Læknablaðið - 01.08.1968, Side 36
164
LÆKNABLAÐIÐ
ing er gerð utan við endaþarm, þannig að efri endinn er dreg-
inn niður í gegnum úthverfan neðri endann. Þetta er út af fyrir
sig mjög geðfelld aðgerð, en eftirköstin hafa hjá nokkrum þess-
ara sjúklinga reynzt óþarflega erfið.
13. TAFLA
48 sjúklingar, sem fengu gagngera aðgerð fyrir 5 árum eða meira.
Dánir innan eins árs............................. 10
Dánir 1—2 árum eftir aðgerð..................... 5
Dánir 2—3 árum eftir aðgerð..................... 3
Dánir 3—4 árum eftir aðgerð..................... 5
Dánir 4—5 árum eftir aðgerð..................... 2
Lifandi eftir 5 ár .............................. 23 — 48%
13. tafla
48 þeirra sjúklinga, sem gagnger aðgerð var gerð á vegna
cancer coli eða recti, komu til meðferðar fyrir fimm árum eða
meira, og sýnir 13. tafla afdrif þeirra.
Tæpur helmingur þeirra, eða 48%, reyndist vera á lífi eftir
finím ár, en sé allur sjúklingahópurinn, sem hlaut meðferð fyrir
meir en fimm árum, lagður til grundvallar, reyndust 29% þeirra
vera á líl'i eftir fimm ár. Árangurinn hjá cancer coli sjúkling-
unum var mjög svipaður og hjá þeim, sem höfðu cancer recti.
Þegar reynt er að gera sér grein fyrir líkunum fyrir þvi í
hverju einstöku tilfelli, hvort hægt sé að gera gagngera aðgerð,
og reynt um leið að gera sér grein fyrir horfum sjúklingsins,
virðist eðlilegt, að nokkurt tillit sé tekið til þess, hve sjúkling-
urinn er búinn að hafa einkennin lengi. Hafi hann haft þau
í heilt ár eða meira, virðast í fljótu bragði líkurnar litlar til þess,
að gera megi gagngera aðgerð.
Við athugun á þessum sjúklingahópi furðaði jiað mig all-
mikið, hve margir sjúklingar með árslanga sjúkrasögu eða meira
komu með í þeim flokki, sem gerð var á gagnger aðgerð.
Til þess að fá samanburð voru taldir frá annars vegar þeir
sjúklingar, sem komu til meðferðar innan tveggja mánaða frá
því einkenni komu í ljós, og lúns vegar þeir sjúklingar, sem
komu ekki fyrr en ári eða meira eftir byrjun einkenna.