Fréttatíminn - 23.09.2011, Qupperneq 68
Plötuhorn Dr. Gunna
Sagan
1860
Indie Savanna
Það er nettur Savanna
tríós-fílingur í 1860,
en um leið er bandið
„indie“ og áhrif frá Fleet
Foxes og sólskinspoppi
Jacks Johnsons smjúga
í gegn. Í svipaðri rétt
og 1860 innanlands
eru sveitirnar Árstíðir
og Múgsefjun. Fyrstu
fimm lögin á plötunni
eru á íslensku og alveg
frábær, vel samin og
sniðug popplög. Næstu
átta lög eru á ensku og
þá er eins og fókusinn
fari aðeins að flökta þótt
oft megi heyra flott lög
eins og For You, For-
ever og Love and Lime.
Bandið er mjög öruggt
og klárt, útsetningarnar
eru glúrnar og fram-
setningin fín. Hlynur
Hallgrímsson er frábær
söngvari og hefur sér-
staka en viðkunnanlega
rödd. Þetta er mjög góð
plata en ég held að sú
næsta verði jafnvel enn
betri.
We Sink
Sóley
Reimleikar í
sirkus
Sóley Stefánsdóttir er í
hljómsveitinni Seabear
en steig fram sóló í
fyrra með myrka 6-laga
ævintýraplötu. We Sink
er í „fullri lengd“, 13
laga plata, en þrjú lög af
síðustu plötu fá að koma
aftur út. Tónlist Sóleyjar
er róleg og draumkennd,
oft er farið í dularfullu
deildina og tónlistin
hljómar eins og úr eld-
gamalli bíómynd um
reimleika í sirkus. Píanó-
ið er leiðandi og Sóley
syngur ensku textana
með íslenska hreimnum
sem útlendingum finnst
svo sniðugur. Platan
er mjög fín, mörg vel
sniðin lög eru sett fram í
útpældum útsetningum
sem gaman er að hlusta
á. Í lokin kemur mikil
listræn þoka á heiðina
en Sóley staulast áfram
og finnur sem betur fer
leiðina út. Þetta er plata
sem þarf að gefa góðan
tíma.
Mood
Beggi Smári
Þvottekta
blúsrokk
Beggi er bróðir teknó-
tröllsins Örlygs Smára,
en gæti varla verið að
gera meira öðruvísi
tónlist, hressilegt blús-
rokk af gamla skólanum.
Beggi semur lög og texta
(á ensku) sjálfur, nema
eitt sem er eftir Elmore
James. Hann er yfirleitt
með hljómsveitina
Mood með sér en skiptir
henni í flestum lögum
plötunnar út fyrir stað-
fasta herdeild, sem m.a.
inniheldur Daða Birgis-
son hljómborðsleikara
og Einar Scheving
trommara. Platan snýst
þó að mestu leyti um
Begga: velsmurðan
gítarleik hans og letilega
ákveðinn sönginn.
Sándið á gítarnum er
oft reffilega rifið og
blúsrokkfílingurinn
þvottekta. Ef ég vissi
ekki betur væri ég alveg
sjör á því á þetta væri
einhver erlendur blús-
bolti. Þessa grúfí blús-
plötu á blúsáhugafólk
umsvifalaust að kynna
sér.
Ársæll Valfells, lektor við Viðskiptafræðideild HÍ:
Kostir og gallar einhliða upptöku gjaldmiðils:
USD, EUR, CAD, NOK?
Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins, fjallar um íslensku krónuna, kosti
hennar og galla sem gjaldmiðils og þá umgjörð sem
sjálfstæð mynt þarfnast til að þjóna hagsmunum
þjóðarinnar.?
Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri
Talnakönnunar, fjallar um evruna og kosti hennar
fyrir Ísland samhliða aðild landsins að ESB.
Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi flytur ávarp.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs
Vörður – fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Sjálfstæðisfélag Hafnarfjarðar
Turninn, Kópavogi, 20. hæð, laugardaginn 24. september kl. 10.
Opinn fundur – tökum öll þátt í umræðunni!
Fundarstjóri: Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður.
Gjaldmiðlakostir Íslands
„Þetta verður það flottasta sem
sést hefur hér á landi. Ég lofa því,“
segir Samúel Kristjánsson, for-
sprakki Frostrósa, um jólatónleika-
röð Frostrósa þetta árið. Í ár eru tíu
ár frá því að fyrstu Frostrósatón-
leikarnir voru haldnir og því ætla
skipuleggjendur að slá heldur betur
í klárinn fyrir þessi jól.
„Við byrjum með átta tónleika í
Eldborgarsalnum í Hörpu helgina
3. til 5. desember. Þar verða allir
helstu söngvarar Frostrósa frá
upphafi,“ segir Samúel og hefst
handa við að þylja upp nöfn þannig
að blaðamaður hefur vart undan
að skrifa niður. „Við erum að tala
um Eirík Hauksson, Eivøru, Ernu
Hrönn, Friðrik Ómar, Garðar Thór
Cortes, Gissur Pál, Guðrúnu Ár-
nýju, Guðrúnu Gunnars, Heiðu
Ólafs, Heru Björk, Jóhann Friðgeir,
Margréti Eir, Ragnar Bjarnason,
Ragnheiði Gröndal, Regínu Ósk,
Stefán Hilmarsson, Völu Guðna og
Védísi Hervöru,“ segir Samúel og
dregur djúpt andann eftir upptaln-
inguna. „Átján söngvarar á sviðinu
ásamt þrjátíu manna stórhljómsveit
og fjölmörgum kórum. Það verða
alls um 300 manns á sviðinu þegar
mest verður.“
tónleikar FroStróSir
Átta afmælistónleikar í Hörpu
Haldið verður upp á tíu ára afmæli Frostrósa með pomp og
pragt fyrir komandi jól. Stefnt er að rúmlega þrjátíu tónleikum
um allt land.
Það er óhætt að segja að Frostrósir bjóði upp á sannkallað stórskotalið á tónleikunum í Reykjavík.
Þetta verður
það flottasta
sem sést hefur
hér á landi. Ég
lofa því.
Auk tónleikanna í Hörpu verða
haldnir þrettán Frostrósatónleikar
um land allt og sérstakir stór-jóla-
tónleikar með norðlensku ívafi á
Akureyri 17. desember þar sem
fram koma auk Frostrósa norð-
lenskir söngvarar.
Ekki má síðan gleyma Frostrós-
um klassík sem slógu í gegn í Há-
skólabíói í fyrra. Nú verða tónleikar
í Hörpu 10. desember þar sem stór-
stjarnan Sissel Kyrkjebø fer fyrir
fríðum flokki íslenskra óperusöngv-
ara. Ásamt Sissel koma fram tenór-
arnir Kolbeinn Ketilsson og Garð-
ar Thór Cortes, barítóninn Ágúst
Ólafsson og sópransöngkonan
Hulda Björk Garðarsdóttir.
Í fyrra sóttu um 27 þúsund manns
tónleika Frostrósa og telur Samúel
að áhorfendum muni fjölga í ár. „Við
erum mjög bjartsýn enda hefur það
sýnt sig að Frostrósir njóta mikillar
hylli meðal Íslendinga.“
oskar@frettatiminn.is
64 dægurmál Helgin 23.-25. september 2011