Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.09.2011, Page 20

Fréttatíminn - 23.09.2011, Page 20
VERIÐ VELKOMIN Á OPNUNAR- OG AFMÆLISHÁTÍÐ NAME IT UM HELGINA Enn glæsilegri verslun í Smáralind GLÆSILEG AFMÆLISTILBOÐ: JOGGINGBUXUR STR. 80-152 1.690 BOLIR 2 STK. STR. 80-152. (1 STK. 1.490) 1.990 GALLABUXUR 2 STK. STR. 80-152. (1 STK. 2.990) 4.990 PEYSUR STR. 80-152 2.490 UNO GALLABUXUR STR. 80-152 2.990 FLAUELSBUXUR STR. 80-152 2.990 LEGGINGS 2 STK. STR. 80-152 (1. STK. 1.490) 2.490 KJÓLAR STR. 80-152 2.990 Tilboð gilda meðan birgðir endast AFMÆLISHÁTÍÐ LOUIE KEMUR Í HEIMSÓKN! Óvæntur glaðningur fyrir börnin! NAME IT BARNAFATNAÐUR / SMÁRALIND S: 544 4220 / KRINGLAN S: 568 4344 / SKRÁÐU ÞIG Í NAME IT KLÚBBINN Á NAMEIT.COM / FACEBOOK.COM/NAMEIT ICELAND Ja, ég meina ... Það er alveg rétt að sumir sem koma að þessari mynd eiga svolítið vafasama fortíð. ljóstra því upp?“ Og bætir við að hann sé ekki frá því að Gunnar líti jafnvel enn betur út en nafntogaðir og meintir undirheimamenn sem best er að láta ónefnda. „Þetta er mjög útlenskt. Þetta er mjög erlendis,“ segir Ingvar og hlær. „Þetta er alla vega erlendis nálgun,“ bætir Ágústa við og Ingvar botnar: „En samt alveg raunveruleiki.“ Tekið á því í Mjölni Ágústa Eva og Ingvar æfa bæði hjá Mjölni. Ingvar segist að vísu hafa slegið aðeins slöku við undanfarið en sé að búa sig undir að koma aftur inn af fullum krafti. Mjölnir spratt upp úr karatefélaginu Þórshamri en þar hefur Ingvar æft um árabil. „Ég er ennþá í karate en langaði að prófa Víkingaþrek- ið,“ segir Ingvar og fullvissar blaða- mann um að honum sé óhætt að mæta á æfingu. Hann muni bara kasta upp af áreynslu í fyrsta skiptið. Ágústa Eva bjó vel að þjálfun sinni hjá Mjölni þegar kom að nokkrum átök- um í Borgríki. „Andrea er kannski ekki beint neinn rosalegur slagsmálahundur en maður verður að kunna að verja sig í lögreglunni og hún vinnur alveg í því og leggur metnað í það. Og, jújú, hún lendir alveg í einhverjum slagsmálum þarna.“ „Svo lendum við í slag. Bara pínu- lítið,“ skýtur Ingvar inn í. „Smá rispu,“ bætir Ágústa Eva við. „Ég er annars mjög dannaður þarna og vel varinn. Það er hópur af lífvörðum í kringum mig,“ segir Ingvar. Hann leikur nefni- lega mann sem hefur skósveina til að ganga í skítverkin fyrir sig. Nokkuð er um skemmtilegar til- viljanir í kringum Borgríki og þannig var Ágústa Eva til dæmis í raun byrjuð að undirbúa sig fyrir hlutverk Andreu áður en hún hafði hugmynd um pers- ónuna. „Ég var búin að kynna mér lög- regluna áður en ég vissi af myndinni ...“ „... og vera tekin af löggunni nokkr- um sinnum,“ skýtur Ingvar inn í. „Ég var einhvern tíma að prófa að skrifa handrit sem ég týndi síðan. Og þá var ég eitthvað að spá í hvernig löggan virkaði og hvort allir kæmust inn í lögguna. Ég vildi forvitnast um þetta og fór á einhverjar vaktir, talaði við Fíknó og alls konar. Þannig að ég var alveg komin í gírinn. Þetta var mjög undarleg tilviljun og ég var búin að undirbúa jarðveginn nokkuð vel áður en Óli talaði við mig um Borgríki. Ég var líka byrjuð í Mjölni áður en þetta kom til tals þannig að það voru hæg heimatökin hjá mér.“ Jón Viðar, kærasti Ágústu Evu, kom síðan inn í myndina af fullum krafti og Ágústa Eva segir að það hafi einhvern veginn gerst af sjálfu sér eins og ýmis- legt annað í kringum Borgríki. Og það er óhætt að segja að reynsla Jóns Við- ars sem lögreglumaður og þjálfri hjá Mjölni hafi nýst vel. „Hann kom þarna inn sem ráðgjafi,“ segir Ingvar. „Og svo hannaði hann öll slagsmálin ...“ „... og leikur líka smá hlutverk og út- vegaði fullt af aukaleikurum, bæði lög- reglufólk og Mjölnisfólk,“ bætir Ágústa Eva við. „Það var ótrúlegt að sjá hvað lögreglumenn virðast upp til hópa vera góðir leikarar og sérstaklega gaman að sjá fíkniefnalöggur leika dópsala.“ Hrár raunveruleikinn Bæði segjast þau vera mjög ánægð með myndina og spennt fyrir henni. „Þetta er mjög sérstök íslensk mynd,“ segir Ingvar. Ágústa Eva: „Það er svo mikið púður í þessari mynd. Þetta er svo kröftugt efni sem við erum með og þetta er svo mikið alvöru og mikill frumkraftur í þessu. Eins og til dæmis sérsveitin. Hún hefur aldrei áður lagt krafta sína til neinnar bíómyndar. Ekki einu sinni búninga, en þeir eru bara þarna í fullum herklæðum.“ Ingvar: „Það er mjög mikið lagt upp úr því að þetta sé eins nálægt raunveru- leikanum og hugsast getur. Öll átök ...“ Ágústa Eva: „... og eiginlega ekki verið að ýkja neitt. Þetta er bara eins og það er. Þetta er líka svolítið áhugavert út frá umræðunni um hversu illa lög- reglumenn eru launaðir. Það er for- vitnilegt að sjá hvernig þetta virkar þegar lögreglan er ekki með nógu mik- inn mannafla til að sporna við svona sprotastarfsemi. Þá fá einmitt svona grúppur rými til að blómstra og taka yfir borgina.“ Ingvar: „Þetta er náttúrlega engin heimildarmynd en við höldum samt sem áður að við séum ansi nálægt raun- veruleikanum.“ „Og allar hórurnar – þær eru alvöru,“ segir Ágústa Eva og glottir prakkara- lega til Ingvars. Ingvar: „Já, haaaaaaa ...“ [Hlátur] Ágústa Eva: „Og allir dópsalarnir eru alvöru ...“ Ingvar: „Ja, ég meina ... Það er alveg rétt að sumir sem koma að þessari mynd eiga svolítið vafasama fortíð. Og þess vegna held ég að við höfum alltaf komist nær og nær raunveruleikanum. Ég meina; þegar það kom til dæmis upp spurning um hvaða leikmunir þyrftu að vera á hóruhúsi þá var sú þekking til staðar.“ Og hann heldur áfram: „Þetta er svo- lítið alþjóðlegt. Þarna kemur fram hell- ingur af útlendum leikurum, til dæmis Philip Jackson og Jonathan Pryce. Þeir voru svona fluttir inn. Við Jonathan þekkjumst aðeins. Bara svona frá ein- hverju svona útlandabrölti í gegnum tíðina. Síðan eru leikarar sem búa hérna og eru af erlendu bergi brotnir.“ Einn þeirra er Serbinn Zlatko Krickic sem lék í Stóra planinu eftir Ólaf leikstjóra og þykir sýna fantaleik í hlutverki aðalskúrksins í erlendu bófa- blokkinni í Borgríki. „Hann er magnaður leikari ...“ segir Ágústa Eva. „Alveg magnaður,“ tekur Ágústa Eva og Andrea eiga það sameiginlegt að æfa bardagaíþróttir hjá Mjölni. Hér er Ágústa í hlutverkilögreglukonunnar í miklum ham. 20 viðtal Helgin 23.-25. september 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.