Fréttatíminn - 23.09.2011, Page 2
YFIR 20 GERÐIR GASGRILLA
Á ÚTSÖLUNNI
• Stærð: 149 x 110 x 60 cm
Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400
ÚTSALA
Er frá Þýskalandi
fyrir íslenskar
aðstæður
Frábært grill
FULLT VERÐ
54.900
39.900
Mikil orka 16,5 kw/h
3 kraftmiklir brennarar
Ryðfrítt lok og takkaborð
Emaleraðar grillgrindur
Viðargrind er fáanleg
svört eða viðarlituð
Innbyggð neistakveikja
Skúffa fyrir fitu. Hitamælir
Grillflötur 64 x 49cm
YFIR 30 GERÐIR
GASGRILLA
Á ÚTSÖLUNNI
Matgæðingar í fríi
„Þetta er auðvitað ekkert annað en hústaka.
Þeir læstu sameiginlegum inngangi og af-
tengdu lykilkort starfsfólks okkar um síðustu
helgi. Við erum með gildandi leigusamning og
í honum stendur að inngangur sé sameiginleg-
ur,“ segir Ólafur Sigurvinsson, framkvæmda-
stjóri Data Cell, í samtali við Fréttatímann.
Hann segist telja sig knúinn til að flytja fyrir-
tækið jafnvel þótt hann sé með gildandi leigu-
samning. „Mér er svo sem sama um þetta en
starfsfólki mínu liður illa í þessu andrúmslofti.
Það er nóg af húsnæði í boði,“ segir Ólafur og
bætir við að hann muni lögsækja Árvakurs-
menn fyrir hústöku og að hann ætli sér ekki að
bera kostnaðinn sem hlýst af flutningum Data
Cell úr Hádegismóum.
Óskar Magnússon, útgefandi Árvakurs,
segir í samtali við Fréttatímann að hann ætli
ekki að segja neitt um þetta mál. „Svo einfalt
er það,“ segir hann.
Ingvi Jónsson, framkvæmdastjóri Klasa sem
er leigusalinn, vildi lítið tjá sig um málið í sam-
tali við Fréttatímann. „Við erum að reyna að
leysa þetta en aðkoma okkar að málinu er tak-
mörkuð. Þarna eru tveir aðilar að deila og von-
andi finnst lausn sem allir geta sætt sig við,“
segir Ingvi.
É g mun fela lögmönnum mínum að hefja
þegar í stað mál fyrir
dómstólum til að fá
ærumeiðingar þeirra
dæmdar dauðar og
ómerkar og krefjast
skaðabóta fyrir, því
afsökunarbeiðni
þeirra fyrir svigur-
mælin og róginn
verða ekki þegin,“
segir í niðurlagi
greinargerðar Páls
Baldvins Baldvins-
sonar um kröfu
Akraneskaupstaðar,
Gunnlaugs Haralds-
sonar og Kristjáns
Kristjánssonar um
leiðréttingu og
afsökunarbeiðni
vegna bókardóms
Páls Baldvins um
Sögu Akraness í
Fréttatímanum 8.
júlí síðastliðinn.
Í kröfu Akranes-
kaupstaðar, Gunn-
laugs Haralds-
sonar, höfundar
Sögu Akraness, og
Kristjáns Kristjáns-
sonar, útgefanda
Uppheima sem
gáfu bókina út,
var þess farið á leit að beðist yrði afsök-
unar á fimmtán ummælum í dómnum og
þau leiðrétt ellegar myndu kröfuhafar
leita réttar síns fyrir dómstólum. Þegar
Páli Baldvini var birt
krafan í ágúst sagði
Árni Múli Jónasson,
bæjarstjóri á Akra-
nesi, að í dómnum
væri vegið þannig
að æru fólks að það
væri full ástæða til
að skoða það nánar.
„Einstaklingar eru
þjófkenndir og sak-
aðir um sögufals,“
sagði Árni Múli við
Fréttatímann 19.
ágúst síðastliðinn.
Í greinargerðinni,
sem er 36 blaðsíður,
leggur Páll Baldvin
fram gögn sem sýna
að staðreyndir þær
sem hann hélt fram í
dómnum eru réttar.
„Saga Akraness I.
bindi er verk unnið
af miklum metnaði sem ber höfundinn
ofurliði í fjölda kafla svo hann lætur
dómgreind lönd og leið og fer út í til-
búning um upphaf byggðar þar á Skag-
anum. Verkið byggir á mikilli notkun
mynda sem að stórum hluta eru teknar
eftir prentuðum ritum sem skilar sér í
lökum myndgæðum. Ekki er leitað til
rétthafa í fjölda tilvika svo tryggja megi
full gæði á prentun mynda í bókinni.
Höfundarréttur er í fjölda tilvika einskis
virtur, bæði hefðarréttur, frumeintaks-
réttur og höfundarréttur eru fyrir borð
bornir sem er alvarlegt brot á höf-
undarlögum og eignarréttarákvæðum
stjórnarskrár,“ segir í greinargerð Páls
Baldvins.
Hann ætlar ekki að láta þar við sitja
og hyggst stefna þeim þremur aðilum,
sem stóðu að kröfunni um leiðréttingu
og afsökunarbeiðni, fyrir dóm. Páll
Baldvin segir kröfubréfið vera alvarlega
atlögu að tjáningarfrelsi, skoðanafrelsi
og ritfrelsi hans. Jafnframt segir hann
að kröfubréfið og ummæli Árna Múla
Jónassonar, bæjarstjóra á Akranesi, í
tengslum við dóminn feli í sér „ærumeið-
andi ummæli, þau eru rógur og sverta
starfsheiður minn en ég hef allt frá 1969
haft atvinnu af umsögnum á opinberum
vettvangi um tónlist, tónleika, leikverk,
kvikmyndir og bókmenntir af ýmsu tagi.
Hér er því verið að valda stórum skaða á
orðspori mínu sem heiðarlegs og hrein-
skilins gagnrýnanda. Við þeim skaða
dugar ekki afsökunarbeiðni ...“ segir í
greinargerðinni.
Árni Múli Jónasson sagðist ekki geta
tjáð sig um greinargerð Páls Baldvins að
svo stöddu.
Matgæðingar Fréttatímans, þeir Gunnar
Smári Egilsson og Þórir Bergsson, eru komnir
í síðbúið sumarfrí. Enginn Matartími er því
í blaðinu þessa vikuna. Þeir félagar hafa
slegið í gegn með óvenju yfirgripsmikilli og
kröftugri umfjöllun um mat og matarmenn-
ingu. Fríið þeirra hófst í síðustu viku og
bárust Fréttatímanum fjölmargar fyrirspurnir
um hvort þeir væru hættir. Svo er alls ekki.
Gunnar Smári og Þórir munu taka aftur upp
potta, pönnur og lyklaborð í október.
Ráðinn forstjóri Sjóvár
Hermann Björnsson, framkvæmdastjóri
viðskiptabankasviðs Arion banka, hefur
verið ráðinn forstjóri Sjóvár. Lárus Ás-
geirsson lét af forstjórastarfi félagsins í
liðnum mánuði. Hermann lauk embættis-
prófi í lögfræði árið 1990. Að loknu námi
hóf hann störf hjá lögfræðideild Íslands-
banka og starfaði þar til 1994 er hann tók
við starfi forstöðumanns rekstrardeildar
Íslandsbanka. Árið 1999 varð Hermann
forstöðumaður útibúasviðs Íslandsbanka
og síðar aðstoðarframkvæmdastjóri þess
sviðs. Hann hóf störf hjá Kaupþingi sem
aðstoðarframkvæmdastjóri viðskipta-
bankasviðs árið 2006 og hefur verið
framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs
Arion banka frá árinu 2009. - jh
Nýr bankaskattur á að
skila 4-5 milljörðum
Meðal þess sem lagt er upp með í fjár-
lagafrumvarpi fyrir árið 2012 er sérstakur
skattur sem leggst á launakostnað eftir-
litsskyldra aðila, að því er Viðskiptablaðið
greindi frá í gær. Undir eftirlitsskylda
aðila falla bankar og tryggingafélög.
Samtök fjármálafyrirtækja funduðu með
Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra
í fyrradag vegna skattsins. Samkvæmt
heimildum blaðsins gera fyrirætlanir ráð
fyrir 10,5% skatti ofan á launakostnað.
Heimildir herma enn frekar að skatt-
inum sé ætlað að skila fjórum til fimm
milljörðum í ríkiskassann. - jh
Aflaverðmæti nær
70 milljarðar á fyrri
helmingi ársins
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 69,7
milljörðum króna á fyrri helmingi ársins
2011 samanborið við 68,4 milljarða á sama
tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því
aukist um tæplega 1,3 milljarða króna eða
1,9% á milli ára, að því er fram kemur hjá
Hagstofu Íslands. Aflaverðmæti botnfisks
var í lok júní orðið 48,4 milljarðar og dróst
saman um 4,4%. Verðmæti þorskafla
var um 24,2 milljarðar og dróst saman
um 1,6%. Aflaverðmæti ýsu nam 6,2
milljörðum og dróst saman um 27,7%, en
verðmæti karfaaflans nam 6,3 milljörðum,
sem er 1,2% aukning. Verðmæti ufsaaflans
jókst um 13,7% milli ára í tæpa 3,9 millj-
arða. Verðmæti flatfiskafla nam tæpum
5,8 milljörðum króna í janúar til júní 2011,
sem er 6,4% aukning. Aflaverðmæti upp-
sjávarafla jókst um 20,4% milli ára og nam
tæpum 13,3 milljörðum. - jh
Kaupmáttarrýrnun í
ágúst
Launavísitala í ágúst 2011 hækkaði um
0,1% frá fyrri mánuði, að því er fram kom
hjá Hagstofu Íslands í gær. Síðastliðna tólf
mánuði hefur launavísitalan hækkað um
8,0%. Vísitala kaupmáttar launa í ágúst
2011 lækkaði hins vegar um 0,1% frá fyrri
mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala
kaupmáttar launa hækkað um 2,8%. - jh
NágraNNaerjur Hádegismóar
Hótar nágrönnum lögsókn
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Ólafur Sigurvinsson stendur í ströngu í
Hádegismóum. Ljósmynd/Teitur
dómsmál umdeildur bókardómur
Stendur við hvert orð
og ætlar í skaðabótamál
Páll Baldvin
Baldvinsson,
bókagagn-
rýnandi Frétta-
tímans, hafnar
kröfu Akranes-
kaupstaðar,
Gunnlaugs
Haraldssonar
og Kristjáns
Kristjánssonar
um leið-
réttingu og
afsökunarbeiðni
vegna bókar-
dóms um Sögu
Akraness. Hann
hyggst fela lög-
mönnum sínum
að undirbúa
meiðyrðamál á
hendur kröfu-
höfum.
Páll Baldvin
Baldvinsson ætlar
í mál við Akranes-
kaupstað, Gunnlaug
Haraldsson og Krist-
ján Kristjánsson.
Saga Akraness I. bindi fékk eina stjörnu
hjá Páli Baldvini í Fréttatímanum.
2 fréttir Helgin 23.-25. september 2011