Bændablaðið - 21.03.2013, Qupperneq 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 21. mars 2013
Menntun og fyrri störf: Stúdent
frá Fjölbrautarskóla Suðurlands.
Samvinnuskólapróf frá Bifröst.
Búfræðingur frá Hvanneyri. BS
í búvísindum frá Hvanneyri.
Héraðsráðunautur hjá Búnaðar-
samtökum Vesturlands 1993 –
1999. Forstöðumaður Nautastöðvar
BÍ á Hvanneyri 1999 – 2003.
Landsráðunautur í hrossarækt 2004
– 2012.
Nafn: Pétur Halldórsson.
Starfsheiti: Ráðunautur í hrossa-
rækt.
Starfsstöð: Hvolsvöllur.
Uppruni og búseta: Af skaftfellsku,
rangæsku og prússnesku bergi brot-
inn. Búsettur á Hvolsvelli.
Menntun og fyrri störf: Stúdent
frá Menntaskólanum að Laugarvatni
1994. Búfræðingur frá Hvanneyri
1997. Búfræðikandídat frá
Hvanneyri 2001. Ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Suðurlands frá
vori 2001 til áramóta 2012-2013.
Viðfang m.a.: Sýningastjórn/
framkvæmd kynbótasýninga hrossa,
skýrsluhald hrossa (W-Fengur),
örmerkingar, DNA-sýnatökur,
túnkortagerð, jarðabótaúttektir,
umsóknagerð ýmiss konar.
Nafn: Steinunn Anna Halldórsdóttir.
Starfsheiti: Ráðunautur í hrossa-
rækt.
Starfsstöð: Sauðárkrókur.
Uppruni og búseta: Brimnes í
Skagafirði.
Menntun og fyrri störf: Stúdent
frá Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki, Ráðunautur
frá Landbúnaðarháskóla Íslands
á Hvanneyri, hestafræðingur og
leiðbeinandi frá Háskólanum á
Hólum, kynbótadómari. Starfaði sem
hrossa og sauðfjárræktarráðunautur
á Leiðbeiningamiðstöðinni á
Sauðárkróki, kom einnig að
nautagriparækt og kúadómum, sá
um pappírsvinnu og innslátt gagna
er viðkoma forðagæslu.
Nafn: Halla Eygló Sveinsdóttir.
Starfsheiti: Ráðunautur í hrossa-
rækt.
Starfsstöð: Selfoss.
Uppruni og búseta: Búsett á Selfossi
en ættuð frá Tröðum á Mýrum og
Húsavík Eystri í Borgarfjarðarhreppi.
Menntun og fyrri störf: Búfræð-
ingur frá Hvanneyri árið 1988 og
búfræðikandídat frá Hvanneyri árið
1993. Starfaði fyrst sem héraðs-
ráðunautur hjá Búnaðarsambandi
Austur-Skaftfellinga frá árinu 1994-
1998 og síðan frá árinu 1998 til 2013
hjá Búnaðarsambandi Suðurlands.
Skýrsluhald
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
hefur yfirumsjón með skýrsluhaldi
í búfjárrækt á landinu öllu og er það
ein af grunnstoðum kynbótastarfs
búfjárræktarinnar. RML býður víð-
tæka þjónustu og ráðgjöf varðandi
allt er að skýrsluhaldi lýtur en starfs-
menn þess eru sérfræðingar í skýrslu-
haldskerfum búfjárræktarinnar eins
og Huppu (www.huppa.is), Fjárvísi
(www.fjarvis.is) og WorldFeng
(www.worldfengur.com).
Vanti þig upplýsingar, aðstoð eða
vilt hefja þátttöku í skýrsluhaldi er
þér velkomið að hafa samband við
annað hvort neðangreinda starfs-
menn eða fagráðunauta viðkomandi
búgreinar.
Nafn: Anna Guðrún Grétarsdóttir.
Starfsheiti: Yfirumsjón skýrsluhalds
Starfsstöð: Akureyri.
Uppruni og búseta: Svarfdælskur
Skagfirðingur sem ákvað að búa
„mitt á milli“ að Fornhaga II,
Hörgársveit. Hrossabóndi og hobbý
sauðfjárbóndi sem unir hag sínum
vel í Hörgárdalnum ásamt maka og
tveimur sonum.
Menntun og fyrri störf: Ýmislegt
búið að nema og starfa en var síðast
skýrsluhaldsfulltrúi hjá BÍ.
Nafn: Sigurður Kristjánsson
Starfsheiti: Skýrsluhald.
Starfsstöð: Reykjavík.
Uppruni og búseta: Er frá
Ketilsstöðum á Tjörnesi. Búsettur
í Reykjavík.
Menntun og fyrri störf:
Búfræðikandídat frá LbhÍ, var
bóndi í Skuggahlíð í Norðfirði
um tíma, síðan ættfræðingur hjá
Íslendingabók. Var skýrsluhalds-
fulltrúi í nautgriparækt hjá
Bændasamtökum Íslands til síðustu
áramóta, starfar nú við skýrsluhald
og prófarkalestur hjá RML.
Nafn: Kristín Helgadóttir.
Starfsheiti: Skýrsluhald.
Starfsstöð: Reykjavík.
Uppruni og búseta: Er frá Gröf
í Miklaholtshreppi, en búsett í
Reykjavík.
Menntun og fyrri störf: Ýmislegt
búið að nema og starfa en var síðast
þjónustufulltrúi í tölvudeild BÍ, en
hef starfað hjá BÍ síðustu 11 ár.
Loðdýrarækt
Starfsmenn RML sérhæfa
sig í öllu sem snýr að fóðrun,
hirðingu, skýrsluhaldi, kynbótum
og aðbúnaði dýra með það að
markmiði að bændur framleiði
sem besta vöru inn á heimsmarkað
fyrir verð sem er samkeppnishæft í
alþjóðlegu samhengi. Við leggjum
áherslu á að flytja inn upplýsingar
um tækniframfarir og aðrar nýjunar
í greininni ásamt því að upplýsa
bændur sem best um stöðu íslensku
framleiðslunnar í samanburði við
samkeppnisþjóðirnar. Til RML má
leita hvort sem það er nýir aðilar í
greininni, þeir sem hafa áhuga á
að kynna sér hana eða starfandi
bændur sem vilja meiri upplýsingar
um hvað eina sem snýr að þeirra
rekstri.
Nafn: Einar Eðvald Einarsson.
Starfsheiti: Ráðunautur í
loðdýrarækt.
Starfsstöð: Sauðárkrókur .
Uppruni og búseta: Fæddur á
Akranesi 2. janúar 1971, sonur
hjónanna Einars Eylerts Gíslasonar
og Ásdísar Sigurjónsdóttir sem þá
voru ábúendur á Hesti í Borgarfirði.
Hefur frá árinu 1974 búið að
Syðra-Skörðugili í Skagafirði og
tók þar við rekstri loðdýrabúsins
árið 2000. Er kvæntur Sólborgu
Unu Pálsdóttur frá Sauðanesi í
Austur-Húnavatnssýslu og eiga þau
dótturina Eddu Björgu. Samhliða
vinnu hjá RML er fjölskyldan
með minkabú í rekstri að Syðra-
Skörðugili.
Menntun og fyrri störf: Er með B.Sc.
próf frá Landbúnaðarháskólanum
á Hvanneyri 1997 og M.Sc. frá
Danska Landbúnaðarháskólanum í
Kaupmannahöfn árið 1999. Hefur
unnið sem Landsráðunautur í
loðdýrarækt hjá Bændasamtökum
Íslands frá 1999. Mun vinna áfram
hjá RML að ákveðnum verkefnum
tengdum minkarækt í um það bil
60% starfshlutfalli.
Vökvunarbúnaður fyrir ræktunarsvæði í mörgum útfærslum
Hákonarson ehf. s. 892-4163, netfang: hak@hak.is vefslóð: www.hak.is
Sjálfvirk slöngukefli eða lausar slöngur
með kúplingum.
Sjálfsogandi, traktorsdrifnar dælur.
Bensínknúnar dælur með Honda mótorum,
allt að 4”
Dieseldrifnar dælur í mörgum stærðum.
Námsskeið:
Aðlögun að lífrænum búskap
– fyrstu skrefin
Námsskeið verður haldið á vegum Lífrænu akademíunnar í Reykjavík föstudaginn
19. apríl 2013 um lífræna aðlögun, framleiðslureglur, leiðbeiningar, eftirlit og
vottun, aðlögunarstuðning, vinnslu og markaðssetningu lífrænna afurða. Kjörið
tækifæri fyrir bændur og aðra sem hyggjast hefja lífræna ræktun og afla sér þekk-
ingar.
Skráning: ord@bondi.is og tun@tun.is eigi síðar en 10. apríl.
Þátttökugjald: Kr. 6.500.
Fundarstaður og tímasetningar auglýst síðar.
Lífræna akademían er samstarfsverkefni fag- og hagsmunaaðila á sviði lífrænnar framleiðslu
Bændasamtök Íslands – Vottunarstofan Tún – VOR, Félag framleiðenda í lífrænum búskap