð fyrir hnappa-
götum sem eru gerð svona:
Fellið af 3ju lykkju frá kanti og fitjið síðan upp 1
lykkju í næstu umferð þar sem l.var felld niður.
Fyrir 1-3 mánaða eftir 22-29-36-43 og 49 cm.
Fyrir 6-9 mánaða eftir 26-34-42-50 og 58 cm.
Fyrir 12-18 mánaða eftir 30-39-48-57 og 66 cm.
Fyrir 2ja ára eftir 33-41-49-57-65 og 72 cm.
Fyrir 3-4 ára eftir 41-48-56-36-71 og 78 cm.
Þegar bolurinn mælist 43-51-59-64-69 cm.eru
framstykkin sem búið var að merkja fyrir sett á
hjálparprjóna og bakstykkið prjónað sér.
Bak:
Bakstykkið á að vera 34-38-42-46-50 l .
Þá eru fitjaðar upp l. til hliðanna fyrir ermar.
Fitjið laust upp í enda hverrar umferðar sem eru
prjónaðar slétt 4 l, 2-2-3-3-3 sinnum og 10-11-
10-14-18 l einu sinni,þá eiga að vera 70-76-86-
98-110 l. á prjóninum eftir síðustu uppfitjun
báðum megin. 5 ystu lykkjurnar báðum megin
eru alltaf prjónaðar með garðaprjóni það er
neðst á hvorri ermi.
Þegar allur bolurinn frá byrjun skálmar
mælist 53-62-71-77-83 cm.eru felldar af
miðjulykkjurnar fyrir hálsinn 8-10-10-12-12 l.
og hvor öxl prjónuð fyrir sig.
Fellið af 1 l.fyrir hálsinn þá eiga að vera 30-32-
37-42-48 l. eftir sem eru öxl og ermi.
Þegar samfestingurinn mælist 55-64-73-79-
85 cm.þá eru lykkjurnar settar á hjálparprjón
og geymdar.
Vinstra framstykki:
Á að vera 19-21-23-25-27 l .
Fitjið upp fyrir ermi eins og á bakstykkinu þar
til 37-40-45-51-57 l eru á prjóninum. Munið að
prjóna ystu 5 l. á erminni alltaf með garðaprjóni.
Og 6 l. fyrir miðju með garðaprjóni munið að
gera ráð fyrir hnappagötum hvort sem er á
vinstri eða hægri lista.
Þegar samfestingurinn mælist 51-60-68-74-80
cm.frá byrjun er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun
hverrar umferðar hálsmegin, 6 l.einusinni og 1 l.
1-2-2-3-3 sinnum samtals eiga þá að vera 30-32-
37-42-48 l. á prjóninum sem eru ermi og öxl.
Geymið l.á hjálparprjóni þegar stykkið mælist
ca 55-64-73-79-85 cm.eða jafn langt og
bakstykkið.
Hægra framstykkið er prjónað eins nema
speglað. Muna hnappagötin ef þau eiga að
vera á hægri lista
Samsetning:
Lykkja fallega saman, fram og bakstykki
á öxlunum, við gerðum það þannig að við
hekluðum
saman með því að draga eina lykkju af bakstykki
gegnum eina lykkju af framstykki sitt á hvað og
drógum enda gegnum síðustu lykkjuna.
Sauma saman undir ermunum, leggið listana
saman þannig að hnappagötin verði ofaná og
saumið fast neðst ásamt því að sauma opið milli
skálmanna.
Spæll:
Fitjið upp 5 lykkjur á sokkarprjón og prjónið
snúru þannig að þegar búið er að prjóna umferð-
ina á enda þá er aftur byrjað á sömu lykkju og í
fyrri umferðinni. Prjónið 15 cm og fellið síðan af.
Kragi:
Takið upp 26-30-32-34-38 l. kring um hálsinn
sleppa listanum .
Prjónið garðaprjón fram og tilbaka .
Setjið merki við axlarsauminn báðum megin og
aukið út sitthvoru megin við merkið í 4. hverri
umferð þar til kraginn mælist 5-5-6-6-7 cm .
Fellið laust af.
Saumið tölurnar í þannig að þær standist á við
hnappagötin.
Festið spælinn á mitt bakið ca. þar sem mitti
barnsins er og teygið vel á honum þannig að
myndist smá rykking undir honum.
Góða skemmtun,
Inga Þyri Kjartansdóttir.
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Ætla að vinna og spila fótbolta í sumar
5
3
Létt
4 2
8 5
1 9 7 4
2 6 4
3 8
7 4 9
6 8 4 1
7
3 5
2
ÞungMiðlungs
Spællinn á miðju bakinu.
Hér sést samsetning á öxlinni.