Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.09.2011, Qupperneq 66

Fréttatíminn - 23.09.2011, Qupperneq 66
 Keppni ÍslensKur sigur toppbækur www.forlagid.is Heildarlisti: 14.–20.09.11 Fræ ðibæ kur: 14.–20.09.11 Barnabæ kur: 14.–20.09.11 Meistara- verk Ný í safNið Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst á frikirkjan@frikirkjan.is eða í síma: 552 7270. Haustlitaferð safnaðarfólks Fríkirkjunnar við Tjörnina Sunnudaginn 2. október 2011 verður farin haustferð um Suðvesturland. Lagt er af stað með rútu frá Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 10.00 árdegis. Áætlað er að komið verði til baka um kl. 18. Fegurðar haustlitanna notið. Hádegisverður, messa, o.. Verð 3.000 kr. Ferðin er hugsuð fyrir alla aldurshópa en við hvetjum heldri borgara sérstaklega til að njóta dagsins saman. Í slenski drykkurinn Aada frá My Secret sigraði síðastlið-inn fimmtudag í alþjóðlegu drykkjarvörukeppninni Water Inn- ovation Awards sem haldin var í Rio de Janeiro í Brasilíu í síðustu viku. Áttatíu aðilar frá 25 löndum tóku þátt í keppninni og var keppt í ellefu flokkum. Drykkurinn Aada frá My Secret var tilnefndur til verðlauna í fjórum flokkum, en það mun vera í fyrsta sinn sem drykkur hlýtur svo margar tilnefningar í keppninni, og bar sigur úr býtum í flokknum Drykkurinn með besta hráefnið. „ Aðstandendur keppninnar sýndu innihaldi drykkjarins mik- inn áhuga en hann er búinn til úr íslensku vatni og úrvalshráefnum. Við notum einungis ferskt hráefni og ekkert þykkni. Einnig þótti það mikill gæðastimpill að við notum engin gervi- eða aukefni við fram- leiðsluna,“ segir Anna María Jóns- dóttir sem tók á móti verðlaunun- um. Keppni þessi er mjög virt meðal fagaðila og hefur verið haldin um árabil en dómnefndina skipa sér- fræðingar hvaðanæva úr heimin- um. Stórir drykkjarvörurisar hafa tekið þátt í keppninni og má þar nefna Coca-Cola, Pepsico, Nestlé, Danone, Perrier og San Pellegrino. Drykkurinn frá My Secret varð í öðru sæti sem besta nýja vörumerk- ið á þessum markaði en fyrirtækið hefur nú starfað í tvö ár. Drykkurinn Aada er framleiddur í Hveragerði með notkun jarðvarma og nú starfa sjö manns í verksmiðj- unni við framleiðsluna. „Við feng- um einnig tilnefningu fyrir bestu sjálfbæru umhverfisvænu fram- leiðsluna. Þessi framleiðsluaðferð vakti mikla athygli í keppninni en við notum jarðgufu sem hleypt er á gufusuðupotta og nánast ekkert raf- magn er notað í ferlinu. Ég tel þetta vera mjög góða kynningu fyrir Ís- land sem sýnir hversu mikið við get- um notað jarðgufu við framleiðslu á drykkjavörum og matvælum,“ segir Anna María að lokum. Íslenskur drykkur sigraði í alþjóðlegri keppni Anna María Jónsdóttir sést hér taka á móti verðlaununum í Brasilíu. Halle Berry fótbrotnaði Leikkonan Halle Berry varð fyrir því óláni að fótbrotna við tökur á myndinni Cloud Atlas á Spáni í gær. Þetta er mikið áfall fyrir fram- leiðendur myndar- innar sem skartar einnig stórleikur- unum Tom Hanks, Susan Sarandon, Hugo Weaving og Hugh Grant enda tefjast tökur eitt- hvað. Að því er fregnir herma munu fram- leiðendur myndarinnar reyna að halda áfram með því að mynda Berry fyrir ofan mitti og notast síðan við neðri hluta ein- hverrar annarrar. Í myndinni leikur Berry blaðakonuna Luisu Rey sem rannsakar spillingu og morð í kjarnorkuveri. Cheryl vinsælli en Nicole í X-Faktor Í vikunni var sýndur fyrsti þáttur-inn af X-Faktor Simons Cowell í Bandaríkjunum. Segja má að Cowell hafi lagt hausinn að veði við gerð þáttanna en þeim er ætlað að ná betra áhorfi en American Idol, þar sem Cowell var dómari í níu ár. Í að- draganda þáttanna var bresku söng- konunni Cheryl Cole skipt út fyrir Ni- cole Scherzinger, söngkonu Pussycat Dolls, sem átti að vera kynnir. Mikil ólga var í kjölfar þessara skipta sem koma greinilega fram í fyrsta þætt- inum þar sem Cheryl kemur við sögu í fyrri hluta þáttarins. Banda- rískir gagnrýnendur virðast vera á einu máli um að Cheryl hafi verið mun áhugaverðari og betri heldur en Nicole og skilja ekki ákvörðun Co- wells. Hann útskýrði ákvörðunina í spjallþætti landa síns Piers Morgan á CNN. Þar sagði Cowell að Cheryl hefði litið út fyrir að vera hálftýnd og hann hefði metið það svo að betra væri fyrir hana að fara aftur til Bret- lands. Síðan þá hafa orðið vinslit hjá Cheryl og Cowell og hafnaði hún meðal annars sæti í dómaranefnd Britain Got Talent sem Cowell hefur yfirumsjón með. Stöð 2 mun sýna X- Faktor í vetur. Dívurnar tvær, Cheryl Cole og Nicole Scherzinger. Ljósmynd /Nordic Photos/Getty Images 62 dægurmál Helgin 23.-25. september 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.