Læknablaðið - 01.08.1968, Side 40
168
LÆKNABLAÐIÐ
LÆKNABLAÐIÐ
54. árg. Ágúst 1968
FELAGSPRENTSMIÐJAN H F.
LITIMIIVGARAIXIIMSÓKIMIR
Framvindan í læknisfræði-
legri erfðafræði hefur verið
hæði mikil og fjölbreytileg síð-
ustu 10 til 15 árin. Meðal þeirra
greina erfðafræðinnar, sem
])róazt hafa með hvað mestum
hraða, eru litningarannsókn-
ir, frumuerfðafræðin. Greinar-
fjöldinn í læknisfræðiritum um
þessar tegundir rannsókna og
]>að ljós, sem þær hafa varpað
á mörg torskilin vandamál, hafa
ekki farið fram hjá nokkrum
lækni.
Grein um litningarannsóknir,
sem birtist í þessu blaði, er
ánægjuleg sönnun þess, að við
höfum stigið fyrstu sporin til
virkrar þátttöku í þessum vís-
indum.
Þessi rannsóknarstarfsemi
verður mörgum læknum áhuga-
verð, einkum þeim, sem fást vio
fæðingarhjálp og barnalækn-
ingar.
Litningarannsóknir hafa varp-
að nýju ljósi á orsakir fóstur-
láta og vanskapnaða og eru
verðmætasta aðferðin til ná-
kvæmra rannsókna á tíðni og
tegundum litningagalla og
þeirra sjúkdóma, sem þeim eru
samfara.
Rannsóknir erlcndis hafa í
seinni tíð vakið vonir um víð-
tækari hagnýtingu litninga-
rannsókna en hingað til hefur
verið unnt að framkvæma.
Kyngreining og greining litn-
ingamynda hjá einstaklingum á
fósturlífsstigi er nú framkvæmd
á ákveðnum stöðum erlendis.
Augljóst er, hve verðmætt
])að er, ef tímabærar greining-
ar á vansköpuðum fóstrum
geta orðið til að koma í veg fyr-
ir óhamingju foreldra og hið
þjóðfélagslega tjón, sem um-
önnun vanskapaðra einstakl-
inga hefur í för með sér.
Læknisfræði nútimans hefur
upp á lítið að l)jóða um með-
l'erð, þegar um meiri liáttar
vansköpun er að ræða. Ná-
kvæm greining slíks ástands cr
þó grundvallarforsenda erfða-
fræðilegra skýringa og ráð-
legginga.
Það eru fleiri sjúkdómaflokk-
ar en að ofan er getið, sem
ávinningur er að beita litninga-
rannsóknum við, og má í því
sambandi minna á æxlissjúk-
dóma, vissar tegundir hvít-
hlæði og ónæmiskvilla.
Það er augljóst, að litninga-
rannsóknir er bæði tímabært og
nauðsynlegt að framkvæma.
hérlendis, og er þess að vænta,
að húið verði vel að þeim rann-
sóknum, svo að þær verði jafn-
an tiltækar þeim læknum, sem
glíma við erfið og viðkvæm
vandamál.