Læknablaðið - 01.08.1968, Side 35
LÆKNABLAÐIÐ
163
með æxli bæði í colon og rectum. Engin aðgerð var gerð á fimm
þeirra. Fróunar- eða könnunaraðgerð á 13, en einn þessara sjúkl-
inga dó innan sex vikna. Gagnger aðgerð var gerð á 39, og var
skurðdauði í þeim hópi 7.7%.
12. TAFLA
Cancer í colon og rectum, 88 sjúkl., sem fengu gagngera aðgerð.
Tegund skurðaðgerða:
Cancer coli, 49 sjúklingar.
Hemicolectomia, hægri eða vinstri ......................... 12
Resectio segmentalis ...................................... 34
Resectio segmentalis ásamt resectio á öðrum líffærum .... 3
Cancer recti, 39 sjúklingar.
Resectio segmentalis abdominalis............................ 12
Resectio abdomino-perinealis ............................... 21
Resectio a.m. Lloyd-Davies .................................. 4
Resectio segmentalis ásamt resectio á þvagblöðru ............ 2
12. tafla
12. tafla sýnir, hvaða skurðaðgerðir voru notaðar hjá þeim
sjúklingum, sem hægt var að gera á gagngera aðgerð. Allt síðan
1952 höfum við oftast nær gert miðhlutun á colon eða rectum
í einni atrennu. Aðeins hjá sjúklingum með ileus á háu stigi og
mjög mikla útþenslu á þarminum ofan við æxlið höfum við gert
aðgerðina í tveimur atrennum, þ. e. gert colostomia eða exteri-
orisation sem hvíldaraðgerð fyrst, en gagngera aðgerð síðar. Ein-
stöku sinnum höfum við gert coecostomia samtímis miðhlutun
á vinstri colon eða rectum.
Að því er varðar cancer recti, hefur þeirri reglu að mestu
verið fylgt að gera abdominalresectio, þegar æxlið situr eigi
neðar en 12 cm frá analopi. Iljá einstaka sjúklingi, sem befur
verið sérlega þægilegur til aðgerðar, befur verið gerð abdominal
í’esectio, þótt æxlið væri nokkru neðar. Ég hef talið mig vera
ánægðan, hafi verið unnt að taka sundur rectum 4 cm fyrir neð-
an neðri æxlismörk. I sex tilfellum hef ég notað aðferð, sem er
kennd við Lloyd Davies, Jægar æxlið hefur verið á svæðinu 8—12
cm frá anus. Með þessari aðferð er lokunarvöðva endaþarmsins
hlíft, þarmurinn tengdur saman enda við enda, en sú samteng-