Læknablaðið - 01.02.1970, Blaðsíða 35
LÆKNABLAÐIÐ
13
ast fyrir um orsakir þess, að ungar konur taka lífshættulegan og
stundum banvænan skammt deyfilyfja. Þetta er verðugt verkefni
fyrir geðlækna.
Þar sem hlutl'all giftra og ógiftra í þjóðfélaginu á aldrinum
15 ára og eldri er u. þ. b. 4:3,° reynist fjöldi kvæntra karla fremur
lágur, en einkum ef þess er gætt, að langflestir karlanna voru á
aldrinum 30—60 ára, en í þeim aldursflokki er giftingarhlutfallið
enn hærra.
Samkvæmt Heilln’igðisskýrslum voru á árunum 1960—66. að
Jjáðum meðtöldum, talin 30 sjálfsmorð af völdum deyfilyfja,
kvalastillandi lyfja og svefnlyfja. Slysaeitranir af völdum barbi-
túrsýru og úrefna hennar voru taldar 12. Samkvæmt eðli málsins
lilýtur að vera erfitt og oft ógerlegt að greina milli slysaeitrunar,
sem leiðir til dauða, og sjálfsmorðs. Er því hér rætt um báða þessa
hópa sem einn. Á árunum 1962—66 voru karlar 22, en konur 11.
Hér snýst þvi við hlutfall kynjanna, miðað við innlagnir á Land-
spítalann. Munurinn er staðtölulegur p<0.005. E. t. v. má því
segja, að körlum sé meiri alvara með sjálfsmorðstilraunum sínum
en konum. Sjálfsmorð eru álílva tíð á Islandi og hinum Norður-
löndunum, að Noregi undanskildum, en þar í landi eru þau fæst
að tiltölu.o
Það vekur athygli, hve Diazepam-eitrun virðist fátíð. Hins
vegar er vitað, að allmargir sjúklingar, sem hafa tekið lyfið í stór-
um skömmtum, koma á Slysavarðstofu. SJvýringin er líklega sú,
að eitrunin er oftast svo væg, að sjúklingarnir eru ýmist sendir
heim eða á geðdeild án viðlvonm á Jyflækningadeild. Engin sali-
cylateitrun var í þessum flokki, en í Bretlandi munu þær um
10%.s
Sumir telja fyrirhæri, sem á ensku nefnist „drug-automatism“,
mikilvæga orsölv bráðrar lyfjaeitrunar. Hér er um það að ræða,
þegar sjúklingar taka venjulegan svefnskammt Jivað eftir annað,
cn meðvitundin er svo skert orðin, að sjúklingur minnist þess
ekki að liafa telvið svefnlyfið skömmu áður. Aitlien og Proudfoot
fundu merki um „drug-automatism“ lijá aðeins tveimur sjúkling-
um af 994.1 Aðrir nefna hærri tölur, t. d. Janssen a. m. k. 25%.4
I þessari rannsókn fannst ekkert öruggt dæmi um þetta fyrirbæri.
Félagsleg vandamál eru vafalaust tíðari en ætla mætti af
sjúkraskrám. Þessi hlið mála er sjaldnast könnuð vandlega, enda
hefur spítalinn eklíi félagsráðgjafa á sínum vegum og því ekki
verið unnt að sinna þessum vanda sem slvvldi.
A síðari árum liafa lcomið frani nýjar aðferðir til að flýta fyrir