Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.09.2011, Síða 4

Fréttatíminn - 23.09.2011, Síða 4
Turninum | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi Sími 575 7500 | www.veisluturninn.is Ráðstefnur & fundir Fullkomin aðstaða fyrir allt að 500 manns Framkvæmdir við Þor- láksbúð verði stöðvaðar H iti er í mönnum á sunnan-verðum Vestfjörðum vegna vegamála í Reykhóla- hreppi sem hafa tafist árum saman vegna deilna um vegarstæði, einkum í gegnum Teigsskóg við Þorskafjörð. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hélt tvo fundi í vikunni með heimamönnum, í Bjarkarlundi og Vesturbyggð. Þar gekk stór hluti manna af fundinum í mótmælaskyni við þær hugmynd- ir sem ráðherrann hefur kynnt, það er að halda sig í meginatriðum við sama vegarstæði og nú þannig að vegurinn verði lagður yfir Hjallaháls og Ódrjúgsháls og að til greina komi að gera jarðgöng und- ir Hjallaháls síðar. Krafa heima- manna er að lagður verði láglendis- vegur því vegur yfir hálsana sé hættulegur að vetrarlagi. Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps, seg- ir fundinn með Ögmundi í Bjark- arlundi hafa verið gagnlegan þar sem ræddar hafi verið útfærslur á þeim leiðum sem fólk vill að frekar verði farnar en sú sem ráðherrann lagði til fyrir skemmstu, það er hálsaleiðin. Hún segir að sveitar- stjórnir á svæðinu hafi bent á svo- kallaða Ö-leið til sátta, það er göng undir Hjallaháls og veg vestan við Djúpafjörð og að Gufufjörður yrði þveraður að Skálanesi. „Ráðherrann er að hugsa um tíma og fjármagn en fólk vill ekki sætta sig við gamaldags veg í nú- tímaþjóðfélagi. Það vill láglendis- veg. Hann er að tala um göng eftir að vegur hefur verið lagður yfir Hjallaháls en það vita allir að það mun ekki gerast á örfáum árum. Byggðirnar bíða ekki. Það verður að ganga í þetta,“ segir Ingibjörg Birna. Sveitarstjórinn segir að einnig hafi verið rætt um svokallaða A- leið, það er að leggja veginn annað hvort í gegnum Reykhóla – eða fara fram hjá Bjarkarlundi og með fram Þorskafirði hjá Kinnarstöð- um og þvera síðan Þorskafjörð. Djúpafjarðar- og Gufufjarðarleiðin yrði síðan í beinu framhaldi. Með þeim hætti komist menn hjá því að fara í gegnum Teigsskóg. „Frum- mat þarf á þessari leið svo að kost- ir og gallar komi fram,“ segir Ingi- björg Birna. Hún segir að leiðin yfir Þorskafjörð hafi einkum verið rædd með tilliti til hugsanlegrar sjávarfallavirkjunar þar en heima- menn vilji athugun á vegarstæðinu einu og sér. Virkjunarkostinn megi athuga síðar. Ingibjörg Birna segir að vega- bætur á svæðinu megi ekki taka of langan tíma. Fólksfækkun sé við- varandi á Vestfjörðum og það sem af sé ári hafi um sjötíu manns flutt brott af um sjö þúsund í fjórðungn- um. Bættar samgöngur séu helsta atriðið til að snúa þeirri þróun við. „Við krefjumst láglendisvegar. Þetta er eini vegurinn fyrir fólkið handan hálsanna, lífæð þess,“ segir sveitarstjórinn. Hún á von á því að samstarf samráðshóps sveitarfélaganna og fleiri fyrir vestan og innanríkisráðuneytisins haldi áfram. „Ögmundur var ekk- ert fastur á því sem hann kom með, hann talaði um að hann vildi hlusta á íbúana. Svo ætlaði hann að skoða þetta betur. Mér fannst á honum að hann væri ekki búinn að taka endanlega ákvörðun enda voru hugmyndir um veg um háls- ana skotnar í kaf.“ Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is  Vegagerð Hiti Vegna Vegagerðar í reykHólaHreppi Hugmyndir um veg yfir hálsana skotnar í kaf Heimamenn hafna hugmyndum innanríkisráðherra um leið yfir Hjallaháls og Ódrjúgsháls. Sveitarstjórnarmenn benda á leið til sátta með þverun Þorskafjarðar svo að vegurinn þurfi ekki að fara í gegnum Teigsskóg. Ögmundur lokar engum leiðum Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ítrekaði vegna and- stöðu heimamanna við að fara um hálsana, það er yfir Hjallaháls og Ódrjúgsháls, að hann vildi ekki loka neinum leiðum, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Full- trúar Vegagerðarinnar voru á fundi ráðherra og heimamanna. Ráðherrann lagði áherslu á að taka yrði tillit til þriggja þátta; kostnaðar, öryggis og framkvæmdahraða. Hann telur svokall- aða B-leið, það er í gegnum Teigsskóg, úti úr myndinni. Að loknu samráðsferli hefði hann komist að þeirri niðurstöðu að vænlegast væri að fara svokallaða D-leið, það er að leggja betri veg yfir hálsana. Hann benti hins vegar á að Vegagerðin hefði einnig nefnt fleiri kosti láglendisvega á þessari leið. -jh Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra á fundinum með heimamönnum í Bjarkar- lundi. Ljósmynd/G. Pétur Matthíasson Leiðir sem verið hafa til skoðunar fyrir nýjan veg í Reykhólahreppi. Kort/Vegagerðin Veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Veðurvaktin ehf Ráðgjafafyrirtæki í eigu Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Veður- vaktin býður upp á veður- þjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila í ráðgjöf og úrvinnslu flestu því sem viðkemur veðri og veðurfari. Veðurvaktin ehf Eikarási 8, 210 Garðabæ Sími: 857 1799 www.vedurvaktin.is BJartur og Fallegur dagur Víð- ast HVar um landið, en Vaxandi Vindur aF austri og Fer að rigna sunnantil síðdegis. HÖFuðBorgarsVæðið: HæguR Vindur, bjArt í Veðri, en SkýjAð og rigning um kVöldið. rigning um land allt um nóttina og Framan aF morgni, en styttir síðan upp að mestu norðantil. ÁFram skúrir eða rigning sunnantil. strekkingsVindur aF suðaustri. HÖFuðBorgarsVæðið: rigning, einkum frAmAn Af degi, en úrkomulítið SíðdegiS. Víðast Vætursamt um landið sunnan- og suðVestanVert, en léttir til norðan- og austantil. Þar Hlýtt miðað Við Árstímann. HÖFuðBorgarsVæðið: meirA og minnA SlAgVeðurSrigning lengSt Af dAgSinS. sumarhlýindi fyrir norðan, en vætusamt syðra nú er tími haustlægða með vindi, úrkomu og mildu lofti úr suðri. nokkuð djúp lægð verður að hringsóla fyrir suðvestan landið fram á sunnudag. Bjart og fallegt veður í dag, en þykknar upp og fer að rigna sunnantil síðdegis. nokkuð hvasst af A og SA aðfaranótt laugardags um leið og skil lægðarinnar fara norður yfir með rigningu um mest allt land. Skúrir sunnanlands en styttir upp nyrðra. úrkoman eykst á sunnudag sunnan- og suðvestan- lands, en léttir til með sumarhita norðan- og austanlands. 11 10 11 10 10 10 9 13 12 10 9 8 14 14 10 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is guðmundur og Besti rugla saman reytum guðmundur Steingrímsson alþingismaður, sem nýlega sagði sig úr framsóknar- flokknum, hefur lýst því yfir að hann ætli að stofna nýjan stjórnmálaflokk í samstarfi við besta flokkinn. Stefnt er að framboði í næstu þingkosningum. Heiða kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri besta flokksins, staðfesti þetta í frétt ríkisútvarpsins. Hún segir þar að fulltrúar besta flokksins og guðmundur hafi verið að ræða saman til að finna flöt á því að stofna nýjan stjórnmálaflokk til að tengja saman ólíka hópa, „fólk sem vilji bjarta framtíð en ekki áframhaldandi tortímingu með fjórflokknum,“ eins og hún orðar það. fram kom hjá Heiðu kristínu að nýi flokkurinn muni ekki bera nafn besta flokksins enda eigi hann fyrst og fremst heima í Reykjavík. - jh Jón Ásgeir stefnir Birni Jón Ásgeir Jóhannesson hefur stefnt Birni Bjarnasyni, fyrrverandi ráðherra, fyrir meiðyrði, að því er fram kemur á heima- síðu björns. Þar segir m.a.: „nú eru rúmir þrír mánuðir síðan ég glímdi við villupúk- ann í bók minni rosabaugur yfir íslandi og birti opinbera yfirlýsingu með afsökun til að afmá orðið „fjárdrátt“ og setja í staðinn „meiri háttar bókhaldsbrot“ í lýsingu á því fyrir hvað Jón Ásgeir Jóhannesson hlaut skilorðsbundinn þriggja mánaða fangelsis- dóm í baugsmálinu. Þrátt fyrir yfirlýsingu mína og leiðréttingu sem hlaut mikla kynn- ingu og rataði jafnframt inn í 2. prentun bókarinnar hótaði Jón Ásgeir mér strax með meiðyrðamáli og nokkru síðar sagði gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, að stefna hefði verið samin og hún yrði birt mér eftir réttarhlé. Ég fékk hana afhenta í dag [þriðjudag].“ - jh Seðlabankinn heldur óbreyttum vöxtum Peningastefnunefnd Seðlabanka íslands ákvað á miðvikudag að halda vöxtum bankans óbreyttum. Vextir á viðskipta- reikningum innlánsstofnana eru 3,5%, hámarksvextir á 28 daga innistæðubréfum 4,25%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga 4,5% og daglánavextir 5,5%. Aðilar vinnumarkaðarins og fleiri gagnrýndu bankann fyrir 0,25% vaxtahækkun í ágúst. Peningastefnunefnd telur enn að til þess að sporna gegn aukinni verðbólgu kunni að vera nauðsynlegt að hækka vexti frekar en ákvarðanir í peningamálum munu þó sem fyrr taka mið af nýlegri þróun og horfum. Næsti vaxtaákvörðunardagur er 2. nóvember. - jh kirkjuráð beinir því til Þorláksbúðarfélagsins að stöðva framkvæmdir við Þorláksbúð, á hlaði Skál- holtskirkju, meðan farið er yfir leyfi til framkvæmda og höfundarrétt. Á fundi í fyrradag bókaði ráðið: „Lagt fram bréf Harðar Bjarnasonar, dags. 16. september 2011, vegna Þorláksbúðar og minnisblað framkvæmdastjóra um feril málsins. kirkjuráð sam- þykkti, í ljósi fram kominna athugasemda að undanförnu, að málið verði kannað hvað varðar deiliskipulag, höfundarréttindi vegna Skálholtsdómkirkju, hvaða heimildir sveitarstjórn hefur veitt til framkvæmdanna og önnur atriði sem áhrif kunna að hafa. kirkjuráð samþykkti að beina því til Þorláksbúðarfélagsins að stöðva framkvæmdir við Þorláksbúð meðan framangreint er athugað.“ - jh 4 fréttir Helgin 23.-25. september 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.