Bændablaðið - 21.03.2013, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. mars 2013
Landsýn, vísindaþing landbúnaðarins, haldið á Hvanneyri:
Bygg gæti orðið meginuppistaða
í kjarnfóðri íslenskra kúa
Bygg gæti verið meginuppistaða
í kjarnfóðri fyrir íslenskar kýr.
Í fyrirlestri Grétars Hrafns
Harðarsonar á Landsýn, vísinda-
þingi landbúnaðarins, um hlut
byggs í fóðrun mjólkurkúa kom
ótvírætt fram að bygg gæti verið
meginuppistaða í sterkjufóðrun
kúa. Þær niðurstöður eru afar
mikilvægar fyrir kúabændur og
raunar þjóðarbúið allt. Með því
er sýnt fram á að aukin bygg-
ræktun gefur möguleika á auk-
inni sjáfbærni í fóðuröflun og að
hægt sé að draga úr innflutningi
á kornvöru.
Kostnaður mismunandi milli
landssvæða
Varpað var fram spurningum um
hversu mikill kostnaður lægi í bygg-
ræktun hérlendis. Við hagstæð skil-
yrði ætti að vera hægt að rækta bygg
hér á landi með svipuðum kostnaði
og gróffóður. Það er þó afar mismun-
andi milli svæða á landinu en engu að
síður er niðurstaðan sú að eðlilegt sé
að auka byggrækt verulega til að nýta
þá möguleika sem fyrir hendi eru.
Rannsóknin sem niðurstöðurnar
byggja á fór fram á Stóra-Ármóti
veturinn 2008-2009. Í henni voru
áhrif mishás hlutfalls byggs í fóðri
mjólkurkúa metin í samhengi við
át, afurðir og efnainnihald mjólkur.
Bein áhrif af mismunandi háu hlut-
falli byggs í fóðri kúnna í þessari
tilraun voru lítil hvað varðar magn
og efnainnihald mjólkurinnar. Hins
vegar voru nokkur áhrif á át kúnna,
í þá veru að vaxandi hlutfall byggs
leiðir til meira heildaráts. Líkleg
skýring er að lystugleiki sé meiri,
og e.t.v. er betra vambarumhverfi
í þeim kúm sem mest fengu af
byggi. Ekki var munur á afurðum
nema hjá fyrsta kálfs kvígum þar
sem kvígur sem fengu mest bygg
mjólkuðu best.
Bygg getur orðið
meginuppistaðan í sterkjufóðrun
Tilraunin sýnir á ótvíræðan hátt að
bygg getur verið meginuppistaðan
í sterkjufóðrun mjólkurkúa, a.m.k.
þegar heilfóður er gefið. Engar vís-
bendingar komu fram sem bentu til
þess að hátt hlutfall byggs í heildar-
fóðri hefði neikvæð áhrif á heilsufar
eða afurðir.
Niðurstöður þessarar tilraunar
eru mjög mikilvægar fyrir
kúabændur og jafnframt þjóðarbúið
því þær gefa okkur möguleika
á aukinni sjálfbærni og minni
innflutningi á kornvöru. /fr Frá Vísindaþingi landbúnaðarins sem haldið var á Hvanneyri í fyrri viku. Myndir / fr
Stæðuverkun á votheyi
komin til að vera
Verkun á lausu votheyi á Íslandi
hefur aukist mjög á síðustu árum.
Árið 2000 nam laust vothey 2,3
prósentum af því gróffóðri sem
aflað var á Íslandi en það hlutfall
jókst jafnt og þétt í 21,8 prósent
árið 2010. Meðal ástæðna aukins
áhuga bænda á verkun á lausu
votheyi, einkum í útistæðum, er
jafnara fóður, sem þeir telja síst
lakara en stórbaggahey. Þá telja
bændur fóðrið fyrnast og étast
betur og að kostnaður sem fylgi
verkunartækninni sé minni.
Þetta kom fram í erindi Helga
Eyleifs Þorvaldssonar, Verkun og
gæði heyja í stæðum og flatgryfjum,
sem hann flutti á Vísindaþingi land-
búnaðarins. Erindið er byggt á
BS-verkefni Helga við Landbúnaðar-
háskóla Íslands (Lbhí) sem unnið
var á árunum 2011-12. Tilgangur
verkefnisins var að kortleggja
hlut, verkun og fóðurgildi votheys
í stæðum og flatgryfjum á völdum
kúabúum á Íslandi. Auk þess voru
ástæður fyrir vaxandi áhuga bænda á
að verka gróffóður í stæður kannaðar.
Hirðingar- og verkunarsýni voru
fengin af tíu völdum kúabúum á land-
inu. Bændur búanna voru teknir í við-
tal þar sem almennar upplýsingar um
búin voru skráðar, auk reynslu og við-
horfs bænda til fóðurverkunarinnar.
Að mati bændanna sem við var rætt
eru helstu kostir stæðugerðar tíma-
sparnaður við heyskap, jafnara fóður,
minni kostnaður og betri nýting
fóðurs. Af tíu bændum sem var talað
við töldu níu að heyverkunin stæði
undir væntingum. Gallana töldu þeir
fáa, helsta þá að tími við gjafir væri
heldur meiri en verið hefði.
Mikilvægt er að stæður séu
hannaðar í samræmi við bústærð
og aðstæður en almennt telur Helgi
að lægri og mjórri stæður gefi
betri raun, bæði varðandi þjöppun,
verkun og gjafir. Fóðrið á búunum
má telja gæðafóður en mikilvægt er
að bændur kynni sér vel helstu atriði
varðandi stæðugerð áður en þeir fara
út í slíka verkun. /fr
Rá
ða
nd
i -
a
ug
lý
sin
ga
st
of
a
eh
f
BYLTING Í SÓTTHREINSUN
Sagewash sótthreinsikerfið
Hlutlaust efni sem drepur
bakteríur sem valdið geta
sýkingum, ásamt því að halda
tækjum, gólfi og veggjum
skínandi hreinum. Hafðu
samband við ráðgjafa KEMI
og fáðu nánari upplýsingar.
Heimild til gjaldtöku
Með bréfi, dags. 21. febrúar 2013, staðfesti
atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra
nýja gjaldskrá Ráðgjafarmiðstöðvar land-
búnaðarins ehf. Með bréfinu var hinu nýja
félagi veitt heimild til að innheimta að
hámarki kr. 5.000,- auk vsk. pr. klst. fyrir
vinnu við sérfræðistörf sem falla undir
búnaðarlög. Hin nýja gjaldskrá kemur í stað
gjaldskrár Bændasamtaka Íslands sem og
annarra gjaldskráa búnaðarsambandanna.