Fréttatíminn - 23.09.2011, Qupperneq 33
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Virðing
Réttlæti
Eru konur
90% menn?
Kynbundinn launamunur hjá VR mælist nú ríflega 10% sem er óásættanlegt
með öllu. VR vill enn og aftur vekja þjóðina til vitundar um þetta misrétti
og hefur fengið öflug fyrirtæki í verslun og þjónustu til liðs við sig.
Fyrirtæki í verslun og þjónustu eru hvött til að lýsa stuðningi við átakið
og bjóða konum þennan 10% táknræna afslátt á þessu tímabili og um
leið fullvissa sig um að jafnrétti ríki innan þeirra eigin veggja.
Hafið er átak þar sem fyrirtækin gefa konum 10% afslátt
ofangreinda daga á tímabilinu 20.–26. september
A4 verslanir 20. –23. september
Tékk Kristall, Laugavegi 20. –26. september
Fasteignasalinn (af sölulaunum) 20. –26. september
Efnalaugin Björg, Álfabakka 20. –26. september
Árbæjarapótek 20. –26. september
Griffill, Skeifunni 21.–26. september
Pfaff 24. september
Saints 23. september
Útilíf 23. september
Karen Millen 23. september
Warehouse 23. september
Top Shop 23. september
Evans 23. september
Dorothy Perkins, Smáralind 23. september
Day, Kringlunni 23. september
Kristý, Borgarnesi 23. september
Next, Kringlunni 23. –25. september
Sævar Karl 23. –24. september
BT 21. –26. september
Neyðarþjónustan, Laugavegi 21. –26. september
Hnefaleikastöðin (af líkamsræktarkortum) 22.–26. september
Víkurverk (smávara/þjónusta) 22.–26. september
VR skorar á íslensk fyrirtæki að leiðrétta launamun kynjanna.
Afsláttardagar
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
sem mest hjá honum síðustu stund-
irnar. Blaðamaður frá þýska útvarp-
inu vildi taka við mig viðtal rétt áður
en pabbi dó, þannig að ég bauð hon-
um að taka það í aðstandendaher-
berginu. Það reyndi eðlilega talsvert
á. En þetta starf er þannig í eðli sínu
að það er ekki hægt annað en að gefa
því allt sem maður á. Það þarf að fara
lengra en maður raunverulega getur.
Enda engin skilgreining til á þessu
starfi nokkurs staðar; þetta starf hef-
ur aldrei verið til og þetta hús hefur
aldrei verið opnað fyrr. En auðvitað á
maður alltaf val um hversu mikið og
hversu mikinn kost á sér maður gef-
ur. Mitt val var að þetta væri það sem
til þurfti. Það hefur samt gerst alveg
ómeðvitað. Ég held að tengingin sé
sú hvað þetta hús er mér mikilvægt.
Að vera sjálf tónlistarmaður og hafa
fengið þörfina fyrir húsið beint í æð.
Þegar maður stendur svo í þessum
sporum þá skorast maður ekki und-
an eða hlífir sér við neinu. Þegar ég
horfi á þetta eftir á skil ég ekki al-
veg hvernig ég fór í gegnum þetta á
sama tíma og ég var að kveðja pabba.
En meðan á því stendur hugsar mað-
ur ekkert um það og gerir bara það
sem til þarf.“
Þú hefur væntanlega verið eins
og sprungin blaðra eftir þetta allt
saman.
„Ja, blaðran er ekkert sprungin.
Hún hefur eiginlega ekkert fengið
tækifæri til þess ennþá. Þetta er
náttúrlega langt opnunartímabil,
ekki bara einn dagur. Það eru nokkr-
ir áfangar. Við byrjuðum innan frá.
Opnuðum fyrst starfsemina og end-
uðum á byggingunni. Svo hélt maður
að það kæmi rólegt tímabil á eftir. En
húsið er það mikið bókað og mikil
eftirspurn eftir því að það er ekkert
lát þar á. Þessi rólegi tími er því ekk-
ert í sjónmáli,“ segir Steinunn Birna
og hlær.
Dóttir þín minntist á að þú værir
mikil amma.
„Já, mér þykir vænt um að hún
haldi því fram. Hún er einkabarn en
svo hefur átt sér stað góð ávöxtun
þar því hún er með fjögur börn. Ég
tel þessi margfeldisáhrif einhverja
bestu fjárfestingu sem ég get ímynd-
að mér. Ég er alveg ómöguleg ef ég
sé þau ekki, helst daglega. Það er
einhver besti félagsskapur sem ég
get hugsað mér. Kannski eru litlar
fjölskyldur samheldnari, ég veit það
ekki. Mér hefur stundum fundist
það. Ef til vill eru betri tækifæri til
náinna tengsla sem fólk fer betur
með og varðveitir, heldur en þegar
margir valkostir eru í boði. Þegar
fjölskyldur eru litlar verður hver
manneskja svo dýrmæt. En þetta
er náttúrlega það sem lífið snýst um
þegar allt kemur til alls. Maður get-
ur haft ýmis hlutverk en ekkert er
jafn mikilvægt og hlutverk manns í
sinni fjölskyldu, í tengslum við sína
nánustu.“
PR-trikkið
Það er ekki hægt að skilja við Stein-
unni Birnu án þess að minnast á
PR-trikkið margumtalaða. Síðsum-
ars hringdi blaðamaður DV í Stein-
unni Birnu í þeim tilgangi að spyrja
hana út í siglingu fyrir erlenda
blaðamenn í heimsókn vegna vígslu
Hörpu, á skipinu Hafsúlunni á Menn-
ingarnótt. Steinunn vildi ekki svara
spurningum blaðamannsins í síma
og eftir að hún taldi sig hafa kvatt
hann heyrði blaðamaður hana segja:
„Núna nota ég trikkið sem Andrés
kenndi mér, bara að segja þeim að
senda þér, að þú sért að rjúka inn á
fund, bara að senda tölvupóst.“ DV
birti ummælin undir fyrirsögninni:
Steinunn sagðist ætla að nota PR-
trikk á blaðamann.
Steinunn skellihlær þegar þetta
berst í tal. Inn á milli hlátraskalla
stynur hún upp: „Ég tek það fram að
mér finnst þetta alveg jafn vandræða-
legt og spaugilegt og næstu mann-
eskju. Maður má ekki missa húmor-
inn fyrir sjálfum sér þótt maður sé í
svona hlutverki og starfi eins og ég
er. Augljóslega voru orðin ekki ætluð
blaðamanninum þótt hann hafi kosið
að nýta þau,“ segir hún og strýkur
tárin úr augunum. „Þarna er góð og
gild ráðlegging á ferðinni: Ef einhver
spurning kemur flatt upp á þig áttu að
koma þér úr kringumstæðunum til að
geta vandað þín svör. Ég viðurkenni
að það kom algerlega flatt upp á mig
að einhver hefði eitthvað við þessa
siglingu að athuga. Við tökum vel á
móti okkar gestum í Hörpu og þetta
var eina móttakan á vegum húss-
ins. Svo var ég náttúrlega nýbúin
að fara frekar illa út úr samskiptum
við þá ágætu blaðamenn á DV í sam-
bandi við hljóðfærakaupamálið. Ég
var stödd uppi í sumarbústað þegar
blaðamaðurinn hringdi. Þetta voru
einhver fljótfærnisleg viðbrögð hjá
mér sem voru náttúrlega alveg morð-
fyndin, sérstaklega þar sem þau gefa
dálítið skakka mynd af mér. Þeir
sem þekkja mig vita að ég er nú ekk-
ert sérstaklega „tricky“ manneskja.
Þetta er áskorun um að missa ekki
húmorinn, hvorki fyrir kringumstæð-
unum né sjálfum sér. Ég fæ þjálfun í
því á hverjum degi!“ segir Steinunn
Birna og hlær ennþá meira.
Þú ert ekkert með fleiri trikk uppi
í erminni?
„Nei, en ég auglýsi hér með eftir
þeim!“
Komst þú sem tónlistarstjóri að
skipulagningu þessarar siglingar?
„Nei, og það var nú þess vegna sem
spurningin kom flatt upp á mig.“
Fékkstu ráðgjöf hjá Andrési Jóns-
syni almannatengli eftir fréttirnar af
hljóðfærakaupunum í DV?
„Já, og í tengslum við fleira. Það er
mikilvægt að fá gott fólk í lið með hús-
inu og að vel sé á málum haldið. Það
er þó ekki hægt að miða við ímynd-
ina eina og sér. Það verður alltaf að
vera innistæða líka og þetta hús er
gríðarleg innistæða. Ímynd húss-
ins verður bara afleiðing af þessari
innistæðu og auðlind sem það er. Við
erum líka með erlendan kynningar-
aðila sem gerir mjög góða hluti fyrir
okkur. Það skiptir miklu máli hvaða
sess Harpa fær á erlendum vettvangi.
Það eru mikil sóknarfæri í menning-
artengdri ferðamennsku í tengslum
við Hörpu og við erum strax farin að
finna fyrir því. Á tónleikum Jónasar
Kaufmann voru tæplega 500 miðar
seldir erlendis. Svo verðum við með
stórar ráðstefnur hér sem hefðu
kannski farið annað ef ekki væri fyrir
tilkomu hússins.“
Leikarinn Ben Stiller lagði nú sitt
af mörkum til að kynna húsið þegar
hann birti um daginn mynd innan úr
Hörpu á twitter-síðu sinni.
„Já, þú getur ímyndað þér hvað það
hefur gert fyrir húsið! Hér er ótrú-
legasta fólk á vappi. Einu sinni fékk
ég símhringingu þar sem mér var til-
kynnt að forseti Litháens væri stadd-
ur í miðbænum og ég spurð hvort
hann mætti kíkja í heimsókn eftir
tíu mínútur. Stuttu síðar renndi löng
bílalest upp að byggingunni. Maður
verður að vera undir allt búinn hér,
hvort sem það er Ben Stiller eða for-
setar. Ég hef óbifandi áhuga á velferð
og framtíð þessa húss. Öðruvísi gæti
ég ekki verið í þessu starfi.“
viðtal 33 Helgin 23.-25. september 2011