Fréttatíminn - 23.09.2011, Síða 46
42 garðar unnið í samvinnu við Garðyrkjufélag Íslands Helgin 23.-25. september 2011
Haustplöntun Laukar, pLöntur og fræ
PLANTA
Allt til heimaræktunar
planta
akralind 3, (bak við húsið)
201 kópavogur
sími: 445 4634
www.planta.is
loftdælur og
vatnsdælur á
einstaklega
hagstæðu
verði
Ræktunarljós og perurBallöst/skermar
Skógræktarfélag Reykjavíkur
heidmork.is
Jólamarkaðurinn á Elliðavatni
opnar laugardag 27. nóvember
opið allar helgar fram að jólum kl. 11-17
Íslensk jólatré, handverk og hönnun. Fallegar
jólaskreytingar úr skógarefni. Jólasveinar heilsa
upp á gesti. Rithöfundar lesa úr nýútkomnum
bókum. Barnastund í Rjóðrinu, harmonikkuleikur
og kórsöngur.
Jólaskógurinn í Hjalladal
opnar laugardag 11. desember
opinn tvær helgar fram að jólum kl. 11-16
Komið og höggvið eigið tré! Í boði eru úrvals
íslensk jólatré. Einnig nýhöggvin tré á staðnum.
Jólasveinar, kakó og piparkökur handa öllum!
Jólatrjáasalan í Kauptúni
opnar föstudag 10. desember
opin alla daga fram að jólum
Jólatrjáasalan í Kauptúni er við hliðina á Bónus
í Kauptúni 3 í Garðabæ. Þar gefst kostur á að
versla úrvals nýhöggvin íslensk tré á góðu verði.
l i lli t i
opnar laugardag .
opið allar helgar fra að jólu kl. 11-17
Íslensk jólatré, handverk og hönnun. Fallegar
jólaskreytingar úr skógarefni. Jólasveinar heilsa
upp á gesti. ithöfundar lesa úr nýútko nu
bóku . Barnastund í jóðrinu, har onikkuleikur
og kórsöngur.
l i í j ll l
opnar laugardag .
opinn tv r helgar fra að jólu kl. 11-16
Ko ið og höggvið eigið tré! Í boði eru úrvals
íslensk jólatré. Einnig nýhöggvin tré á staðnu .
Jólasveinar, kakó og piparkökur handa öllu !
l j l í auptúni
opnar föstudag .
opin alla daga fra að jólu
Jólatrjáasalan í Kauptúni er við hliðina á Bónus
í Kauptúni 3 í arðab . Þar gefst kostur á að
versla úrvals nýhöggvin íslensk tré á góðu verði.
Velkomin í Heiðmörk
og Kauptún Garðabæ
planta sérhæfir sig í vörum til heimaræktunar á hverskyns gróðri
og hefur allt sem þú þarf til að koma upp góðri ræktunaraðstöðu.
vatnsræktunarkerfi, ræktunarklefar, næring, leirkúlur, pottar og ílát.
mikið úrval af dælum og ljósabúnaði bæði fyrir fagmenn og heimili.
sumarhúsið og garðurinn 4. 2010 19
n
úna er tilvalið að
setja niður haust-
laukana, til dæmis
páskaliljur, túlípana
og krókusa. Það er
hægt að setja þá niður hvar sem
er úti, á meðan hægt er að grafa
fyrir frosti. Þumalputtareglan er
að setja þá niður á dýpi sem er um
þrisvar sinnum stærð laukanna,“
segir Steinunn Reynisdóttir, deild-
arstjóri í Garðheimum. Hún segir
að páskaliljurnar fari dýpst, eða
um 20-25 sentimetra, og það geti
verið gaman að planta saman lauk-
um sem koma upp á misjöfnum
tíma. „Sumir setja laukana niður í
nokkrum lögum; páskaliljur neðst,
síðan túlípana og síðast krókusa
sem koma fyrst upp í apríl eða maí,
síðan páskaliljur í maí og síðastir
túlípanarnir sem standa fram í
júní, allt eftir veðri,“ útskýrir Stein-
unn og bætir við að laukarnir geti
farið niður eins lengi og hægt sé
að grafa í jörðu út af frosti.
Laukarnir eiga að vera úti því
þeir þurfa veturinn og kuldann til
að setja rætur og undirbúa sig fyr-
ir vorið. Þá fara þeir að vaxa. Þeir
Laukarnir þurfa veturinn og kuldan
Um þessar mundir eru margir að sinna haustverkunum í garðinum og þá er að ýmsu að huga. Ýmsar plöntur þarf að færa til eða skipta út og enn annað þarf að fara niður í
mold áður en frostið tekur við.
geta líka farið niður hvar sem er,
en þó ber að varast land þar sem
er of mikil bleyta því þá rotna lauk-
arnir og koma engin blóm. Ef þeir
fara í ker, þarf að muna eftir dreni
frá kerinu af sömu ástæðu.“ Annað
sem ber að hafa í huga eru lítil
svöng dýr sem grafa eftir laukum
og þá er Steinunn með gott ráð:
„Mýs eru gjarnar á að grafa upp
og éta frá okkur laukana en það er
hægt að nota lauk sem heitir „keis-
arakróna“, brytja hann niður og
dreifa yfir hina laukana því lyktin
af honum fælir burtu mýsnar,“ út-
skýrir Steinunn. Auk laukanna er
mikið um að fólk skipti út sumar-
plöntum fyrir haustplöntur og þar
nefnir Steinunn plöntur á borð við
Eriku og beitilyng sem í grunn-
inn eru fjölærar plöntur en eru
oftast bara einærar hérlendis þótt
beitilyngið lifi stundum milli ára.
„Lyngið á oft erfitt á vorin eins og
margar aðrar sígrænar plöntur.
Rótin er frosin og það er erfitt að
gera nokkuð í þessu nema kannski
helst að reyna að forðast að vera
með plönturnar í hásuður. Þessar
haustplöntur standa fram á vetur-
inn og eru þá góðar til að gleðja
augað í þann tíma,“ segir Steinunn
sem lumar líka á spennandi ráðum
varðandi tínslu á fræjum. „Núna
er rétti tíminn til að tína reynifræ,
áður en þrestirnir klára þau. Síðan
á að merja þau, búa til mauk og til
dæmis blanda saman við hæsna-
skít. Láta þau svo gerjast innan-
dyra eða undir húsvegg þar sem
ekki rignir mikið.
Loks er hægt að setja mold í
bakka utandyra, smyrja þessu
gumsi yfir og hafa úti yfir vetur
og sjá hvað kemur út úr því. Þarna
þarf líka að verjast músum á ein-
hvern hátt því þeim þykir fræið
gott á köldum vetrum,“ segir Stein-
unn og nefnir einnig annars konar
fræ: „Birkið getur maður tínt af
trjánum, dreift á blað innandyra
og þaðan hreinsað burt lauf og
náð þeim í sundur. Síðan eru fræin
sett í bréfpoka og geymd í ísskáp
fram á næsta vor. Þá er hægt að sá
í bakka innandyra eða henda út í
einhvern mel úti í náttúrunni þar
sem mann langar að græða upp.“
Fleiri góð ráð má nálgast á
heimasíðu Garðheima auk þess
sem þar eru í boði ýmis námskeið
nú í haust og vetur þar sem garður-
inn, grillið og sköpunarkrafturinn
leika stórt hlutverk. Meðal annars:
námskeið í skartgripagerð í byrjun
október, námskeið í grillun villi-
bráðar á Spírunni, veitingahúsinu
í Garðheimum, 20. október, jóla-
kransagerð 15. og 16. nóvember og
hvernig á að grilla jólakalkúninn
17.nóvember.
Veitingastaðurinn í Garðheim-
um er opinn frá kl. 11 til 17 virka
daga og 13 til 17 um helgar.
Allar nánari upplýsingar má sjá
á www.gardheimar.is
steinunn Reynisdóttir „Laukarnir eiga að vera úti því þeir þurfa veturinn og kuldann til að setja rætur og undirbúa sig fyrir vorið.“