Bændablaðið - 21.03.2013, Blaðsíða 49

Bændablaðið - 21.03.2013, Blaðsíða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 21. mars 2013 Íslendingar hafa alltaf verið mikil jeppaþjóð allt frá því að fyrsti fjórhjóladrifnu jepparnir komu til landsins. Á tímabilinu frá 1950 til 1970 voru Land Rover-bílarnir mest seldu jepparnir, en upp úr 1970 komu jeppar sem voru þægilegri, kraftmeiri og vandaðari smíði að kröfu notenda. Í nokkur ár hefur verið á markaði Land Rover Discovery 4 sem hefur raðað inn verðlaunum og viðurkenningum. Discovery 4 er hlaðinn þægindum Discovery 4 af árgerð 2013 er til sölu og sýnis hjá BL Sævarhöfða. Þetta er jeppi sem kostar sitt en það er mikið í hann spunnið, eins og ég komst að raun um. Margar útgáfur eru af Discovery á mismunandi verði, en bíllinn sem ég ók var SE-útgáfan og er hlaðinn ýmsum þægindum. Strax og ég settist inn í bílinn leið mér vel, þægindin voru alls staðar og full langur listi til að telja upp hér í stuttri yfirferð um bílinn. Hitarinn í sætunum var fljótur að hita leðursætin þó að það hafi verið töluvert frost þegar ég prófaði bílinn. Hiti er í öllum sætum í SE-bílnum og ég man ekki eftir að hafa keyrt bíl áður sem var með hitara í aftursætunum. Líka með hita í stýrinu Það sem kom mér mest á óvart og ég var hrifnastur af var hitinn í stýrinu, en ekki minnist ég þess að hafa keyrt bíl áður sem var með upphitað stýri. Miðstöðin var mjög fljót að hita bílinn upp að innan og þá eru hljómflutningstækin einstaklega góð, 9 hátalarar og 240W magnari sem skilar einstaklega góðum hljómburði. Þegar ég sótti bílinn á föstudagskvöld hafði ég viðkomu í búð á heimleiðinni. Farangursrýmið aftur í er stórt og gott að hlaða inn í bílinn. Snemma á laugardagsmorgun keyrði ég upp á Mosfellsheiði og sýndi hitamælirinn í mælaborðinu að úti væri 9 stiga frost. Tölvustýrt drif og fjöðrunarkerfi Á leiðinni prófaði ég spólvörnina og bremsur, en spólvörnin virkar mjög vel og er Discovery fljótur að ná ferð þó að undir sé flughált. Tölvustýrða drifið vinnur með fjöðruninni (Terrain Response) og sér til þess að hvert hjól nái hámarksgripi. Ég var ekkert sérstaklega hrifinn af stöðvunarvegalengdinni, þar sem hjólbarðarnir sem bíllinn kemur á eru ekkert sérstaklega góðir til að bremsa í hálku þó svo að þeir grípi vel áfram. Að þessum sökum mæli ég með því að þeir sem keyra svona bíla í hálku kaupi sér betri dekk til hálkuaksturs, eða hagi akstrinum í það minnsta meðvitað um að þessi dekk séu ekkert sérstök þegar virkilega þarf að bremsa (það er aldrei of oft hamrað á að fara varlega og keyra eftir aðstæðum). Mikill kraftur Krafturinn í sex strokka dísilvélinni er hreint unaðslegur enda á vélin að skila 210 hestöflum og viðbragðið úr kyrrstöðu er næstum því hættulegt gagnvart punktasöfnun í ökuferilsskrána. Á malbiki liggur bíllinn vel og tók ég sérstaklega eftir hversu vel fjöðrunin tók hvassar hraðahindranir sem gefa flestum bílum högg, en Discovery fer yfir svona hraðahindranir mýkst af öllum bílum sem ég hef keyrt. Á malarvegi er fjöðrunin góð og ekkert veghljóð undir bílnum. Það eina sem ég sá athugavert var að bíllinn er mikill sóði á aftur- hlerann eftir rykið á malarveginum sem virtist sogast á afturgaflinn. Í ófærum og á vondum vegum er hægt að stilla fjöðrun á bíln- um og í mælaborðinu með einum takka er hægt að hækka hann, sem ætti að koma sér vel á vegslóðum sem eru mikið grafnir með djúpum hjólförum, svipað og er meðfram mörgum veiðiám. Sjaldan er ég orðlaus Prufuaksturinn var óvenjulangur og verð ég að viðurkenna að ég skemmti mér svo vel að ég vildi helst ekki skila bílnum. Þegar ég lendi á svona skemmtilegum bíl verð ég stundum orðlaus og á erfitt með að lýsa hrifningu minni. Það gerist sjaldan en þessi bíll gerði mig orðlausan. Það voru erfið skref að labba í gamla 13 ára 100 hestafla jepp- linginn minn að prófun lokinni á Land Rover Discovery 4 SE, en núna skil ég betur þessa miklu bílaást kunningja minna sem eiga Discovery. Land Rover Discovery 4: Hlaðinn þægindum Vélabásinn hlj@bondi.is Hjörtur L. Jónsson Verð: (Sjálfskiptur) 10.990.000 Lengd: 4.829 mm Breidd: 2.176 mm Þyngd: 2.583 kg. Hestöfl: (1,3 L, 16v) 210 Í nokkur ár hefur verið á markaði Land Rover Discovery 4 sem hefur raðað inn verðlaunum og viðurkenningum. Myndir / HLJ bremsun í hálku. Bætt bros - betri líðan Nýsmíði gervigóma Gervigómar, viðgerðir og fóðranir Samningur við Tryggingstofnun Ríkisins Halldóra Friðriksdóttir Hlíðasmára 9 - sími 565 5650
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.